Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 104
104. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 21. maí 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Fundargerð 103. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Þetta vilja þau, skýrsla um svör ungmenna um aukna samveru með fjölskyldu, hvernig hvetja megi til frekari þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og fresta því að hefja áfengisneyslu
Farið yfir skýrsluna og einstaka liðir hennar ræddir. Fram kom ánægja með svör ungmennanna, þau sögð bæði fjölbreytt og áhugaverð.
3. Breytingar á greiðslum Tryggingastofunar ríkisins vegna sérstakrar talþjálfunar barna
Gerð grein fyrir samskiptum starfsmanns skólanefndar við TR og þeim svörum sem þaðan hafa borist við fyrirspurn. Sigríður taldi ekki rétt að sveitarfélög taki sjálfrafa upp að greiða mismun á greiðslu TR og þeirrar endurgreiðslu sem foreldrar fá, þ.e. þegar ríkið lækkar endurgreiðslur til foreldra. Fremur eigi að styrkja þá efnaminni þegar þörf krefur. Einnig eigi að halda áfram að hamra á ríkinu vegna þessa máls og sambærilegra mála.
4. Önnur mál
- Bréf frá skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar – fjölgun starfsfólks í lengdri viðveru. Spurt var hvort búist væri við frekari fjölgun í lengdri viðveru. Þórgunnur taldi, miðað við þróun í okkar skóla, mætti búast við því og benti á að hér væru hlutfallslega mun færri í lengdri viðveru en víða annars staðar. Rætt var um fjölda barna á starfsmann. Sigríður sagðist hafa séð í öðru skólaumdæmi “reglu” um 15 börn á starfsmann. Fram kom í máli Þórgunnar að helst vildi hún ráða 2 manneskjur til viðbótar, hvora í 25% starf. Skólanefnd telur nauðsynlegt að fari nemendur fram yfir 15 samtímis í lengdri viðveru þurfi að auka stöðuhlutfall.
- Bréf frá Félagi tónlistarkennara þar sem óskað er eftir tilnefningu í „Fagráð tónlistarskóla” „Fagráðið, sem er vettvangur um fagleg málefni, er opið breiðum hópi aðila sem höndla með málefni tónlistarskóla” eins og segir í bréfinu. Skólanefnd leggur til að Jónína Einarsdóttir verði tilnefnd sem fulltrúi í „Fagráð tónlistarskóla”.
- Upplýsingar sem Sigríður Kristinsdóttir hafði ósakað eftir um leikskólagjöld fyrir 8 klst. daglegan skólatíma. Gjöldin eru samtals kr. 26.489 með fullu fæði fyrir 1. barn og 21.657 fyrir annað barn. Skólanefnd telur leikskólagjöld vera of há í sveitarfélaginu og er sammála um það að lækkun leikskólagjalda sé mikilvægt skref í bættri þjónustu við íbúana. Slík lækkun geti einnig átt sinn þátt í að laða fólk hingað til búsetu og starfa.
- Sigríður gerði að umtalsefni bókun í bæjarráði um leigu á hluta af kjallara Vöruhúss. Stefán greindi frá þeim hugmyndum sem þar liggja að baki.
Fundi slitið kl. 17:45


