Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 122

122. fundur

 

Fundur haldinn      í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 24. febrúar 2010 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

 Mætt voru:     Gunnar Sigurjónsson formaður, Gísli Vilhjálmsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Sædís Guðmundsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.          

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1.      Fundargerð 121. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

2.      Skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar segir starfi sínu lausu

Í bréfi, dags. 10. febrúar 2010, segir Þorvaldur Viktorsson starfi sínu sem skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar lausu. Sigríður sagði að nú þurfi að horfa á stjórnun grunnskólans í samhengi við þær breytingar sem átt hafa sér stað í Grunnskóla Hornafjarðar. Sagði hún það ekki vera í sínum huga næsta skref að ráða skólastjóra heldur aðstoðarskólastjóra. Lagði hins vegar áherslu á að hún væri mjög sátt við störf núverandi skólastjórnenda. Þá benti hún á að með slíkri breytingu mætti spara þar sem aðstoðarskólastjóri væri lægra launaður en skólastjóri sem væri í samræmi við það sjónarmið sveitarfélagsins að draga úr kostnaði. Sædís, fulltrúi kennara sagði að hennar samskipti væru við þann skólastjóra sem er í því húsi sem hún starfar. Sagði það sitt álit og margra annarra kennara að mikilvægt væri að hafa skólastjóra í hvorri aðalbyggingu, stjórnanda sem hefði fullt umboð til að taka ákvarðanir. Gísli sagði að spurningin snerist um hið faglega starf. Velti upp spurningunni hvort skólastjórinn hefði tækifæri til að fara á milli bygginga og á hvað það kallaði. Þá þyrfti skólastjóri að starfa yfir báðum byggingum. Það fyrirkomulag kallaði væntanlega á ráðningu annars millistjórnanda sem væri dýrara en að vera með tvo skólastjóra. Ráðning skólastjóra væri rökrétt til að tryggja gott skólastarf áfram. Anna María tók undir orð Gísla. Sigríður sagði að hún væri á öndverðum meiði við það sem fram hefur komið. Kominn væri tími til að stíga út úr þessum farvegi sem fyrirkomulag á stjórn grunnskólans er í og lagði áherslu á einn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Sædís sagði að faglega séð gæti verið betra að hafa skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Gunnar sagðist hafa rætt við Þórgunni, skólastjóra grunnskólans. Sagði eftir henni að hún væri hlynnt því að hafa áfram tvo skólastjóra. Það hafi gefist vel og mikið starf væri enn eftir óunnið í skólanum í kjölfar allra þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Stefán greindi frá samskiptum við menntamálaráðuneyti og fyrirspurnum til þess vegna þessa máls sem og ýmsum kostnaðarútreikningum við mismunandi stjórnunarform. Þorvaldur svaraði fyrirspurnum um samstarf skólastjóranna og verkaskiptingu þeirra á milli.

Formaður skólanefndar lagði fram eftirfarandi bókun meirihluta skólanefndar:

Miklar breytingar hafa verið gerðar á skipulagi Grunnskóla Hornafjarðar á undanförnum árum.  Árið 2007 var grunnskólinn sameinaður undir eina stjórn og samhliða var stjórnendum í skólamálum fækkað úr sjö í fimm.  Árið 2009 var allt skólahald Grunnskóla Hornafjarðar flutt á Höfn.  Samhliða var stjórnunarstöðum fækkað úr fimm í þrjár.  Í núverandi skipulagi eru tveir skólastjórar sem staðsettir eru annars vegar í Hafnarskóla og hins vegar Heppuskóla og að auki einn deildarstjóri sem sinnir sérkennslu.

Mikilvægt er að starfsmenn, nemendur og foreldrar hafi greiðan aðgang að æðsta stjórnanda skólans og hann þarf að vera í góðum tengslum við alla þessa hópa.  Breytingar á núverandi skipulagi sem fælu í sér að við skólann starfaði einn skólastjóri og einn aðstoðarskólastjóri kölluðu á að skólastjórinn yrði að vera sýnilegur í báðum skólahúsum og þyrfti að byggja upp jafngóð tengsl við starfsfólk, nemendur og foreldra þeirra á báðum stöðum.  Augljóst er að skólastjóri þarf að eiga síðasta orðið með margar ákvarðanir sem varða daglegt starf skólans, um samskipti við nemendur og foreldra þeirra auk þess að skipuleggja allt skólastarfið.  Einn skólastjóri mun ekki anna því að hafa umsjón með daglegu skólahaldi í öðru skólahúsinu og jafnframt að hafa heildarumsjón með öllu skólahaldi.  Það er því rökrétt afleiðing af því að hafa einn skólastjóra að ráða þurfi tvo jafnháttsetta millistjórnendur yfir bæði skólahúsin. 

Meirihluti skólanefndar leggur því til óbreytt skipulag.  Auglýst verði eftir skólastjóra í stað þess sem nú hefur sagt upp störfum og myndi hann skólastjórn með þeim sem fyrir er.  Mikilvægt er að koma auglýsingaferlinu af stað sem fyrst með það fyrir augum að nýr starfsmaður geti tekið til starfa eigi síðar en í  júní næstkomandi og tekið fullan þátt í undirbúningi að skólastarfi fyrir skólaárið 2010-2011.

Sigríður sagðist ekki draga úr því að mikið álag hafi verið á stjórnendum grunnskólans og þar hafi verið unnið gott starf. Ítrekaði þó þá skoðun sín að farsælla væri fyrir skólann að vera með einn skólastjóra og einn aðstoðarskólastjóra. Gunnar sagðist skilja rök Sigríðar en hann byggði sína ákvörðun á samtölum við starfsmenn og fólk í samfélaginu.

Formaður bar bókun meirihlutans undir atkvæði og var hún samþykkt með fjórum atkvæðum einn sat hjá.

 3.      Fyrirkomulag innritunar nýnema í framhaldsskóla 2010

Farið yfir útsend gögn frá menntamálaráðuneytinu þar sem gerð er grein fyrir fyrirkomulagi á innritun nýnema fyrir næsta skólaár. Fram kemur í bréfi menntamálaráðuneytisins að innritun nýnema úr 10. bekk í framhalsskóla fyrir haustið 2010 verði í tvennu lagi þannig að nýnemar sæki um framhaldsskóla dagana 12. – 16. apríl. Þá eigi þeir að velja námsbraut og tvo skóla, aðal- og varaskóla. Að loknum skólaslitum í vor verði lokavitnisburður nemenda sendur til þess skóla sem þeir sóttu um sem fyrra val. Þá gefist nemendum einnig frestur til þess að endurskoða umsókn sína dagana 7. – 11. júní. Einnig kemur fram að nemendum í tilteknum grunnskólum verði tryggður forgangur að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu, sjá http://www.menntagatt.is. Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við menntamálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði verða birt í skólanámskrá á vefsíðu hvers framhaldsskóla. Þá upplýsti starfsmaður skólanefndar að fram hafi komið hjá fulltrúa menntamálaráðuneytisins á fundi starfsmanna skólaskrifstofa að nemendum verði áfram frjálst að velja þann skóla sem þeir helst vilja.

 4.      Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Greint frá því að lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fari fram í Hafnarkirkju þann 17. mars nk. kl. 14. Öllum sé frjálst að mæta á hátíðina.

5.      Opinn fundur skólanefndar um skólamál

Skólanefnd samþykkir að opinn fundur um skólamál verði haldinn í næsta mánuði. Samþykkt að fela starfsmanni skólanefndar að undirbúa fundinn í samráði við nefndarmenn.

6.      Önnur mál

Engin önnur mál borin fram.

 

Fundi slitið kl. 19:00


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica