Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 28
28. fundur
Mætt voru: Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Ásgrímur Ingólfsson, Erna Gísladóttir, Eiríkur Sigurðsson (vék af fundi kl. 18.00) og Gauti Árnason. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Grétar Már Þorkelsson mætti á fundinn kl. 16.30 og vék af fundi kl. 17.30.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Staða atvinnumála
Staða atvinnumála hefur heldur versnað og fjöldi á atvinnuleysiskrá samkvæmt samtali við Svæðisvinnumiðlun er um fimmtán manns. Gerð grein fyrir samkomulagi milli sveitarfélagsins og Svæðisvinnumiðlunar um þjónustu við atvinnuleitendur.
3. Almennt um landbúnaðarmál
Rætt um búnaðarlög nr. 70/1998 og jarðalög nr. 81/2004. Í tengslum við þetta var rætt um garnaveikisbólusetningu og ýmis mál sem mikilvægt er að hafa í góðu lagi. Samþykkt að fá héraðsdýralækni á næsta fund atvinnumálanefndar til að gera grein fyrir bólusetningum.
4. Fjallskil
Mikil umræða skapaðist um fjallskil. Rætt um hvernig fjallskil hafa gengið undanfarin ár og samskipti á milli bænda. Þá var rætt um aukin fjölda jarða í sveitarfélaginu sem fallið hafa úr hefðbundinni nýtingu og hvernig standa eigi að fjallskilum á þeim jörðum. Ennfremur kom fram að sífellt erfiðara er að manna göngur vegna þess að færra fólk býr í sveitum en áður og meðalaldur bænda hefur hækkað.
Atvinnumálanefnd er sammála um að mikilvægt sé að fara í heildarendurskoðun á fjallskilum í sveitarfélaginu með það að markmiði að fjallskil verði í föstum skorðum í framtíðinni. Lagt er til að bæjarráð setji á fót starfshóp til að fara í þessa endurskoðun, skipaða einum fulltrúa frá hverju framboði. Ennfremur telur nefndin mikilvægt að starfshópurinn geri tillögu að samþykkt um fjallskilasjóð. Atvinnumálanefnd leggur til að hópurinn hafi mikið samráð við landeigendur, sauðfjárbændur og aðra hagsmunaaðila. Mikilvægt er að niðurstöður starfshópsins liggi fyrir eigi síðar en 1. mars nk.
5. Forðagæsla og búfjárhald
Grétar Már Þorkelsson, búfjáreftirlitsmaður, ræddi um hlutverk sveitarfélagsins vegna forðagæslu og búfjárhald, skv. lögum um búfjárhald nr. 103/2002. Grétar ræddi um aukið hlutverk sveitarfélaga í þessum mál, t.d. hvað varðaði merkingar á búfénaði. Spurt um ástand varðandi búfjárhald og forðagæslu í sveitarfélaginu. Kom fram í svari að það sé víðast hvar í góðu lagi.
6. Lausaganga búfjár
Fulltrúar Vegagerðarinnar mættu á fundinn undir þessum lið og fóru yfir hugsanlegt samkomulag um bann við lausagöngu búfjár í sveitarfélaginu. Um er að ræða vegarkafla þar sem umferð er meira en 300 bílar á dag á sumrin.
Kynntur var samningur á milli Vegagerðar og Húnaþing vestra um girðingar og friðun vega fyrir ágangi búfjár. Í samkomulaginu kemur fram að Vegagerðin ber ábyrgð á uppbyggingu girðinga og viðhaldi en sveitarfélagið leggi til eftirlitsmann sem sér um að hreinsa vegina af búfé. Einnig tekur sveitarfélagið að sér að kynna samkomulagið við landeigendur.
Í kjölfarið skapaðist mikil umræða um einstök svæði sem mikilvægt er talið að friða í sveitarfélaginu. Rætt var um svæðin við Brekku og Stafafell í Lóni; frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljótum; í kringum Holt á Mýrum; frá Felli að Staðará í Suðursveit og milli Hofs og Svínfells í Öræfum. Kostnaður við uppsetningu girðingar frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljóti er metin allt að 10 miljónum króna.
Einnig var rætt um 37. grein í vegalögum nr. 45/1994 um girðingar. Í því sambandi var rætt um ábyrgð landeigenda, sauðfjáreigenda og ökumanna.
Aðilar sammála um næstu skref sé að gera heildstæða áætlun um uppbyggingu girðinga í sveitarfélaginu þar sem gerðar verði tillögur um friðun ákveðinna vegarkafla. Í framhaldi verði gerð drög að samkomulagi um lausagöngu búfjár á milli vegagerðar og sveitarfélagsins. Ennfremur eru aðilar sammála um að verkefnið verði unnið af verkstjóra Vegagerðarinnar á Höfn og starfsmanni atvinnumálanefndar.
7. Landgræðsla
Grétar Már Þorkelsson, landgræðslufulltrúi, ræddi um stöðu í landgræðslu í sveitarfélaginu. Kom fram að víða er landbrot sem mikilvægt er að sporna gegn. Unnið er að úrbótum á mörgum stöðum. Óskað var eftir lista yfir aðgerðir sem farið hefur verið í á vegum Landgræðslunnar í sveitarfélaginu á undanförum árum og hvað sé framundan.
Mikil umræða skapaðist um stöðu í landgræðslu í sveitarfélaginu og meðal annars um gæðastýringu í sauðfjárrækt. Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að bæjarráð geri athugasemdir við það vinnulag sem viðhaft var af Landgræðslu ríkisins í tengslum við uppsögn á samningi við upprekstraraðila í Laxárdal í Nesjum um gæðastýringu í sauðfjárrækt.
8. Önnur mál
· Hjalti gerði grein fyrir símtali frá Sigurði Sigurðssyni hjá Landbúnaðarstofnun, þann 21. nóvember 2006, varðandi flutning líffjár á milli Álftafjarðar og Hornafjarðar. Atvinnumálanefnd telur að ábyrgð á þessum málum liggi hjá Landbúnaðarstofnun en felur starfsmanni að kynna sér þau mál til hlítar og gera grein fyrir málinu á næsta fundi nefndarinnar.
· Lilja spurðist fyrir um afgreiðslu bæjarráðs um stofnun hóps um atvinnu- og menningarsýningu í tengslum við Ungmennalandsmót.
· Lilja sagði frá hugmyndum um rekstur frumkvöðlabúða í sveitarfélaginu í samvinnu við UMFÍ. Atvinnumálanefnd fagnar hugmyndinni og hvetur aðila til að halda áfram í þessari vinnu.
Fundi slitið kl. 18.30


