Fundargerð umhverfisnefndar 80
80. fundur
Fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 11. september 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709025 - Verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Lögð fram skýrsla Mannvits um úrgangsmál á Austurlandi 2008. Samantekt fyrir Samband Sveitarfélaga á Austurlandi.
Haukur gerði grein fyrir skýrslunni. Töluverðar umræður sköpuðust um aukna sorpflokkun og endurnýtingu úrgangs, rætt var um endurvinnslutunnu fyrir heimili og grenndargámastöðvar. Umhverfisnefnd mælir með því að við gerð fjárhagsáætlunar verði tekið til skoðunar gjaldtaka vegna almennrar sorphirðu og bendir nefndin á ýmsar leiðir í þeim efnum svo sem mismunandi gjald fyrir mismunandi stærð sorpíláta og endurvinnslutunnu á hvert heimili. Umhverfisnefnd bendir á að bæta megi við almennum sorpílátum við Miðbæ yfir sumartímann. Jafnframt lýsir nefndin ánægju sinni með störf við flokkun og endurvinnslu á gámavelli sveitarfélagsins.
2. 200808057 - Eftirlitsskýrsla 2008 vegna urðunarst. í Lóni
Lög fram eftirlitsskýrsla HAUST vegna urðunarstaðar í Lóni
Haukur gerði grein fyrir eftirlitsskýrslunni og hvernig nýjum verktaka hafi til tekist að vinna verkið. Sagði hann að nú væri unnið að því að bæta úr ábendingum HAUST og gera urðunarstaðinn enn betri.
Umhverfisnefnd leggur til að hraðað verði við vinnu við gerð skjólbelta umhverfis urðunarsvæðið.
3. 200710016 - Sýnataka úr Hornafirði
Lagðar fram til upplýsingar og umræðu sýnataka frá því í 8. júlí 2008
Haukur gerði grein fyrir sýnatökunni. Gerði hann grein fyrir því að austurströndin mælist nokkuð hrein og taldi hann ástæðu til að skoða það betur m.t.t. flutnings á skólpi frá austurströnd yfir á vesturströnd í fyrirhugaða hreinsistöð sunnan við Ásgarð. Einnig gerði hann grein fyrir því að sameining útrásanna á vesturströndinni virðist hafa heppnast vel þar sem mælingar norðan við Leiðarhöfða væru hreinar og undir viðmiðunarmörkum.
Nefndin leggur áherslu á að unnið verði á sömu braut í fráveitumálum og í ljósi hreinleika austurstrandar verði kannað til hlítar hvort nauðsynlegt reynist að dæla skólpi frá austurströnd yfir á vesturströnd eins og fyrri áætlanir gera ráð fyrir. Valdemar benti á að hægt væri að koma hreinsistöð fyrir við Leiðarhöfðann ef ekki reynist nauðsynlegt að dæla skólpi frá austurströnd.
4. 200808027 - Fólkvangur í Óslandi
Farið yfir stöðu fólksvangs í Óslandi og hvernig stjórnun hans er háttað.
Sigurlaug gerði grein fyrir stöðu málefna stjórnar fólksvangs í Óslandi. Umræður sköpuðust um í hverra höndum stjórnin ætti að vera. Samkvæmt erindisbréfi umhverfisnefndar fer hún með stjórn fólksvangs í Óslandi og hlutverk náttúruverndarnefndar. Þar sem vafi leikur á um lögmæti þess að umhverfisnefnd fari með hlutverk stjórnar fólksvangs í Óslandi óskar hún eftir frekari skoðun á málinu en lýsir sig reiðubúna að fara með það hlutverk.
Mikilvægt er að hugað verði að ásýnd svæðisins sem og miðlun fræðsluefnis til gesta fólksvangsins.
Umhverfisnefnd lýsir ánægju sinni yfir vel heppnuðum framkvæmdum frá pípuhliði að Mjólkustöð sem og ásýnd þjóðvegar inn í Nes með tilkomu nýrra girðinga.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20


