Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 92
92. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 5. september 2007 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Gauti Árnason, Guðlaug Hestnes og Eyjólfur Guðmundsson, Ingvar Þórðarson, Guðrún Ingimundardóttir boðaði forföll.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
Leiga Pakkhúss
Rætt um fyrirkomulag á leigu Pakkhúss og aðgangi sveitarfélagsins að húsinu. Farið yfir uppkast að útboðslýsingu og samþykkt að bjóða húsið út til leigu.
- Staða verkefnisins Hafnarvík-Heppa
Gísli Sverrir Árnason og Gláma-Kím vinna að verkefninu. Unnið er að hugmyndum um nýtingu einstakra húsa og heildarmynd svæðisins.
3. Vinnuskipulag Menningarmiðstöðvar vegna skráningar og frágangs safns Sverris Scheving Thorsteinsson og Lovísu H. Gunnarsdóttur
Skráningu safnanna á að ljúka fyrir áramót og starfsmenn Menningarmiðstöðva eru að hefja þá vinnu.
4. Akurey
Unnið er að því að fá skipasmið til að skoða skipið og meta ástand þess, viðgerðir og kostnað.
- Stefnumótun Nýheima
Eyjólfur gerir grein fyrir þeirri vinnu sem framundan er í stefnumótun Nýheima. Annars vegar er unnið að hugmyndum varðandi húsnæði og hins vegar er unnið að hugmyndavinnu varðandi þá starfsemi sem er í húsinu, mannaráðningar og samnýtingu krafta.
- Opnun Bókasafns
Björg leggur til að Bókasafnið sé opið mánudaga-fimmtudag 9-17, föstudaga 11-17 og laugardaga 10-14. Þessi tillaga samþykkt.
- Capacent-könnun
Könnunin kemur almennt vel út þegar spurt er um menningarframboð og starfsemi Menningarmiðstöðvar. Þrír hópar skera sig úr í svörum, íbúar á aldrinum 18-24 ára, íbúar í dreifbýli og einhleypir. Menningarmiðstöð þarf að hagnýta sér þessa niðurstöðu til þess að koma til móts við þessa hópa.
- Önnur mál
Eyjólfur kynnir hugmynd um Smiðju fyrir fólk á aldrinum 18-26 ára. FAS hefur leitað að aðstöðu fyrir starfsemi sína og hér er möguleiki á að koma upp Smiðju þar sem þeir sem eru í námi eða aðrir geta nýtt sér. Opið yrði eitt kvöld í viku þar sem hægt yrði að koma og nýta sér aðstöðuna, á daginn yrði aðstaðan nýtt til kennslu og liðveislu. Menningarmálanefnd felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar og skólameistara Framhaldsskólans að vinna áfram að hugmyndinni.
Guðlaug nefnir Fundarhúsið í Lóni og girðingu í kringum það. Eftir er að mæla út lóðina og það verður gert nú á næstu dögum.
Gauti nefnir bíó og starfsemi þess. Hann leggur til að bíóstarfsemi í Sindrabæ falli undir starfsemi Menningarmiðstöðvar. Forstöðumanni Menningarmiðstöðvar er falið að kanna þessi mál frekar og hvað þurfi til að hægt verði að hefja bíósýningar í Sindrabæ.
Björg kynnir drög að samstarfssamningi Menningarmiðstöðvar og Grunnskóla Hornafjarðar.
Fleira ekki gert Fundi slitið kl. 18:11


