Fundargerð Menningarmálanefndar 50
50.fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í fundarsal Nýheima miðvikudaginn 15. október 2003 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Bryndís Hólmarsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
Mætt voru Hermann Hansson, Guðlaug Hestnes, Bryndís Hólmarsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Starfsáætlun
Gísli Sverrir fór yfir starfsáætlun nefndarinnar fram á vor.
3. Samstarf við FÍT
Gísli lagði fram bréf frá FÍT þar sem fram kemur listi yfir það tónlistarfólk og hópa sem hafa fengið úthlutað styrk til tónleikahalds á landsbyggðinni. Gísla er falið að skipuleggja 1-2 tónleika.
Gísli sagði frá tónleikum sem haldnir verða 11. nóvember í Nýheimum. Þar koma fram hljómsveitin Santiago, Hera og Geir Harðarson ásamt heimamönnum. Tónleikarnir verða í samstarfi við nemendafélag FAS. Einnig er fyrirhugað að fá Jón Böðvarsson til að halda fyrirlestur í Nýheimun um Njálu í nóvember.
4. Ráðstöfun stofnfjármuna til menningarmiðstöðvar
Gísli lagði fram minnisblað um ráðstöfun stofnstyrks til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og mótframlags frá sveitarfélaginu. Fjárfestingar miðast við það að nýtast í framtíðaruppbyggingu Sindrabæjar sem miðstöð tónlistar og leiklistar þegar Félagsmiðstöðin Þrykkjan fær nýtt húsnæði.
Nefndarmenn voru sammála um að óskastaðan væri að Þrykkjan fengji strax nýtt og betra athvarf. Efasemdir komu fram um að kostnaður við nýja félagsmiðstöð verði jafn mikill og tæknideild bæjarins áætlar eða 30 – 60 milljónir. Ef sú lausn er ekki möguleg verði fylgt áætlun minnisblaðsins.
5. Hafnarvík-Heppa (Mikligarður)
Gísli fór yfir stöðu málsins. Húsafriðunarsjóður hefur sýnir verkefninu mikinn áhuga og þaðan fæst hugsanlega styrkur til frekari úttektar. Nokkrir einstaklingar í sveitarfélaginu og utan þess hafa einnig sýnt áhuga á að koma að uppbyggingu Miklagarðs.
6. Kvöldvaka í Lóni
Gísla var falið að skipuleggja samkomu í Lóni í nóvember. Þorbjörg telur brýnt að menningarmálanefnd skipuleggi reglulega viðburði í dreifbýlinu.
7. Listahátíð barna
Samþykkt að Guðlaug og Ágústína vinni með starfsmönnum Menningarmiðstöðvar að skipulagningu listahátíðar barna.
8. Samningur við Framhaldsskólann
Gísli kynnti bráðabirgðasamning við FAS um bókasafns- og upplýsingaþjónustu í Nýheimum.
9. Önnur mál
Akurey
Rætt var um að eigendur Akureyjar hafa boðið bænum skipið að gjöf. Meðgjöf með skipinu er fjárhæð að upphæð kr. 1.500.000. Þiggji bærinn ekki skipið verður fjármununum varið til að farga skipinu.
Menningarmálanefnd minnir á samþykkt bæjarráðs frá 11. desember 2001 og samþykkt menningarmálanefndar frá 19. mars sl. þess efnis að gerð verði úttekt á ástandi skipsins og hugsanlegum kostnaði við varðeislu þess. Nefndin lítur svo á að framkvæmd þess máls sé í höndum bæjarstjóra. Menningarmálanefnd treystir sér ekki til að taka afstöðu til málsins án þess að slík úttekt liggi fyrir.
Skekkt samkeppnisaðstaða vegna leigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Menningarmálanefnd tekur mjög alvarlega ásakanir um að stuðla að því að skekkja samkeppnisaðstæður aðila í sveitarfélaginu. Nefndin taldi að með reglum sem settar voru síðasta vetur um leigugjald vegna útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins væri þess gætt að aðilum væri ekki mismunað. Nefndin vísar því til bæjarráðs að leitað verði ásættanlegrar lausnar á þessu ágreiningsefni.
Gísli sagði frá væntanlegri komu Seamus Heaney sem hlaut bókmenntaverðlaun Nobels árið 1995 og Liam O’;Flynn sekkjapípuleikara hingað til Hafnar í lok maí. Viðburðurinn er liður í Listahátíð í Reykjavík 2004.
Fundi slitið kl. 18:45
Hermann Hansson
Guðlaug Hestnes
Bryndís Hólmarsdóttir
Þorbjörg Arnórsdóttir
Ágústína Halldórsdóttir.


