Fundargerð Húsnæðisnefndar
42. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar á skrifstofu fjármálastjóra ráðhúsi fimmtudaginn 1. ágúst kl: 16:00 frestað til kl: 8:00 2. ágúst vegna þess að einungis einn aðalmaður mætti.
Mætt voru: Kristín Gísladóttir og Herdís Tryggvadóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Dagskrá:
1. Umsóknir um viðbótarlán
Umsókn að upphæð kr. 2.400.000.- dags. 26. júlí sl. Húsnæðisnefnd Hornafjarðar samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
Umsókn að upphæð kr. 1.855.770.- dags. 26. júlí sl. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
Umsókn að upphæð kr. 2.121.096.- dags. 29. júlí. sl. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs
Umsókn að upphæð kr. 560.000.- dags. 29. júlí. sl. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
Umsókn að upphæð kr. 400.000.- dags. 1. ágúst. sl. Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
2. Úthlutun íbúða
· Víkurbraut 13 0202 fjögurra herbergja íbúð stærð 94,1 fm.. Úthlutað til Unu Ó Runólfsdóttur.
· Víkurbraut 11 0201 fjögurra herbergja íbúð stærð 94,1 fm.. Úthlutað til Almirs Mesetovic.
· Víkurbraut 13 0101 þriggja herbergja íbúð stærð 84,6 fm.. Úthlutað til Valborgar Guðmundsdóttur og til vara Lars Andrésson.
· 3. Erindisbréf húsnæðisnefndar
Frestað.
4. Önnur mál
Fundi slitið kl. 9:00
Ásta H. Guðmundsdóttir
Kristín Gísladóttir
Herdís Tryggvadóttir


