Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð menningarmálanefndar 66

Fundargerð 66. fundar

Menningarmálanefnd Hornafjarðar 66. fundur

FUNDARGERÐ

Fundur haldin í menningarmálanefnd í fundarsal Frumkvöðlaseturs í Nýheimum miðvikudaginn 9. mars kl. 16.00. Mætt voru: Hermann Hansson, Ari Hannesson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir og Guðlag Hestnes.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerð síðasta fundar Lögð fram fundargerð 65. fundar frá 7. febrúar til kynningar.

2. Hugmyndir um samstarf Menningarmiðstöðvar og Framhaldsskólans um eflingu á afþreyingu og menningarstarfi fyrir ungt fólk

(Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS mætti á fundinn undir þessum lið). Eyjólfur gerði grein fyrir samstarfi menningarmiðstöðvar og Framhaldsskólans og fór meðal annars yfir ÚFFF verkefnið. Hann taldi brýna þörf á uppbyggingu afþreyingar fyrir ungt fólk, ekki aðeins innan FAS heldur einnig samfélagið í heild. Kom fram að útfærsla að slíku samstarfi sé ekki fullmótuð. Töluverðar umræður sköpuðust í kjölfarið og kom meðal annars fram sjónarmið að ekki megi drepa niður frumkvæði nemenda FAS og ungs fólks í félagsstarfi. Kom fram að þetta fyrirhugaða samstarf sé í því fólgið að styðja við en ekki stýra menningarstarfi og afþreyingu fyrir ungt fólk. Nefndarmenn voru undantekningalaust hrifnir af hugmyndinni og töldu brýnt að efla afþreyingu og menningarstarf fyrir ungt fólk í byggðarlaginu.

Nefndin felur forstöðumanni að vinna að nánari útfærslu og leggja fyrir nefndina þegar þeirri vinnu er lokið.

3. Greinargerð um stefnumótun í menningar- og safnamálum

Lögð fram ódagsett greinargerð. Greinargerðin er framhaldsvinna frá síðasta fundi. Rætt um hvernig best er að standa að endurskoðun stefnunnar. Ákveðið að halda vinnufund með aðal- og varamönnum í menningarmálanefnd þann 8. apríl frá 14.00-18.00.

4. Jöklasýning

Gerð var grein fyrir stöðu málsins. Kom fram að góður skriður sé á málinu, hönnun sé lokið og fyrstu drög að kostnaðaráætlun liggi fyrir. Þá kom fram að fjármögnun sé ekki lokið en á góðum rekspöl. Einnig kom fram að framkvæmdir við húsnæði séu hafnar og leitað hafi verið eftir tilboðum heimamanna eins og kostur er.

5. Starf upplýsinga- og menningarfulltrúa

Gerð grein fyrir málinu. Kom fram að þeir verkþættir sem falli undir þennan starfsmann séu umsjón með Jöklasýningu, umsjón með upplýsingamiðstöð, umsjón með kynningarstarfi á vegum sveitarfélagsins, umsjón með menningarviðburðum á vegum sveitarfélagsins, Listasafni Austur-Skaftafellssýslu ásamt fleiru.

Samþykkt að starfið verði auglýst.

6. Samningur ríkisins við sveitarfélög á Austurlandi um menningarmál

Gerð grein fyrir málinu.

7. Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi

Kom fram að mikilvægt sé að hvetja aðila í samfélaginu að sækja um styrki og einnig að starfsmenn Menningarmiðstöðvar hafi augun opin um að sækja um styrki í verkefni á vegum Menningarmiðstöðvar.

8. Önnur mál

Guðlaug spurði um hvernig vinnu vegna öryggismála safna miðaði. Kom fram að framkvæmdir séu fyrirhugaðar á næstunni Ágústína spurði um heimsókn Menningarmálanefndar Djúpavogs. Kom fram að haft hafi verið samband og hvatt til þess að af heimsókninni yrði. Sú beiðni verður ítrekuð. Hermann spurði um framkvæmdir við Sindrabæ og Mánagarð. Kom fram að framkvæmdir við Sindrabæ séu vel á veg komnar en styttra í Mánagarði.

 Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17.30




Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica