Fundargerð Skólanefndar 57
57. fundur
Fundur haldinn í Heppuskóla, miðvikudaginn 28. janúar 2004 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Sigrún Sigurgeirsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Brynja Baldursdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 56. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Eineltisáætlun Hafnarskóla og Heppuskóla
Þórgunnur og Guðmundur gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum rannsókna sem gerðar voru í 45 skólum á Íslandi í október/nóvember 2002 og 2003 og náðu til nemenda í 4. – 10. bekk. Niðurstöður sýna að verulega hefur dregið úr einelti í Hafnar- og Heppuskóla og að líðan nemenda er mun betri þegar bornar eru saman rannsóknir þessara tveggja ára. Er það mjög í samræmi við niðurstöður í þeim skólum sem rannsóknin nær til á Íslandi. Þá kemur fram að í heildina er árangur betri í hornfirskum skólum en fram kemur í meðaltali þeirra íslensku skóla sem eru til samanburðar. Voru skólastjórarnir ánægðir með þann árangur sem náðst hefur og lögðu áherslu á áframhaldandi vinnu í skólunum að þessum málum. Fram kom í máli Guðmundar að þegar boðað var til foreldrafunda um eineltismál hafi fundarsókn verið mjög dræm. Komu fram áhyggjur skólamanna af dræmri þátttöku foreldra, því baklandi sem skólunum er miklvægast að hafa. Var nokkur umræða um samstarf foreldra og skóla og velt upp spurningum hvernig megi auka það. Fundarmenn þökkuðu skólunum fyrir góða vinnu á sviði eineltismála og tóku um leið undir það sjónarmið að þessari vinnu yrði að haldið áfram.
3. Skóladagatal
Farið yfir tillögur Hafnarskóla, Heppuskóla og Nesjaskóla að skóladagatali fyrir skólaárið 2004 – 2005. Skólanefnd leggur áherslu á að skólar byrji á sama tíma í upphafi skólaárs og að þeim ljúki á sama tíma að vori. Einnig að starfsdagar verði samræmdir svo og starfsdagar í leik- og grunnskólum. Fram kom að nefndin leggst ekki gegn stöflun allt að tveggja daga en leggur áherslu á 180 daga skólaár.
4. Önnur mál
• Greint frá vinnu tveggja starfsmanna Rannsóknarþjónustu Kennaraháskóla Íslands við faglegt mat á leikskólastarfi. Búast má við lokaskýrslu fyrir páska.
• Farið yfir bréf, undirritað af Arnbjörgu Stefánsdóttur og Guðmundi Inga Sigbjörnssyni, þar sem fjallað er um skólamáltíðir fyrir nemendur Hafnarskóla og Heppuskóla. Í bréfi þessu er vakin “athygli á stöðu skólamáltíða hjá nemendum í Hafnar- og Heppuskóla” eins og segir í formála bréfsins. Tilgreindar eru ýmsar leiðir til að bæta þennan þátt í þjónustu skólanna. Meginniðurstaða bréfsins er mjög í samræmi við fyrri ábendingar sem fram hafa komið um að eðlilegast sé að matur fyrir þessa tvo skóla verði framleiddur í mötuneyti Nesjaskóla. Einnig var undir þessum lið rætt um hollustu skólamáltíða og hugsanlega lengingu skóladagsins vegna lengri matarhléa. Kom fram að það vantaði 30 mínútur í matarhlé í Heppuskóla. Skólanefnd leggur áherslu á að mötuneytismálum Hafnar- og Heppuskóla verði komið í betra horf en nú er. Skólamáltíðir eru veigamikill þáttur í að bæta líðan nemenda og mikilvægt að nemendur geti keypt í skólunum hollan og góðan mat.
• Sigríður kynnti bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem segir að Evrópuþingið og ráð Evrópusambandsins hafi ákveðið að árið 2004 skuli vera “Evrópuár menntunar með iðkun íþrótta”. Slagorð verkefnisins hér á landi er “Hreyfing eflir hugann”.
• Lögð drög að heimsókn í skólana í Suðursveit og Öræfum þar sem næsti fundur skólanefndar verður haldinn.
• Einstaklingsmál fært í trúnaðarbók. (Einungis skólanefndarmenn og starfsmaður nefndarinnar viðstaddir umræðu um þennan lið.)
Fundi slitið kl.19:35
Fundargerð send öllum fundarmönnum í tölvupósti og samþykkt með sama hætti.
Sigríður Kristinsdóttir (Sign.) Guðmundur Ingi Sigbjörnsson (Sign.)
Bryndís Hólmarsdóttir (Sign.) Brynja Baldursdóttir (Sign.)
Elín Magnúsdóttir (Sign.) Stefán Ólafsson (Sign.)
Sigrún Sigurgeirsdóttir (Sign.) Þórgunnur Torfadóttir (Sign.)
Valdís Kjartansdóttir (Sign.)


