Fundargerð skólanefndar 70
70. fundur
Skólanefnd Hornafjarðar 70. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, þriðjudaginn 19. apríl 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 69. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins.
Bréf leikskólastjóra á Lönguhólum og í Krakkakoti. Framhald frá síðasta fundi. Á 286. fundi bæjarráðs var bréf leikskólastjóranna tekið fyrir og eftirfarandi bókað: „Lagt fram bréf frá leikskólastjórum á Hornafirði, dags. 9. mars 2005. Vísað til afgreiðslu skólanefndar. Bæjarráð tekur undir nauðsyn þess að fá fleiri menntaða leikskólakennara til starfa við leikskóla í sveitarfélaginu.”
Á 287. fundi bæjarráðs var eftirfarandi bókað við umræður um 69. fundargerð skólanefndar: „Vegna 5. liðar í fundargerð skólanefndar, „Skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins – bréf leikskólastjóra á Lönguhólum og í Krakkakoti” vill bæjarráð árétta eftirfarandi. Áður en teknar verða ákvarðanir um slíka grundvallarbreytingu á skipulagi leikskólamála, sbr. bréf leikskólastjóra, fari fram víðtæk og vönduð umræða um þetta mál þar sem gætt verði að kalla til alla þá sem hagsmuna eiga að gæta.”
Umræður urðu í nefndinni um afgreiðslu bæjarráðs á bréfi leikskólastjóranna, hugsanlegan kostnað við breytingarnar, leikskólastefnur, hvað kynni að gerast ef annar leikskólinn yrði eftirsóknarverðari en hinn, tengsl umræðu um leikskólamál við gerð nýrrar skólastefnu, samstarf leikskólanna.
Einnig var rætt um hver sýn leikskólastjóranna væri á þessar breytingar og hvernig þær yrðu framkvæmdar ef til kæmi. Óskaði formaður skólanefndar eftir því að fá frá leikskólastjórum greinargerð þar að lútandi.
Óskað var eftir að greinargerðin liggi fyrir eigi síðar en 3. maí nk.
Elín benti á að rödd foreldra skipti máli og því áhugavert að heyra hvað komi út úr væntanlegum fundi með foreldrum barna á Lönguhólum og í Krakkakoti. Skólanefnd samþykkir að afgreiða þetta mál á næsta fundi nefndarinnar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með undirtektir bæjarráðs um nauðsyn þess að fá fleiri menntaða leikskólakennara til starfa í leikskólum sveitarfélagsins. (Margrét vék af fundi)
3. Skóladagatal Kynnt skóladagatöl Nesjaskóla, Hafnarskóla, Heppuskóla, Hrollaugsstaðaskóla og Grunnskólans í Hofgarði.
Skólanefnd samþykkir fram lögð skóladagatöl allra grunnskólanna.
4. Önnur mál
· Guðmundur gerði grein fyrir fyrstu niðurstöðum úr eineltiskönnun Heppuskóla. Þá kynnti hann val nemenda í 9. og 10. bekk, breytingar á skipulagi á félagslífi skólans og samstarfssamningi við Þrykkjuna, breytingar á námsmati og lagði fram gögn þar að lútandi. Einnig kynnti hann væntanlegar breytingar á starfsmannamálum sem verða litlar.
· Stefán greindi frá heimsókn sinni í Garðabæ föstudaginn 15. apríl þar sem hann hitti starfsmenn á fræðslu- og menningarsviði. Til umræðu á þeim fundi var undirbúningur og vinnuferli Garðbæinga við gerð gildandi skólastefnu sveitarfélagsins. Fram kom í máli Stefáns að honum hafi þótt vinnubrögðin markvisst og þau skilað góðum árangri. Greindi m.a. frá námskeiði um stefnumótun hjá Endurmenntun HÍ sem hluti starfsmanna fræðslusviðsins sótti áður en vinnan við stefnumótunina hófst. Kvaðst hann þegar hafa sent fyrirspurn um námskeið til starfsmanna þeirrar stofnunar.
· Elín gerði að umtalsefni breytta námsskipan til stúdentsprófs. Ákv. að taka þetta efni til umræðu á næsta fundi. (Halldóra vék af fundi)
5. Einstaklingsmál
Þennan hluta fundarins sátu kjörnir fulltrúar í skólanefnd, starfsmaður nefndarinnar og skólastjóri. Mál fært í trúnaðarbók skólanefndar. Fundi slitið kl. 18:25


