Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 43
43. fundur
Fundur atvinnumálanefndar Hornafjarðar , haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 16. október 2008 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ásgrímur Ingólfsson, Gauti Árnason, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200810053 - Staða í efnahagsmálum þjóðarinnar
Kom fram að staðan í efnahagsmálum hefur áhrif á Hornafirði sem og annar staðar. Í viðtölum við forsvarsmenn fyrirtækja kemur fram að ekki er útlit fyrir mikla erfiðleika í atvinnulífinu. Rætt um stöðu sveitarsjóðs og hvaða aðgerðir sveitarfélagið getur ráðist í til að minnka áhrifin.
2. 200710075 - Framleiðsla til útflutnings á vatni
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við fyrirtæki sem áhuga hefur á samstarfi um uppbyggingu átöppunarverksmiðju á Hornafirði.
3. 200705114 - Önnur mál
Engin.


