Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92

92. fundur

Fundur haldinn      í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 20. september 2007  kl. 17:05 í fundarsal Ráðhúss.

 

Mætt voru:               Matthildur Ásmundardóttir, Helga Lucía Bergsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson, æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

  

Formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

 Gengið var til dagskrár:

 1.      Uppbygging íþróttamannvirkja. Friðrik Þór Ingvaldsson

 

Friðrik Þór Ingvaldsson formaður framkvæmdanefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja greindi ráðsfólki frá stöðu framkvæmda við uppbyggingu íþróttamannvirkja.

 2.      Ungmennaráð  og  erindisbréf

 Farið var yfir erindisbréf ungmennaráðs og það síðan samþykkt með smá breytingum.

 3.      Lýðheilsumál

 Ráðið vill vekja athygli á því að í skýrslu stýrihóps um um lýðheilsu er talað um markmið sveitarfélagsins. Lagði stýrihópurinn til að í samvinnu við Lýðheilsusstöð, að sveitarfélagið setji sér það markmið til ársins 2008 að bæta aðstæður í sveitarfélaginu til heilsueflingar. Það verði gert með því að móta og samþykkja stefnu og aðgerðir varðandi næringu og hreyfingu barna og unglinga og setja fjármagn í verkefnið. Markmiðin eru nánar útfærð í skýrslu stýrihópsins. Tekur ráðið undir þessi markmið og beinir því til bæjarráðs hver vilji sveitarfélagsins er með framgang málsins og að skýrslan hljóti að tengjast vinnu við væntanlega fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.

 4. Forvarnamál – Marita – Stöðufundur

 Haukur greindi frá Maritaheimsókn í 7.-10. bekk og í framhaldsskólann. Forvarnafulltrúi Marita á Íslandi Magnús Stefánsson  greindi frá reynsluheimi þeirra sem ánetjast fíkiefnum og sýndi myndir máli sínu til stuðnings. Þá var haldinn fundur með foreldrum þar sem fjallað var um sama efni. Tókust fundirnir vel og var skipts á skoðunum um skaðsemi fíkniefna og vímuefna í lok hvers fundar. Forsýnt var fræðsluefni hér sem er ætlað 7. bekkingum um sjálfsstyrkingu þannig að þau geti hafnað því að að neyta áfengis og tóbaks.

Stöðufundur um forvarnamál var haldinn í vikunni þar sem saman komu ýmsir aðilar sem tengjast inn í nám og störf með börnum og ungmennum og var skipst á skoðunum um stöðu mála varðandi útivist, vímu- og fíkniefni. Voru menn á því að ástandið væri svipað og undanfarið, nokkuð gott. Ákvað hópurinn að hittast aftur í lok nóvember.

 5. Kvikmyndasýningar í Sindrabæ

 Tekið var fyrir erindi frá bæjarráði um að ráðið fjallaði um kvikmyndasýningar í Sindrabæ í kjölfar bréfs frá ungum drengjum þar sem spurt er af hverju eru ekki bíósýningar í Sindrabæ. Kannað hefur verið hvað kostar að fá textalesara við þá sýningarvél sem nú er út í Sindrabæ og endurbætur samfara þeirri framkvæmd. Er verið að tala um 2,5 til 3 milljónir í kostnað. Ráðið leggur til að komið verði á sýningum á talsettum myndum með íslensku tali. Athugað verði hvort t.d. Nemendafélag FAS eða Þrykkjan hafi áhuga á að reka bíó og finna út hvernig það væri framkvæmanlegt. Starfsmanni nefndarinnar falið að skoða þessi mál og koma með tillögur fyrir næsta fund.

  6.      Önnur mál

Ráðið vill árétta fyrri áherslur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar að færa starfsmannaaðstöðu í íþróttahúsinu á Höfn. Bæði varðar það að starfsmenn fái rúmbetri aðstöðu og eins að þeir geti betur fylgst vel með allri umferð og hegðun í forstofu sem skiptir miklu máli varðandi t.d. að koma í veg fyrir að einelti eigi sér stað.  

 

Næsti fundur ráðsins verður haldinn fimmtudaginn 25. október.

 

 

Fundi slitið kl. 19:15.

                                                                                                




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica