Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 66
66. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 8. desember 2004 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Snorri Aðalsteinsson, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson, Valdís Kjartansdóttir, Eygló Illugadóttir, Íris Gísladóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 65. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skipulag skólastarfs til skólaloka 2004 ? 2005
Á fundinn mættu skólastjórnendur allra grunnskólanna:
Arnbjörg Stefánsdóttir úr Hafnarskóla lagði áherslu á að tapaðir dagar vegna verkfalls verði ekki unnir upp á einum vetri. Þá sagði hún að skólinn leggi áherslu á að halda vettvangsnámi með svipuðum hætti og verið hefur. Í umræðum um starfsdaga lagði Eygló áherslu mikilvægi þeirra fyrir allt skipulag skólastarfs.
Magnús Magnússon úr Heppuskóla gerði grein fyrir áætlun skólans sem meðal annars gengur út á að fella niður prófdaga og nýta þá til kennslu. Sagði hann mestar áhyggjur vera af 10. bekkingum og fyrirhugaða seinkun á samræmdum prófum í 10. bekk ekki vera næga, hún ætti að ná til loka maí en ekki 9. ? 18. maí. Tóku fundarmenn undir þessi orð Magnúsar um seinkun samræmdra prófa, hún sé of lítil. Sagði hann mikið álag verða á krökkunum og lagði áherslu á baklandið, sem eru foreldrar barnanna. Aðspurður sagði hann að í skólanum hafi verið rætt um aukna kennslu fyrir 10. bekkinga ef eftir því verði falast af skólayfirvöldum. Þorvaldur Jón Viktorsson úr Nesjaskóla gerði grein fyrir áætlunum skólans sem ganga út á lítið breytt skóladagatal. Sagði hann skólastarfið hafa farið vel af stað og gengið vel eftir verkfall. Sagði hann 1. bekkinga hafa farið verst út úr verkfallinu af nemendum Nesjaskóla og að brugðist verði við öllum vanda eftir bestu getu.
Þorbjörg Arnórsdóttir úr Hrollaugsstaðaskóla (í síma) gerði grein fyrir breytingum á skóladagatali. Sagði meðal annars engan starfsdag verða tekinn við skólann á skólaárinu auk þess sem hún gerði grein fyrir ýmsum breytingum. Skólalok eru áætluð 31. maí.
Pálína Þorsteinsdóttir úr Grunnskólanum í Hofgarði (í síma) gerði grein fyrir skipulagi skólastarfs til vors. Starfsmenn skólans höfðu aðalmarkmið námsgreinanna að leiðarljósi þegar nýtt skipulag var unnið. Dregið verði úr ýmsu öðru starfi, svo sem jólaföndri, undirbúningi fyrir árshátíð o.fl.
Friðrik sagði það ekki skila auknum árangri í skólastarfi að taka starfsdaga undir kennslu. Tók Íris undir það. Ekki komu fram athugasemdir nefndarmanna við það skipulag sem skólastjórar kynntu. Skólanefnd samþykkir að sá möguleiki verði kannaður hvort komið geti til aukinnar kennslu í 10. bekk.
3. Fjárhagsáætlun 2005
Greint frá þeim liðum í fjárhagsáætlun sem samþykktir hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar svo og þeim liðum sem ekki hafa fengið fullnaðarafgreiðslu. Á 273. fundi bæjarráðs var samþykkt að leikskólagjöld, mötuneytisgjöld og tónskólagjöld hækki um 4,5% frá og með 1. janúar 2005. Ólöf Þórhalla, Sigríður og Íris sögðu gjöld hækka of mikið miðað við áætlaða hækkun á verðlagi.
4. Lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélagið
Skólanefnd leggur til að síðasti málsliður 34. gr. verði felldur út. Er það í samræmi við barnaverndarlög frá því í maí 2002.
Valdís leggur áherslu á að farið verði eftir auglýsingum um umferð í Hornafirði, einkum hvað varðar merkingar, sbr. V. kafla, viðvaranir.
5. Önnur mál
· Afhentar fundargerðir undirbúningsnefndar fyrir skólamálaþing og drög að dagskrá þingsins.
· Samræmd próf í 4. og 7. bekk verða 3. og 4. febrúar 2005 og í 10. bekk verða þau 9. ? 18. maí 2005.
· Niðurstöður grunnskólaþings 26. mars 2004. Gögn höfðu verið send út með fundarboði. (Til kynningar)
· Endurgreiðslur á fyrirfram greiddum mat í grunnskólum sveitarfélagsins. Fram hefur komið sú hugmynd hjá skólastjórnendum að endurgreiða skuli fyrirfram greitt fæði í Hafnarskóla og Heppuskóla ef fjarvistir frá skóla fari fram yfir 7 daga. Í því sambandi var bent á að stundum eru 2 ? 3 systkini að kaupa fæði samtímis og þá spurt hvort sömu reglur eigi að gilda um þau eða hvort taka eigi tillit til barnafjölda í fjölskyldu þegar endurgreiðsla er ákveðin. Í þessu sambandi var einnig rætt um gildandi reglur fyrir leikskólana um þessi mál. Fram kom sú skoðun að ekki eigi það sama við um frí og veikindi þegar til hugsanlegra endurgreiðslna kæmi. Einnig spurt hvort gilda eigi sömu reglur og í leikskóla. Samþykkt að unnið verði að reglum fyrir endurgreiðslur og að sú vinna verði í samvinnu við verktaka.
· Gerð grein fyrir tillögum að breytingum á yfirstjórn sveitarfélagsins.
· Tölvupóstur frá Ragnari Frank Kristjánssyni í Skaftafelli þar sem greint er frá samskiptum hans við umboðsmann barna vegna afgreiðslu sveitarfélagsins á óskum um greiðslu skólavistar vegna náms utan lögheimilissveitarfélags. Það er í valdi hverrar sveitarstjórnar að taka ákvörðun um greiðslu skólavistar utan lögheimilissveitarfélags. Bent skal á að skólatilboð sveitarfélagsins uppfyllir skilyrði grunnskólalaga.
Skólanefnd leggur áherslu á að sem fyrst liggi fyrir ákvörðun um hvort börn, sem búsett eru í Öræfum, geti lokið skólagöngu sinni frá 1. ? 10. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði.
Friðrik spurði hvað hafi valdið því að brunavarnakerfi á Lönguhólum hafi ekki farið í gang við bruna sem þar varð, slíkt megi ekki koma fyrir. Einnig lagði hann áherslu á brunaæfingar í öllum skólum sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 19:05


