Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 6

6. fundur

Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 5. mars 2003 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Mættir voru: Reynir Arnarsson, Sveinbjörn Imsland, Pálmi Guðmundsson, Björn Emil Traustason og Inga Jónsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.


Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :


1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.



2. Ógreiddur hreindýraarður

Inga Jóna upplýsti að enn er ógreiddur hreindýraarður vegna 13 Holta- og Hjáleigujarða á Mýrum vegna áranna 1997-1999. Leitað hefur verið til Hreyndýraráðs vegna málsins og mun starfsmaður ráðsins Karen Erla Erlingsdóttir leggja fram tillögu að skiptingu arðsins. Tillögunnar er að vænta fljótlega og mun ákvörðun um greiðsluna verða tekin á næsta fundi nefndarinnar.



3. Samningar við ráðna veiðimenn um refa- og minkaveiðar

Stefán Helgason sem er ráðinn skotmaður hjá sveitarfélaginu mætti á fundinn til að ræða almennt um refa- og minkaveiðar.

Inga Jóna kynnti bréf sem sent verður til ráðinna skotmanna þar sem þeir eru hvattir til þess að leita á markvissan hátt á úthlutuðum svæðum.

Samþykkt var að leita álits hjá Veiðistjóra um greiðslu veiðilauna.



4. Bann við lausagöngu stórgripa í öllu sveitarfélaginu

Á 56. fundi bæjarstjórnar ræddu fulltrúar um þörf á banni við lausagöngu stórgripa, banni sem næði yfir allt Sveitarfélagið Hornafjörð.

Inga Jóna kynnti drög að samþykkt um bann við lausagöngu stórgripa á Austur-Héraði en þessi drög verða væntanlega lögð fyrir bæjarstjórn þar fljótlega. Í Sveitarfélaginu Hornafirði er öll lausaganga búfjár bönnuð á Höfn, í gildi er bann við lausagöngu hrossa í Nesjahreppi frá 18. mars 1986 og bann við lausagöngu hrossa og nautgripa í Mýrahreppi frá 16. maí 1990.

Ólafur Dýrmundsson hjá Bændasamtökunum sem Inga Jóna ræddi við segir bannið á Austur-Héraði byggjast á því að stærstur hluti vegsvæða þar séu lokaður með góðum girðingum. Hann telur að aðstæður hér séu aðrar og að ábyrgðarlaust sé af sveitarstjórnarmönnum að setja allsherjar bann við þær aðstæður sem hér ríkja. Stefnt er að því að halda fund með Ólafi Dýrmundssyni hjá bændasamtökunum og Reyni Gunnarssyni hjá Vegagerðinni um málið.



5. Fjallskil í sveitarfélaginu

Bæjarstjóri ræddi um fyrirkomulag fjallskila í Nesjum síðustu tvö ár. Atvinnumálanefnd samþykkir að bæjarstjóri vinni áfram að málinu á sama hátt og undanfarin ár. Fyrirhugað er að halda fund með bændum, fulltrúum sveitarfélagsins og Ólafi Dýrmundssyni um fyrirkomulag fjallskila í sveitarfélaginu í lok mars eða byrjun april.



6. Önnur mál

Inga Jónsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu :

?Lagt er til að haft verði samband við ORF líftækni ehf, en fyrirtækið gerir ráð fyrir því að skapa nokkur hundruð manns atvinnu innan tíu til fimmtán ára.

Kannaður verði grundvöllur þess að atvinnumálanefnd komi á fundi með ORF líftækni og bændum í sveitarfélaginu þar sem vilji til samstarfs um ræktun á erfðabreyttu korni (byggi) verði kannaður. Einnig verði kannaðir möguleikar á uppbygging próteinhreinsistöðvar.

Benda má á að í sveitarfélaginu er til staðar reynsla í ræktun korns, fyrirtæki sem byggir á líftækni (enzymvinnsla úr fiskúrgangi) og laust húsnæði (Nýheimar, fyrrverandi hús FAS í Nesjum og fl.)

Sjá frekari upplýsingar í DV, fimmtud. 27. feb., bls. 8-9 og Morgunblaðinu, sunnud. 2. mars, bls. 18-21?

Starfsmaður nefndarinnar mun hafa samband við ORF líftækni og forsvarsmenn Búnaðarsambandsins vegna málsins.



Fundi slitið kl: 19:15

Reynir Arnarson Inga Jóna Halldórsdóttir

Inga Jónsdóttir

Sveinbjörn Imsland

Pálmi Guðmundsson

Björn E. Traustason


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica