Fundargerð Skólanefndar 54
54. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 15. október 2003 kl. 16.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Guðfinna Benediktsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Júlía Þorsteinsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Brynja Kristjánsdóttir (í síma), Margrét Ingólfsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 53. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skólanámskrá Grunnskólans í Hofgarði
Brynja fór yfir námskrána og gerði grein fyrir vinnu við hana. Tekið er mið af öðrum skólanámskrám í sveitarfélaginu og efni þeirra lagað að þeim aðstæðum sem eru við Grunnskólann í Hofgarði. Fram kom m.a. að lögð er áhersla á sérstöðu skólans og tengslum hans við náttúru og mannlíf í Öræfum. Einnig gerði Brynja grein fyrir vinnu við sjálfsmatsáætlun skólans.
Skólanámskrá Grunnskólans í Hofgarði samþykkt samhljóða. (Brynja Kristjánsdóttir vék af fundi.)
3. Skólanámskrá Leikskólans Lönguhóla
Margrét fór yfir námskrána og gerði grein fyrir vinnuferlinu. Benti Margrét á að einnig eru til staðar í skólanum handbók fyrir foreldra og vísir að starfsmannahandbók. Skólanámskráin er byggð á námskrá skólans frá 1998.
Skólanámskrá Leikskólans Lönguhóla samþykkt samhljóða. (Margrét og Júlía viku af fundi.)
4. Önnur mál
• Rætt um heimsóknir í Hrollaugsstaðaskóla og Grunnskólann í Hofgarði. Ákveðið að þær heimsóknir verði sem fyrst eftir áramót.
• Kynntur dagur íslenskrar tungu þann 16. nóvember nk.
• Gerð grein fyrir þátttöku í skólamáltíðum fyrir Hafnarskóla og Heppuskóla.
• Gerð grein fyrir eftirlitsskýrslum frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands vegna Hrollaugsstaðaskóla og Nesjaskóla.
• Rætt um handmenntastofur í Vöruhúsi og stöðu handmenntagreina.
Fundi slitið kl. 18:05


