Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
54. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
20. október 2003 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Helgi Már Pálsson framkv.stj. Umhverfis- og tæknisviðs sveitarfélagsins var með í skoðunarferðinni.
Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár: Skoðunarferðir í íþróttamannvirki Hornafjarðar.
1. Skoðunarferð í Mánagarð úti og inni
2. Skoðunarferð í íþróttahús Hafnar og útisvæði á Sindravöllum
3. Skoðunarferð í Sundlaug Hafnar
4. Skoðunarferð í Félagsmiðstöðina Þrykkjuna
Fundarmenn heimsóttu framangreind mannvirki skoðuðu þau hátt og lágt í fylgd starfsmanna og Helga Más framkvæmdastjóra umhverfis- og tæknisviðs sveitarfélagsins. Punktuðu fundarmenn niður hjá sér þær athugasemdir sem fram komu við skoðun mannvirkjana og munu þeir væntanlega koma til með nýtast við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2004. Ljóst er að víða er þörf á viðhaldi og endurbótum þó sérstaklega í íþróttahúsi Hafnar og sundlauginni.
Elsa boðaði forföll á fundinn.
Fundi slitið kl. 19:10.
Friðrik Ingvaldsson
Valdemar Einarsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Haukur H. Þorvaldsson.
Helgi Már Pálsson


