Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 22
22. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 21. febrúar 2006 kl. 12:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Sveinbjörn Imsland og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Staða í atvinnumálum
Samkvæmt viðræðum við Vökul fyrr um morgunin eru 24 á atvinnuleysisskrá samanborið við 27 á sama tíma í fyrra.
3. Staða og horfur í sjávarútvegi
Lögð fram gögn sem sýna þróun í aflahlutdeild í sjávarútvegi á Hornafirði. Tölurnar sýna að hlutdeild Hornafjarðar í úthlutun aflamarks hefur styrkst á síðustu árum hlutfallslega. Rætt um loðnuvertíð og ljóst að lítið sem ekkert verðu brætt á þessari vertíð.
Reynir greindi frá því að hafin er frysting á bolfiski hjá Skinney-Þinganes.
4. Norðurljósaverkefnið
Lagt fram minnisblað um norðurljósaverkefnið dags. 6. febrúar 2006. Greint frá stöðu verkefnisins og að fulltrúi ferðaþjónustunnar hafi tekið við af fulltrúa sveitarfélagsins. Í framhaldi skapaðist umræða um stöðu ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu. Fundarmenn sammála um að samanborið við mörg önnur svæði á landinu standi ferðaþjónusta hér vel.
5. Skýrsla í atvinnu- og ferðamálum Rangárþings og Mýrdals
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Lagt fram uppkast að umsögn um þingsályktunartillögu í byggðamálum.
Fundi slitið kl. 13:30


