Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð Skólanefndar 58

58. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsinu, þriðjudaginn 17. febrúar 2004 kl. 16:10

Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Sævar Þór Gylfason og Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerð 57. fundar
Engar athugasemdir gerðar.

2. Leikskólinn Óli prik – ákvörðun um framtíð
Samkvæmt upplýsingum leikskólastjóra eru 11 börn í skólanum í dag. Hefur staðan verið nánast óbreytt þetta skólaár. Eins og áður hefur komið fram og samþykkt var á fundi skólanefndar þann 17. september 2003, er skólinn nú einungis opinn eftir hádegi, þ.e. frá klukkan 13 - 17. Á fundi sínum þann 5. febrúar sl. samþykkti bæjarráð eftirfarandi bókun undir þeim lið þar sem rætt var um framtíð leikskólans Óla priks: „Í samræmi við þá stefnu sem fram kom við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2004 samþykkir bæjarráð að vísa ákvörðun um framtíð leikskólans til umfjöllunar í skólanefnd.”
Frá árinu 1998 – 2003 hefur orðið veruleg fækkun í hópi yngstu árganga í sveitarfélaginu, þ.e. aldurshópnum á 1. ári til 5 ára. Er þessi fækkun um 20% á þessu tímabili.

1998 1999 2000 2001 2002 2003
258 börn 248 börn 242 börn 222 börn 217 börn 206 börn

Í ársbyrjun 2001 var leikskólinn Krakkakot tekinn í notkun. Við það fjölgaði leikskólaplássum verulega. Fyrsta ár þessa nýja leikskóla var nýting góð en hefur síðan dregið úr henni. Er nú svo komið að í leikskólum sveitarfélagsins eru alltaf laus pláss. Við þær aðstæður er rökrétt að nýta þá leikskóla þar sem aðstæður eru bestar, bæði hvað varðar húsnæði og uppeldisaðstæður. Í reglum sveitarfélagsins um leikskóla segir: „Öll börn tveggja ára og eldri skulu eiga kost á leikskólavist og hafa þau forgang um vistun. Séu laus pláss eftir að öllum umsóknum úr þeim aldurshópi hefur verið sinnt geta börn allt niður í eins árs aldur fengið leikskólapláss.” Þrátt fyrir að leikskólaplássum fækki lítillega mun þetta markmið reglnanna nást enda fækkun barna á leikskólaaldri veruleg. Skólanefnd leggur því til við sveitarstjórn að leikskólanum Óla priki verði lokað við lok þessa skólaárs um miðjan júlí. Um leið leggur skólanefnd áherslu á að viðkomandi börnum verði tryggð leikskólapláss í leikskólunum á Höfn.

3. Úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskólanna
Farið yfir útsend gögn frá menntamálaráðuneytinu. Úttektirnar voru unnar af Rannsóknarþjónustu Kennaraháskóla Íslands síðastliðið haust og birta þær stöðu hvers skóla fyrir sig. Fram kemur að skólarnir í þéttbýlinu eru lengra á veg komnir í að innleiða sjálfsmatsaðferðir en dreifbýlisskólarnir tveir. Fram kom í máli Guðmundar Inga að vinna við sjálfsmatsaðferðir væri stöðug og lyki í reynd aldrei. Bætti hann við að þetta væri tímfrek vinna og vandasöm.

4. Skýrsla Rannsókna og greiningar um vímuefnaneyslu ungs fólks á Hornafirði
Skýrslan birtir helstu niðurstöður rannsókna meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk á Hornafirði 1997 til 2003. Gögnin sem þessi skýrsla byggir á eru fengin úr viðamiklum könnununum Rannsókna & greiningar sem lagðar voru fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekkjum grunnskóla á Íslandi á árunum 1997 – 2003. Því er ekki um hefðbundnar úrtakskannanir að ræða heldur hafa þær verið lagðar fyrir alla nemendur þessara bekkja sem mættir eru í skólann á þeim tíma sem könnunin er lögð fyrir. Skýrslan á því að endurspegla vel stöðu mála. Staða hornfirskra ungmenna er ekki nógu góð þegar þeir eru bornir saman við jafnaldra á Íslandi. Einkum er áberandi hvað staðan í reykingum og áfengisnotkun er verri hjá nemendum í 10. bekk grunnskóla á Hornafirði en hjá öðrum jafnöldrum þeirra síðastliðin tvö ár, þ.e. árin 2002 og 2003.

5. Önnur mál

• Sigríður greindi frá fyrirspurnum sem hún hafði fengið frá foreldrum um fjölda samræmdra prófa sem nemendur þyrftu að taka til að komast inn í hina ýmsu framhaldsskóla. Guðmundur fór yfir ráðleggingar Heppuskóla til nemenda sinna í þessu sambandi. Greindi hann m.a. frá fundum með nemendum í 10. bekk um inntökuskilyrði í framhaldsskóla og ráðleggingum sem nemendur fá strax í 8. bekk. Einnig var farið yfir reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla og skilyrða um fjölda samræmdra prófa til að geta innritast inn á mismunandi brautir. (Guðmundur Ingi og Sævar sátu fundinn undir liðum 3, 4 og 5.1 og yfirgáfu fundinn eftir þennan lið)
• Gerð grein fyrir bréfi menntamálaráðuneytisins um samræmd próf 2. – 10. maí 2005. Prófað verður í íslensku, ensku, dönsku, samfélagsgreinum, náttúrufræði og stærðfræði.
• Skipan eins fulltrúa í þriggja manna nefnd samkvæmt ákvörðun bæjarráðs þann 5. febrúar sl. Skal nefndin skila tillögum um fyrirkomulag mötuneytismála í skólum. Skólanefnd skipar Sigríði Kristinsdóttur sem sinn fulltrúa.
• Frí vegna ferðalaga starfsmanna skóla á starfstíma þeirra. Stefán gerði grein fyrir svörum stjórnenda við fyrirspurn um frí starfsmanna vegna fyrirhugaðrar ferðar eins af kórunum í sveitarfélaginu í lok apríl.
• Greint frá fyrirhugaðri UT2004 – ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi dagana 5. – 6. mars nk.
• Einstaklingsmál fært í trúnaðarbók. (Einungis skólanefndarmenn og starfsmaður nefndarinnar viðstaddir umræðu um þennan lið.)


Fundi slitið kl.19:30


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica