Fundargerð atvinnumálanefndar 42
42. fundur
Fundur atvinnumálanefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 18. september 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá
Kom fram að einn er á atvinnuleysiskrá skv. upplýsingum dags. 17. sept. 2008. Rætt um stöðu á fasteignamarkaði. Gerð grein fyrir hugmynd um stofnun leigufélags.
2. 200809011 - Heimsóknir í fyrirtæki
Rætt um að atvinnumálanefnd heyri viðhorf fyrirtækja til atvinnuástands. Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa fundarröð og leita eftir samstarfi við Afl starfsgreinafélag.
3. 200808058 - Gagnaver
Hjalti gerði grein fyrir fundi sínum við starfsmann hjá Fjárfestingastofu og vinnu að málinu.
4. 200710075 - Framleiðsla til útflutnings á vatni
Bjarni Ólafur Stefánsson mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti skýrslu sem hann vann að beiðni Sveitarfélagsins um möguleika á útflutningi á vatni úr héraðinu. Sagðist hann að í skýrslunni væri fyrst og fremst tveir kostir skoðaðir. Annars vegar útflutningur 1,1 miljónum lítra á átöppuðu vatni og hins vegar útflutningur á vatni í tankskipum eða gámum. Hjalti sagði frá viðræðum sínum við áhugasama fjárfesta og að næsta skref yrði að gera könnun á kostum þess að setja á fót fyrirtæki um útflutning á vatni.
5. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við ráðherra og þingmenn um málið og ósk sveitarfélagsins um að ríkið leggi fjármuni af sölunni á Nesjaskóla inn í sjóðinn.
6. 200710086 - Frístundabændur
Rætt um nýsamþykktar reglur um frístundabúskap. Kom fram að sveitarfélagið gefi út leyfi til fólks að halda búfénað í fristundabyggð. Atvinnumálanefnd felur starfsmanni að gera tillögu að málsmeðferð varðandi útgáfu leyfa og bréfi til frístundabænda um málið.
7. 200705114 - Önnur mál
Stephen vakti máls á að sumarhús vanti fyrir ferðamenn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10


