Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 39

39. fundur

Fundur í atvinnumálanefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 22. maí 2008 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Ásgrímur Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson, Gauti Árnason, Hjalti Þór Vignisson, Stephen Róbert Johnson,

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

1.      200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá

Samkvæmt upplýsingum dags. 19. maí eru 9 á atvinnuleysiskrá, 3 konur og 6 karlar.

2.      200805067 - Landbúnaður

Grétar Már Þorkelsson, starfsmaður Búnaðarsambandsins, mætti á fundinn undir þessum lið. Hann sagði að hljóðið í bændum væri almennt gott og víða ætti uppbygging sér stað. Grétar ræddi um að staðan í forðagæslu hafi versnað gagnvart aðbúnaði. Þá ræddi hann stöðuna í mjólkurframleiðslu sem hafi verið í svipuðu horfi og síðustu ár. Nú er að hefja starfsemi nýtt bú í Flatey sem styrkir mjög stoðir mjólkurframleiðslu á svæðinu.
Þá greindi hann frá því að kartöflur væru ræktaðir á 60 ha og uppskeran væri um 1000 tonn. Sagði hann að meðalverð fyrir kartöflur væri yfir meðallagi. Tekjurnar væru um 90 miljónir á ári og ræktunin fari frekar vaxandi. Sagði hann að samkeppnisstaða kartöfluræktar hér væri sterk. Grétar ræddi um að sjúkdómar í kartöflum væru hverfandi hér. Einnig væru bændur mjög duglegir að endurnýja stofninn.
Sagði hann að bústofn fari almennt vaxandi nema fjöldi hesta. Fjöldi þeirra fari lækkandi m.a. vegna hækkandi kostnaðar við heyskap.
Rætt var um hækkandi áburðarverð sem bitni nokkuð á bændum. Kostnaður hafi hækkað um tugi prósenta. Á móti hafa tekjurnar hækkað nokkuð. Hljóðið sé samt gott í bændum sem sjá vaxandi möguleika á útflutningi.
Miklar umræður sköpuðust um stöðuna í landbúnaði. Atvinnumálanefnd þakkaði Grétari fyrir komuna á fundinn.

3.      200706010 - Fjallskil
Atvinnumálanefnd er sammála um að gefnir verði út gangnadagar af hálfu atvinnumálanefndar. Atvinnumálanefnd mun ekki skipta niður dagsverkum eða skipuleggja fjallskil að öðru leyti. Verði ekki búið að fara í göngur á ákveðinn svæði fyrir 1. október mun atvinnumálanefnd sjá til þess að svæðin verði hreinsuð á kostnað sauðfjáreigenda og landeigenda.
Rætt var um réttarstjórn og samskipti á milli bænda.
Atvinnumálanefnd felur starfsmanni að rita bændum bréf í þessum anda.

4.      200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Farið yfir drög að samþykkt um atvinnu- og rannsóknarsjóð. Atvinnumálanefnd samþykkir drögin með áorðnum breytingum.

Höfuðstóll sjóðsins verður hluti af söluandvirði Nesjaskóla. Atvinnumálanefnd leggur því til við ríkisvaldið að það leggi sjóðnum til samsvarandi upphæð og þá fjármuni sem ríkið fékk fyrir hlut sinni í Nesjaskóla, alls um 15 miljónir króna. Með þessu móti verði tryggt að fjármunir verði áfram í sveitarfélaginu og nýtist því til áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og samfélags.

5.      200708066 - Skógeyjarsvæðið
Hjalti upplýsti um stöðu mála.

6.      200710086 - Frístundabændur
Hjalti gerði grein fyrir úthlutun á ræktunarlöndum í eigu sveitarfélagsins. Þá sagði hann frá að næsta skref væri að hver frístundabóndi sækti um leyfi fyrir búfjárhald í frístundabyggð. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Vegagerðina um lausagöngu búfjár. Kom fram að Vegagerðin undirbýr að laga girðingar og reisa nýjar á kaflanum frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljótum gegn því að sveitarfélagið leggi til eftirlitsmann til að handsama fé sem heldur sig við þjóðveg 1 á þessum kafla.
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að þetta komist í höfn sem fyrst.
Eiríkur ræddi um land Sveitarfélagsins í Nesjum og mikilvægi þess að hirða vel um það.

7.      200705114 - Önnur mál
Gauti spurði um fund bæjarstjóra með landgræðslustjóra og ræddi sérstaklega um veginn inn með Stafafellsfjöllum.. Hjalti gerði grein fyrir fundinum og lagði áherslu á að landeigendur hefðu frumkvæði að viðræðum við landgræðsluna og Vegagerðina. Sagði Hjalti að á fundi með landgræðslustjóra hafi verið rætt um landbrot af völdum Hornafjarðarfljóta, við Steinadal í Suðursveit, Kotá í Öræfum og af völdum Jökulsár í Lóni.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   17:45

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica