Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð bæjarstjórnar 167

Fundur haldinn  í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 7. apríl 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.

 

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Lovísa Bjarnadóttir og Guðrún Ingimundardóttir.

 

Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.

 

1.  Fundargerðir bæjarráðs   (upptaka)

·         Fundargerð bæjarráðs 536. fundur

Ásgrímur fjallaði um hreinsunarviku sveitarfélagsins, gerði hann grein fyrir fyrirkomulagi vikunnar og góðar undirtektir lögbýlishafa um losun á brotajárni.  Ásgrímur þakkaði fyrir stuðning sveitarfélagsins við Ungmennafélagið Sindra

Reynir fjallaði um undirbúning flutnings á Gömlu búð á Hafnarvík – Heppu svæðið, gerði hann grein fyrir samningi við ráðgjafa er varðar deiliskipulag á svæðinu og að vinna við deiliskipulagið er hafið.

Fundargerð samþykkt samhljóða

 

·         Fundargerð bæjarráðs 537. fundur

Lovísa spurði hvenær boðið verði út endurbætur á utanhússklæðningu og endurbótum á Heppuskóla.

Hjalti gerði grein fyrir undirbúningi á verkefninu endurbætur á Heppuskóla, sagði hann að útboðsgögn liggi fyrir og verða þau tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs.  Hjalti fjallaði um gerði grein fyrir áframhaldandi úrvinnslu gagna sem lágu fyrir eftir íbúaþingið.

Ásgrímur fjallaði um íbúaþingið og gerði grein fyrir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um að allir fimmtudagar verði gerðir að bíllausa deginum, þannig leggja íbúar sveitarfélagsins sitt af mörkum er varðar orkusparnað.

Reynir ræddi málefni tónskóla og umræður um flutning framhaldskennslu eldri nemenda frá sveitarfélögum yfir til ríkisins. 

 

·         Fundargerð bæjarráðs 538. fundur

 

Guðrún Ingimundardóttir fjallaði um lokun sorpbrennslustöðvarinnar í Öræfum og spurðist fyrir um hvar sóttmengaður úrgangur HSSA verði brenndur.

Ásgerður gerði grein fyrir því að eftir eigi að leysa það mál.

Hjalti gerði grein fyrir niðurstöðum rannsókna á landbúnaðarafurðum í Svínafelli í Öræfum, sagði hann að allar niðurstöður væru jákvæðar fyrir landbúnað svæðisins, þar sem engin mengun fannst í landbúnaðarvörunum.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

·         Fundargerð bæjarráðs 539. fundur

Guðrún Ingimundardóttir fjallaði um leikskólamál í sveitarfélaginu

Lovísa fjallaði um nýjar reglur um leikskólapláss á Hornafirði.  Fjallaði hún einnig um auglýsingu um kennarastöðu fyrir skólaárið 2011 – 2012 og spurðist fyrir um hvort einhver væri búinn að sækja um stöðu og hvernig tekið verði á húsaleigustyrk ef ráðin verður kennari utan sveitarfélagsins.

Hjalti svaraði því að engar umsóknir hafi borist, gerði hann einnig grein fyrir því hvernig tekið verði á flutningsstyrk komi til þess að kennari utan sveitarfélagsins verði ráðin til starfa.  Hjalti ræddi skýrslu um leikskólamál, gerði hann grein fyrir niðurstöðu skýrslunnar og þróun leikskólamála síðastliðin ár

Ásgerður fjallaði um skýrslu um leikskólamál, gerði hún grein fyrir þrem þáttum sem sérstaklega á að skoða.  Ásgerður einnig grein fyrir störfum rýnihópsins. 

Fundargerð samþykkt samhljóða

 

·         Fundargerð bæjarráðs 540. fundur

Hjalti fjallaði um samning við Ríki Vatnajökuls.  Fjallaði hann einnig um gerð samnings við Björgunarfélag Hornafjarðar.  Hjalti ræddi um Hafnarvík – Heppu og flutning Gömlubúðar og uppbyggingu Miklagarðs.

Fundargerð samþykkt samhljóða

 

2.  Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði síðari umræða. (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir helstu breytingum á samþykktinni.  Lagði hann til að samþykktin verði samþykkt.  Gerði hann einnig grein fyrir ábendingum sem bárust.  

Reynir spurðist fyrir um hvort Djúpivogur þurfi að breyta sinni samþykkt.

Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við sveitarfstjóra Djúpavogshrepps.

Samþykkt samhljóða.

 

3.  Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið. (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Gerði hann grein fyrir helstu breytingum á reglunum.  Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar. 

 

Guðrún Ása spurðist fyrir um reglurnar.

Hjalti svaraði fyrirspurninni.

Samþykkt samhljóða.


4. Reglur um úthlutun leiguíbúða. (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir reglunum.  Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar. 

Lovísa gerði athugasemdir við reglurnar.

Hjalti ræddi umfjöllun félagsmálaráðs og bæjarráðs um reglurnar.  Hjalti gerði grein fyrir því að um er að ræða nýjar reglur og að bæjarstjórn þurfi að vera tilbúin að gera breytingar á reglunum ef þær reynast ekki nægjanlega traustar.

Samþykkt samhljóða

 

5. Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2011. (upptaka)

 

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Gerði hann grein fyrir helstu breytingum.  Hjalti lagði til að endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir HSSA 2011 verði samþykkt.

 

Samþykkt samhljóða.

 

6. Ársreikningur 2010 fyrri umræða.

 

Hlynur Sigurðsson og Sigurjón Örn Arnarson endurskoðendur fylgdu ársreikningi úr hlaði.

Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins, núverandi bæjarstjórn og síðustu bæjarstjórn fyrir góða vinnu.  Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs.

Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi.  Veltufé frá rekstri nam 261 milljónum króna sem er 26 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.  Launakostnaður jókst frá fyrra ári sökum hækkunar á tryggingargjaldi og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu.  Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.319 milljónum króna í árslok 2010 og lækkuðu um 127 milljónir króna á árinu.  Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.163 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 61,9%.

Í máli endurskoðenda kom fram að samkvæmt samþykktum áætlunum getur sveitarfélagið staðið við áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun fyrir árin 2011-2014 án þess að til lántöku komi á næstu árum.  Það væri til vitnis um fjárhagslegan styrk þess.

 

 

Forseti lagði til að ársreikningum yrði vísað til síðari umræðu. 

 

Samþykkt samhljóða.

 

7.  Kosningar (kosningar)

Ásgerður las upp tillögu um skipan í almannavarnarnefnd.

Björn Ingi Jónsson sem verður formaður og Reynir Arnarson til vara.

Hjalti Þór Vignisson sem verður varaformaður og Ásgerður Gylfadóttir til vara.

Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður og Ingólfur Guðni Einarsson til vara.

Guðrún Júlía Jónsdóttir aðalmaður og Ester Þorvaldsdóttir til vara

Páll Björnsson sem aðalmaður

Samþykkt samhljóða.

 

8. Fyrirspurnir – bæjarstjórn

Þær hafa engar borist.



 

Fundi slitið kl. 20.00


Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica