Fundargerð menningarmálanefndar 73
73. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 7. desember 2005 kl. 16.00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram til kynningar.
2. Samningur milli MMH, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Menningarráðs Austurlands
Lögð fram drög að samningi sem bæjarráð vísaði til Menningarmálanefndar til umsagnar. Töluverð umræða skapaðist. Ítrekað var að mikilvægt sé að ná til félaga, listamanna og stofnana í héraði við framkvæmd samningsins. Menningarmálanefnd fellst á að skrifað verði undir samninginn fyrir sitt leyti.
3. Samningur milli Jöklaseturs ses. og Menningarmiðstöðvar Lögð fram drög til kynningar.
Kom fram að stjórn Jöklaseturs ses. á eftir að fjalla um framlögð drög að samningi og rekstraráætlun. Kom fram að Jöklasetrið fundar á næstu dögum. Menningarmálanefnd felur starfsmanni að vinna áfram að gerð samnings en skoða sérstaklega upphæð í samningsdrögunum.
4. Yfirstjórn sveitarfélagsins
Lagt fram bréf dags. 2. desember 2005 varðandi skipulag á yfirstjórn sveitarfélagsins þar sem bæjarráð óskaði eftir umsögn menningarmálanefndar. Menningarmálanefnd er sammála um að þessi skipan mála standi óbreytt út kjörtímabilið.
5. Menningarverðlaun 2005
Lagður fram listi yfir verðlaunahafa og tilnefningar undanfarin ár. Forstöðumanni falið að auglýsa eftir tilnefningum.
6. Umsóknir um styrki
Lagt fram til kynningar.
Kom fram að bæjarráð er ekki búið að fjalla um styrkina og því geti framlögð gögn tekið breytingum.
7. Deiliskipulag fyrir Haukafell Bréf dags. 2. desember 2005 til kynningar.
8. Önnur mál
· Þorbjörg ræddi um uppgröft við Fjárhúshól á Mýrum þar sem þekkt er að fornleifar eru í jörð. Forstöðumanni falið að kanna málið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.00


