Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
73. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 10. nóv. 2005 kl. 12:00. Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Ragnhildur Einarsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð fundarfólk velkomið. Gengið var til dagskrár:
1. Minnisblaðið um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Hornafirði
Tekið var fyrir minnisblað um uppbyggingu íþróttamannvirkja annarra en sundlaugar sem unnið var af tæknideild Hornafjarðar. Málinu vísað til umsagnar í æskulýðs- og tómstundaráði og höfð til hliðsjónar stefnumótun ÆTH í æskulýðs,- íþrótta- og tómstundamálum, Horft til framtíðar.
Framkvæmdanefnd um uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir unglingalandsmótið hefur farið yfir þá valkosti sem fram eru settir á minnisblaðinu.
ÆTH mælir með að byggt verði upp á Sindravöllum frjálsíþrótta- og vallarsvæði með gerviefnum 100 og 400 m. tartanbrautir ásamt aðstöðu fyrir kast- og hlaupagreinar og allt svæðið hækkað upp.
Innan 400 m. brautarinnar kemur löglegur knattspyrnuvöllur. Í framhaldi af þessum framkvæmdum leggur ráðið áherslu á uppbyggingu æfinga- og keppnisgrassvæðis á milli Fiskhóls og Hrossabithaga. Svæðið yrði varanlegt æfingasvæði fyrir fótboltann. Stærð svæðis verði í lágmarki 68 x 105 m.
Þegar af þessu verður þarf að finna matjurtargörðunum annað svæði.
2. Farið yfir greinagerð Hönnunnar hf. um sundlaugaruppbyggingu á Hornafirði
Farið var yfir greinagerð frá Hönnun hf. á Reyðarfirði um nýja sundlaug við Heppuskóla og að sundlaugin við Hafnarbraut verði endurbætt. Framkvæmdanefndin um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Hornafirði fyrir unglingalandsmót hefur farið yfir greinagerðina. Ráðið mælir með að byggð verði ný sundlaug við íþróttahúsið á Höfn og verði laugarkerið 25 m.x 10m. að stærð.
Ráðið vill að mannvirkið verði staðsett innan reits AB á myndum frá tæknideildinni sem er vestan við íþróttahús.
Fram kom ánægja með þær skissur af mannvirkinu sem komu inn á fundinn frá tæknideildinni. Með þessum ákvörðunum heldur ráðið sig að mestu við stefnumótun í æskulýð,- íþrótta – og tómstundamálum sem samþykkt var árið 2002.
Ráðið samþykkir að stefnumótunin standi ekki í vegi fyrir framkvæmdum á sviði íþróttamannvirkja á Hornafirði enda er hún stefnumótandi og á að vera sífellt í endurskoðun miðað við breytingar og framfarir á sviði íþróttamála.
Ráðið vill að sett verði á stofn sérstakt framkvæmdaráð vegna fyrirhugaðra framkvæmda á sviði íþróttamannvirkja og leggur áherslu á að úr þeirra röðum komi fulltrúi í ráðið.
Æskulýðsráð vill minna á fyrri bókanir um dúkaskiptin. Ráðið er mótfallið því að farið verði í dúkaskipti þar til tekin hefur verið ákvörðun um byggingu nýrrar sundlaugar.
Valdemar vill láta bóka að athugun verði gerð á hvað kostnaður yrði við að greiða niður æfingagjöld yngri iðkenda í sveitarfélaginu.
Ráðið lýsir yfir ánægju yfir fjölbreyttu framboði í íþrótta- og æskulýðsstarfi og góðri ástundun.
Fundi slitið kl. 13:55.


