Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð Umhverfisnefndar 39

39. fundur

Fundur haldinn Í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn
10. nóvember 2003 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Björk Pálsdóttir, og starfsmaður nefndarinnar Valur Sveinsson.


1. Umhverfisverðlaun 2003
Tilkynnt sýðar


2. Umhverfisþing
Formaður og starfsmaður umhverfisnefndar sátu umhverfisþing sem haldið var í Reykjavík 14. og 15. október síðastliðinn.
Náttúruverndaráætlun var aðal umræðuefni þingsins.
Áætlunin var unnin í tveimur áföngum. Fyrst var unnin ítarleg tillaga að náttúruverndaráætlun á vegum Umhverfisstofnunar í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands og aðrar fagstofnanir, þar sem gerð var tillaga um friðlýsingu 77 svæða sem ætti að tryggja verndun þeirra tegunda, fugla og plantna sem helst eru verndar þurfi á landinu, verndun helstu flokka jarðminja, mikilvægustu birkiskóga landsins og mikilvægra vatnakerfa. Í endanlegri tillögu Umhverfisstofnunar til umhverfisráðherra er lagt til að 75 svæði verði vernduð, en þar er hins vegar ekki að finna forgangsröðun á friðlýsingu svæðanna eða tímasetta framkvæmdaröð. Tillaga Umhverfisstofnunar gefur á hinn bóginn heildarmynd af stöðu mála og hvaða svæði stofnunin telur að skoða beri þegar til lengri tíma er litið.
Síðari áfangi verksins fólst í ítarlegri yfirferð tillagna Umhverfisstofnunar og með því mótun draga að náttúruverndaráætlun til næstu fimm ára. Umhverfisráðherra heimsótti og kynnti sér nær öll svæðin 75, sem er að finna í tillögum Umhverfisstofnunar og fundaði með heimamönnum um mögulega verndun þeirra.
Einhverjar fréttir eru af ráðherra í Lóni í Hornafirði en ekki á öðrum svæðum í sveitarfélaginu þar sem friðlýsingar hefur verið óskað. Ekki var haft samband við sveitarstjórnarmenn í þessari heimsókn.
Í náttúruverndaráætlun 2004-2008 sem lögð verður fram í formi þingályktunartillögu fyrir Alþingi er lagt til að unnið verði að verndun 14 svæða. Eitt þessara svæði er í Hornafirði og er það stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli sem nemur Skeiðarársandi.
Í máli ráðherra á umhverfisþinginu kom fram að hún taldi að umhverfisnefnd Alþingis myndi senda drögin að náttúruverndaráætlun til umsagnar hagsmunaðila og sveitarstjórna áður en náttúruverndaráætlunin verður borin endanlega undir Alþingi.
Ekki hefur verið ákveðið endanlega hvað á að felast í friðlýsingu svæðanna 14 þ.e. hvað má gera innan svæðanna og hvað má ekki gera.

3. Varnargarðar við Jökulsá í Lóni.
Vegagerðin fyrir hönd Landgræðslu ríkisins hefur boðið út gerð tveggja varnargarða við Jökulsá í lóni. Lengd garðanna er 2500 m, þar af 580 m ógrjótvarðir og 1920 m grjótvarðir. Þrjár námur eru fyrirhugaðar í sambandi við verkið.
Nefndin treystir sér ekki til að gefa grjótnáminu umsögn fyrr en heildaráætlun um skilgreindar grjótnámur liggur fyrir í sveitarfélaginu samanber bókun nefndarinnar frá 11. júní síðastliðinn þar sem vegabætur og varnargarðar á Kollumúlaveg var til umfjöllunar.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við námu C.

4. Til kynningar.
Vegagerðin hefur boðið út framkvæmdir við Kotá og Heiðarlæk á Skeiðarársandi. Efnistaka er að mestu í uppmokuðum haugum við Kotá og virkum farvegi árinnar og í gamalli námu sunnan Heiðarlækjar, sem er ekki inná aðalskipulagi. Gert er ráð fyrir að taka þar um 1600 m3 í samráði við landeigendur. Einnig var kynnt efnistaka og námur vegna jarðganga undir Almannaskarð.

5. Önnur mál
Rætt var um músafaraldur í sveitum og spurt hvort að sveitarfélagið geti komið að málinu á einhvern hátt með t.d. með því að samræma aðgerðir við eitranir.

Fundi slitið kl. 19.10

Egill Jónasson
Þóra V Jónsdóttir
Björk Pálsdóttir
Eyjólfur Guðmundsson
Rannveig Einarsdóttir

Valur Sveinsson


Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica