Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31

31. fundur

31. fundur Skóla, íþrótta og tómstundanefndar haldinn í ráðhúsi, 20. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:30.

 

 

Fundinn sátu:

Arna Ósk Harðardóttir formaður

Ásgeir Ásgeirsson aðalmaður

Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður

Torfi Friðfinnsson aðalmaður

Gunnhildur Imsland aðalmaður

Ragnhildur Jónsdóttir

 

Fundargerð ritaði:  Ragnhildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs.

 

 

Dagskrá:

 

1.

1301007F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 30

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2.

201302066 - Þjónusta við börn í dreifbýli

Snæfríður Svavarsd. sat fundinn undir þessum lið, Jóhann Hilmar Haraldsson fulltrúi foreldra og Harpa Þorgeirsd. fulltrúi starfsmanna voru fjarverandi. Rætt um að ef sveigjanleikinn væri mikill gæti Sveitarfélagið orðið af tekjum. Rætt um misjafna aðstöðu íbúa dreifbýlis og þéttbýlis til að nýta sér opinbera þjónustu m.a. leikskóla. Ákveðið að fræðslustjóri og leikskólastjórar vinni tillögu til að koma til móts við þarfir foreldra og barna í dreifbýli og leggi fyrir nefndina á næsta fundi.

 

3.

201302036 - Umsókn um frestun á grunnskólagöngu

Málið kynnt.

 

4.

201302033 - Kvörtun vegna skólagöngu barna

Hulda Laxdal, Herdís Tryggvadóttir og Guðbjörg Garðarsdóttir. Ragnhildur kynnti innihald kvörtunarbréfs sem henni var afhent þann 6. febrúar sl. og að úrvinnsla málsins sé komin í ákveðið vinnuferli sem miðar að því að finna lausnir í samvinnu við fjölskyldurnar sem um ræðir. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hvetur málsaðila til að sameinast um lausnir og mun fylgjast með ferli málsins.

 

 

5.

201302061 - Starfsemi íþróttamiðstöðvar

Gunnar Ingi sat fundinn undir þessum lið. Farið var yfir minnisblað Ragnhildar vegna fyrirspurnar Árna Rúnars á bæjarráðsfundi 28. jan. sl. Minnisblaðið samþykkt eftir breytingartillögur.

Samningur við knattspyrnudeild Sindra um vallarumhirðu í sumar lagður fram. Nefndin vill að uppsagnarákvæði verði bætt inn í samninginn. Að því gefnu er samningurinn samþykktur.

Umsókn um afnot af íþróttahúsinu á Höfn milli kl. 06:00-07:30. Íþróttahúsið á Höfn er opið fyrir afnot ákveðinn tíma alla daga nema sunnudaga. Gunnar Ingi hefur sent umsækjanda yfirlit yfir lausa tíma í íþróttahúsi Hafnar og einnig boðið aðgang að Mánagarði.  Gunnari Inga falin áframhaldandi vinna vegna þessa máls. Nefndin fagnar því einnig að Karatedeildin sé að verða virk aftur.

 

6.

201302062 - Fundargerðir ungmennaráðs

Tómstundafulltrúi, Vilhjálmur Magnússon og fulltrúar Ungmennaráðs; Róslín Alma Valdemarsdóttir, Birkir Freyr Elvarsson og Agnes Jóhannsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.

Fundargerð 3. fundar ungmennaráðs var rædd og ábendingar ráðsins um 'Stefnumótun í æskulýðsmálum' samþykktar og starfsmanni falið að send þær til Æskulýðsráðs Íslands. Kynnt voru verkefnin 'Ungt fólk og lýðræði' og 'Flott fyrirmynd'. Rætt var um forvarnarmál og var ungmennaráð hvatt til að taka þátt í fyrirhugðu íbúaþingi. Rætt var um nýju neysluvöruna Kick-Energy og markaðsetningu hennar. Fundarmenn voru sammála að þessi vara væri sett í ógeðfelldan búning sem ýtti undir notkun á tóbaki í vör síðar meir. Þeir voru einnig sammála um að banna ætti notkun vörunnar í íþróttamannvirkjum, skólum og félagsmiðstöð og hvetja verslanir til þess að hafa vöruna á lítt áberandi stað. Ungmennaráð óskar eftir því að fá að koma á bæjarstjórnarfund næst þegar málefni ungs fólks verða á dagskrá.

 

7.

201202022 - Forvarnir endurskoðun stefnu sveitarfélagsins

Rætt um minnisblað Ragnhildar af fundi velferðarteymis 18.02.sl. um að útvíkka stefnumótun um forvarnir í stefnumótun um heilsueflingu og velferð og halda íbúafund um það efni. Fundarmenn styðja þessa hugmynd.

 

8.

201302050 - Leigusamningur um Þrykkjuna

Samningurinn tekinn til umræðu. Lovísa lagði til að leigugjald væri kr. 5.000 á klst. en að hámarki kr. 20.000 - á sólarhring.  Tillagan samþykkt samhljóða.

 

9.

201302013 - Eftirfylgni könnunar um íslenskt mál og tölvur

Bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu vegna eftirfylgni um íslenska málstefnu. Þar óskar ráðuneytið eftir upplýsingum um hvort á vegum sveitarfélagsins og grunnskólans hafi farið fram umæða um að vinna að íslenskri málstefnu og hvort fyrir liggi framkvæmdaáætlun um innleiðingu hennar. Farið var yfir svör skólastjóranna til ráðuneytisins. Fram kom í umræðum að skólarnir væru í fullri vinnu við að innleiða nýjar námskrár m.a. nýja greinanámskrá í íslensku. Ákveðið að starfsmaður ræði við skólastjórnendur um að við endurskoðun á skólanámskrá verði ný greinanámskrá í íslensku höfð til viðmiðunar og íslensk málstefna höfð til hliðsjónar. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd telur mikilvægt að íslenskt mál sé ræktað og það sett í öndvegi í stofnunum sveitarfélagsins.

 

10.

201302022 - Könnun innleiðingar aðalnámskráa í leik-og grunnskóla

Kynnt bréf með könnuninni sem og það að henni hefur verið svarað.

 

11.

201210013 - Samningar við félög,umsóknir um styrki 2013

Farið yfir listann um þau félög sem þiggja styrk frá sveitarfélaginu.  Ákveðið í samræmi við nýsamþykkta stefnu í íþrótta-, æskulýðs og tómstundamálum að samþykkja ekki styrki fyrr en eftir að nefndin hefur fengið skýrslu um starfsemi hvers félags síðast liðins árs.  

 

 




Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 19:30


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica