Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 65
65. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 5. febrúar 2007
kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir, formaður, Valdemar Einarsson, Erna Gísladóttir, Miralem Haseta og Þóra Jónsdóttir.
Einnig: Haukur Ingi Einarsson og Hjalti Þór Vignisson.
Sigurlaug bauð fundarmenn velkomna. Gengið var til dagskrár:
1. Umhverfisverðlaun Hornafjarðar
Miklar umræður sköpuðust um umhverfisverðlaun. Umhverfisnefnd er sammála um að veita Fuglaathugunarstöð Suðausturlands umhverfisverðlaun Hornafjarðar árið 2006 fyrir að safna gögnum og upplýsingum um fugla og vekja þannig athygli á sérkennum staðarins í náttúrufarslegu tilliti.
2. Refa- og minkaveiðar – reglur um veiðilaun
Lagt er til að auglýstar verði tvær stöður. Starfsmenn kynntu hugmynd að árangurstengdum greiðslum og þeim falið að leggja fram tillögur á næsta fundi.
3. Haukur Ingi Einarsson, nýr starfsmaður nefndarinnar kynntur.
Nefndin bauð Hauk velkominn til starfa. Lagt fram minnisblað dags. 14. janúar 2006 um ýmis umhverfistengd mál sem þarf að vinna að. Rætt um að nauðsynlegt sé að útbúa góðar leiðbeiningar handa almenningi varðandi flokkun á sorpi, brotajárni og fleiri málum sem þarf að taka fastari tökum.
4. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:00


