Fundargerð umhverfisnefndar 73
73. fundur
73. fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 13. desember 2007 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Þóra Vilborg Jónsdóttir, Erna Gísladóttir, Stephen Róbert Johnson, Valdemar Einarsson, Björn Arnarson, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200711005 - Umhverfisviðurkenning
Lögð fram drög að reglum um umhverfisviðurkenningu.
Nefndin samþykkti drög að reglum um umhverfisviðurkenningu fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Starfsmanni var falið að auglýsa eftir tilnefningum fyrir árið 2007.
2. 200711003 - Fráveita í dreifbýli
Óskað er eftir umræðum um fráveitumál í dreifbýli. Fyrirkomulag á tæmingu rotþróa og gjaldskrá fyrir slíka þjónustu.
Nefndin fagnar framkomnum tillögum að tæmingu á rotþróm og gjaldskrá, nefndin leggur áherslu á að gjaldtaka vegna þjónustunnar verði ekki hærri en raunverulegur kostnaður.
3. 200707002 - Umföllun um sorpmál á Hornafirði
Minnisblað um sorpmál í dreifbýli lagt fram til umræðu.
Haukur fór yfir minnisblað og greindi frá fyrirkomulagi sorphirðu og eyðingar í dreifbýli, umræður sköpuðust um úrbætur og ávinning. Starfsmanni var falið að vinna áfram að málinu og kanna kosti þess að fara út í úrbætur. Björn Arnarsson spurðist fyrir um meðhöndlun sýktra gripa t.d vegna riðu eða miltisbrands og hvort sveitarfélagið hefði viðbragðsáætlun ef upp koma slík tilfelli.
Valdemar spurðist fyrir um hvort sveitarfélagið hefði skoðað kosti grænna tunna hjá heimilum, starfsmanni var falið að kanna möguleika á grænum tunnum fyrir sveitarfélagið Hornafjörð.
4. 200711042 - Varðar stofnun örmerkjagrunns fyrir gæludýr
Nefndin leggur til að styðja við uppsetningu gagnagrunnsins og leggja til fjárhæð sem samsvarar hlutfall íbúa á Hornafirði og heildarfjölda landsmanna.
5. 200709085 - Ríkisland Flateyjar á Mýrum - ósk um umsögn
Bæjarráð óskar umsagnar nefndarinnar á bréfi frá Landbúnaðarráðuneytinu dagsett 26.september. 2007 um fyrirhuguð landskipti á ríkislandi á Flatey á Mýrum.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að þegar/ef kemur til sölu þess hluta ríkisins í jörðinni Flatey sem ekki fellur undir þjóðgarð sbr. bréf Landbúnaðarráðuneytisins dags. 26. september 2007 og bréf Umhverfisráðuneytisins dags. 24. nóv. 2004, verði það tryggt að áfram verði greiðfært aðgengi gangandi umferðar upp á Eskey frá áningarstað við þjóðveginn skammt vestan Hólmsár.
Einnig að umferð ökutækja um gamlan þjóðveg að Heinabergi verði áfram möguleg með því að á girðingar verði sett nægjanlega breið hlið með meðfærilegum hliðgrindum.
Önnur mál:
Nefndin stefnir að því að halda fundi í umhverfisnefnd úti í dreifbýli á næstunni og samfara því að halda borgarafundi um fráveitu- og úrgangsmál í dreifbýli.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00


