Fundargerð skólanefndar 126
126. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 26. maí 2010 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Gísli Vilhjálmsson varaformaður, Sigríður Kristinsdóttir, Anna María Ríkharðsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þórgunnur Torfadóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Maríanna Jónsdóttir, Íris H. Jóhannsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Anna Guðmunda Andrésdóttir MPA nemi í starfsnámi og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 124. og 125. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Leikskólar sveitarfélagsins, fjöldi barna og skólatímar í apríl 2010
Kynnt yfirlit yfir fjölda barna í leikskólum. Í apríl voru samtals 107 börn í leikskólum sveitarfélagsins í 4 til 9 klst. á dag. 45 börn eru í 4 – 6 klst. og 62 börn eru í 7 – 9 klst. Rætt var um hvernig innritun barna er háttað og hvernig staðan mun vera í haust. Einnig var Hulda Laxdal boðin velkomin til starfa sem skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
3. Minnisblað starfshóps sem meta á kostnaðaráhrif nýrra laga um leikskóla og grunnskóla
Farið yfir minnisblað, dags. 30. 04. 2010. Fram kemur að ný lög (frá 2008) muni auka kostnað sveitarfélaga við rekstur leik- og grunnskóla. Mestu muni þar um reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga vegna leik- og grunnskóla. Þórgunnur vildi koma því á framfæri að með breyttum lögum, þá er kallað á aukið vinnuálag á starfsfólk. Einnig bendir hún á að skólinn fær ekki greitt fyrir nemendur og því gætu nemendur Grunnskóla Hornafjarðar tekið pláss sem annars hefði átt að fara til framhaldsskólanema.
4. Mat á skólastarfi
Farið yfir áætlun mennta- og menningarmálaráðuneytis til þriggja ára um ytra mat á skólastarfi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Einnig greint frá umræðum sem urðu á vorfundi Grunns, félags starfsmanna skólaskrifstofa, um mat á skólastarfi og skyldur sveitarfélaga í þeirri vinnu. Ljóst er að matsvinna á vegum sveitarfélaga kallar á sérhæfða þekkingu sem almennt er ekki til staðar á minni skólaskrifstofum. Á fundi Grunns var rædd sú hugmynd að koma upp landshlutamatsteymum sem sæju um þessa vinnu á tilgreindum svæðum. Bæði muni það spara fé og auka gæði vinnunnar. Stefán benti á að þessi vinna muni kosta sveitarfélög umtalsverða fjármuni. Jafnframt vitnaði hann í minnisblað, sbr. 4. lið á dagskrá en þar segir: ”Reglugerðin [um innra og og ytra mat í grunnskólum] væri hins vegar ekki nægilega skýr til þess að taka af skarið um skyldur sveitarfélaga í þessum efnum.” Taldi hann að eðlilegt að ekki verði farið af stað með þessa vinnu fyrr en skyldur sveitarfélaga liggja fyrir.
5. Önnur mál
Stefán þakkaði öllum þeim sem setið hafa fundi skólanefndar á því kjörtímabili sem nú er að ljúka kærlega fyrir gott samstarf. Minnti hann á að skólanefndin hafi unnið að mörgum og mikilvægum málum og í nefndinni ríkt góð sátt.
Hulda vildi koma á framfæri þakklæti fyrir það traust sem skólanefndin hefur sýnt henni með ráðningu hennar sem skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar.
Fundi slitið kl. 18:00


