Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
93. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 18. október 2007 kl. 17:00 í Íþróttamiðstöð Hornafjarðar
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir, Helga Lucía Bergsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson, æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið. Gengið var til dagskrár:
1. Heimsókn í Íþróttamiðstöð Hornafjarðar og Sindrabæ
Farið var í vettvangsheimsóknir í Mánagarð, Íþróttahús Hafnar, Sundlaug Hafnar og Sindrabæ. Ráðið hitti starfsmenn og fór yfir punkta varðandi viðhald í stofnunum. Með í ferðinni var Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi og Björn Þór Imsland frá Umhverfissviði og tækni.
2. Skautasvell
Farið yfir bréf sem vísa var til ÆTH frá bæjarráði frá tveimur ungum stúlkum sem vilja fá nýtt skautasvell þar sem allir krakkar á Höfn gætu skautað þar sem búið væri að taka af þeim Gaggótjörnina. Æskulýðs- og tómstundaráð felur starfsmanni að skoða hvort einhverjir möguleikar séu í stöðunni að finna stað þar sem krakkar geti skautað þegar þannig viðrar.
3. Gjöld í sundlaug
Rætt var um gjaldskrá sundlaugar og lagði ráðið til að hún héldist óbreytt nema að börnum og unglingum á aldrinum 6 til 16 ára yrði gefinn kostur á að kaupa árskort í laugina á kr. 9.500. Undir þessum lið var starfsmanni falið að kanna hvað greitt væri í sveitarfélögum fyrir tómstundir og íþróttir.
Næsti fundur ráðsins verður haldinn fimmtudaginn 15. nóvember.
Fundi slitið kl. 19:10.


