Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 66
66. fundur
Fundur haldinn í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 26. febrúar 2007 kl. 16:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir, formaður, Miralem Haseta og Björn Arnarson.
Einnig: Haukur Ingi Einarsson, Þorvarður Árnason og Rannveig Einarsdóttir.
Sigurlaug bauð fundarmenn velkomna. Gengið var til dagskrár:
- Umhverfisskýrsla vegna aðalskipulags.
Þorvarður Árnason kynnti aðferðarfræði við mat á umhverfisáhrifum áætlana og stöðu mála varðandi gerð umhverfisskýrslu nýs vegar yfir Hornafjarðarfljót. Rannveig kynnti helstu áhrifasvæði, námur, plöntur, veiðisvæði, ræktunarsvæði, fornminjar, fitjar og votlendi, fugla, verndarsvæði og landgræðslusvæði. - Sorpflokkun og tengd mál.
Haukur kynnti þá vinnu sem farið hefur fram frá síðasta fundi Umhverfisnefndar. Umhverfisnefnd hvatti starfmann til að halda þeirri vinnu áfram. - Verðlaun refa- og minkaveiða
Starfmaður kynnti tillögur að hvatagreiðslum til veiðimanna. Nefndin leggur til að farin verði þessi leið að greiða auka verðlaun fyrir hver tíu skott sem skilað er inn.
Einnig voru kynnt viðbrögð við auglýsingu refa- og minkaveiðimanna sem birtist í Eystrahorni 15.02.07. Fjöldi umsókna hafa nú þegar borist og það er ánægjulegt að sjá frambærilega unga menn sýna veiðunum áhuga. - Ásýnd bæjarins fyrir sumarið 2007
Blóma og gróðurmál voru rædd fyrir sumarið 2007. Ákveðið var að halda sömu stefnu og undanfarin ár varðandi gróðursetningu. - Önnur mál
Ónýtar rafhlöður eru sendar til Danmerkur og þar er þeim eytt með því að brenna þær og orkan sem verður til er nýtt til húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Umhverfisnefnd hvetur til þess að söfnunarbaukum verði dreift til heimila í sveitafélaginu.
Fundi slitið kl. 18:15
Sigurlaug Gissurardóttir Haukur Ingi Einarsson
Miralem Haseta Þorvarður Árnason
Björn Arnarson Rannveig Einarsdóttir


