Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 140

140. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 28. janúar 2008, kl. 16:00 í Nýheimum.

Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs,  Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  .

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar, 445 fundur, 23. desember 2008.

Hjalti ræddi samning við Rolf Johansen & Co. um átöppun á vatni og gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hafin er af hálfu sveitarfélagsins vegna þessa samnings.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar, 446. fundur, 12. janúar 2009.

Hjalti gerði grein fyrir ráðstöfun fjármagns frá ríkinu vegna tímabundins niðurskurðar á þorskaflahámarki. Af 12 milljónum færu 6 millj. í atvinnu- og rannsóknasjóð og 6 millj. til að rannsaka  möguleika á nýtingu orku og jarðefnum í sveitarfélaginu sem unnið verði í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar, 447. fundur, 19. janúar 2009.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar, 448. fundur, 26. janúar 2009.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 139. fundur 18. desember 2008 fundargerð áður samþykkt.

 

2. Fjárhagsáætlun 2009 – seinni umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætlun úr hlaði og sagði að mikil óvissa einkenndi íslensk þjóðfélag.  Fjárhagsstaða sveitarfélagsins sé hins vegar ágæt en vel þurfi að halda á spilunum á næstu misserum og árum ef tryggja eigi hag fjölskyldna hér á Hornafirði.  Mikilvægast af öllu væri að fólk hefði atvinnu og sveitarfélagið þyrfti að leita allra leiða til að sporna gegn atvinnuleysi.  Ræddi hann í framhaldi um styrki sveitarfélagsins til atvinnumála sem kæmu sér vonandi vel bæði í nútíð og framtíð. Eins gerði hann grein fyrir verkefni sem væri að fæðast í samvinnu sveitarfélagsins og Nýsköpunarmiðstöðvar um rannsóknir og þróun starfsemi í tengslum við orkumál og jarðefni.  Bæjarstjóri lýsti yfir áhyggjum af stöðu á atvinnuleysiskrá og ræddi hugmyndir um tímabundinn verkefni til að veita fólki atvinnu. 

Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu áherslum á árinu 2009, framkvæmdum og verkefnum sem ráðist verður í. Framkvæmdir verða eftirfarandi:

A-    Hluti                                                                        280,0 m.kr.

  • Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar                         70,0 m.kr.
  • Skólalóð við Grunnskóla Hornafjarðar                            25,0 m.kr.
  • Endurbætur á Tónskóla Hornafjarðar (Sindrabæ)            35,0 m.kr.
  • Sundlaug                                                                   80,0 m.kr.
  • Félagsmiðstöð/Ungmennahús                                        4,0 m.kr.
  • Leirusvæði                                                                  15,0 m.kr.
  • Endurbætur á fasteignum sveitarfélagsins                       10,0 m.kr.
  • Þjónustustöð                                                                 7,0 m.kr.
  • Lýsing í dreifbýli                                                             2,5 m.kr.
  • Sorpgryfja og opin svæði                                                 2,5 m.kr.
  • Byggðarannsókn/Leigufélag                                             2,0 m.kr.
  • Ófyrirséð                                                                      27,0 m.kr.

 

B-    Hluti                                                                             47,1 m.kr.

  • Hornafjarðarhöfn þekja á Álaugareyjarbryggju                   22,6 m.kr.
  • Vatnsveituframkvæmdir                                                    7,5 m.kr.
  • Fráveituframkvæmdir                                                      17,0 m.kr.

 

Samtals:     327,1 m.kr.

 

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum frá fyrri umræðu og eru þær eftirfarandi:

A-hluti:

Tekjur verða 1.243,570 m.kr.. Rekstur málaflokka lækkar um 1,0 m.kr og verður  1.199 m.kr.  Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur  um 22,0 m.kr.   Handbært fé frá rekstri hækkar 123,6 m.kr., fjárfestingar hækka um 80 m.kr.  og eru 280 m.kr., afborganir langtímalána 90 m.kr. og handbært fé í árslok um 33,6 m.kr. og verður 377,3 m.kr.

 

Helstu niðurstöðutölur við seinni umræðu

A og B -hluti:

Tekjur 1,412,5 m.kr. Laun og launatengd gjöld verða 737,4 m.kr., annar rekstrarkostaður 508,1 m.kr. og afskriftir 61,1 m.kr. Fjármagnskostnaður er 103,3 m.kr. og rekstrarniðurstaða 2,5 m.kr. afgangur.   Handbært fé frá rekstri 173 m.kr., fjárfestingar 327,1 m.kr., afborganir langtímalána 108,6 m.kr., ný langtímalán 32 m.kr. og handbært fé í árslok 377,9 m.kr.

 

Björn Ingi tók til máls og lagði fram þrjár bókanir sjálfstæðimanna.

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 tók meirihlutinn þá meðvituðu ákvörðun að mæta tekjurýrnun með því að ganga á sjóði sveitarfélagsins. Ekki er um neinn niðurskurð í rekstri að ræða. Launaliðir  og þeir liðir sem taka mið af lánskjaravísitölu eru hækkaðir. Útsvar hefur verið hækkað um tæp 2% eða úr 13.03% í 13.28%.

Tillaga um breytingar á viðhaldsáætlun:

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að fresta viðhaldsframkvæmdum við félagsheimilin í Holti og Hrollaugsstoðum þar til ljóst verður hver framtíðarnýting húsnæðisins  verður og tækju þær framkvæmdir mið af þeirri framtíðarsýn.  Í stað þessa verði aukið við framkvæmdir í  Hofgarði, en fyrir liggur að m.a. að endurbæta þakið.

Að okkar mati eiga framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins meðal annars að taka mið af því að halda uppi ákveðnu atvinnustigi í erfiðu efnahagsástandi og að til framtíðar verði hægt að hagræða í rekstri á vegum sveitarfélagsins. Því leggjum við fram eftirfarandi breytingatillögu:

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að hafist verði handa við undirbúning og hönnun næsta áfanga við sundlaugina með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist nú í haust. Við hönnun hússins verði haft að markmiði að byggingin verði sem best fjölnota fyrir samfélagið.

Vegna þessa verði bætt verði við liðinn framkvæmdir 50,000,000.kr.

 

Í desember árið 2006 var sveitarfélaginu færð að gjöf 60 milljónir króna frá Skinney-Þinganes hf.  sem skilyrt var í byggingu Knattspyrnuhúss. Þessi upphæð væri   ef hún tæki mið af hækkun byggingarvísitölu krónur 82,7 milljónir. Nú er ljóst að þessi áform um byggingu hafa verið lögð af í bili.

Því leggjum við til eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að fela bæjarstjóra að  kanna kostnað við að koma upp upphituðum  gervigrasvelli í stað knattspyrnuhúss og  leita samþykkis Skinneyjar-Þingeyjar hf. fyrir því að þeir fjármunir sem fyrirtækið færði sveitarfélaginu að gjöf í tilefni 60 ára afmælis síns verði nýttir í þennan völl. 

 

Hjalti sagði að huga þurfi að næstu framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins þegar endurbætur á skólahúsnæði verða vel á veg komin. Því taldi hann næsta áfanga við sundlaug vel koma til greina ásamt því að skoða uppbyggingu gervigrasvallar. Þá minnti hann á að ný mannvirki kalli á aukinn rekstrarkostnað og það þurfi menn aða hafa í huga áður en byggt verði. Þá greindi hann frá samtölum sínum við stjórnendur Skinneyjar – Þinganess um gervigrasvöll og knattspyrnuhús. Hjalti sagði það sína skoðun að viðhaldi hafi verið ábótavant á húsnæði í dreifbýli, einkum skólahúsnæði sem ekki hafi verið nýtt í nokkur ár sem slíkt. Því gæti hann ekki tekið undir bókun sjálfstæðismanna um húsnæði í dreifbýli.

Björn Ingi áréttaði að ekki sé verið að taka fé úr sveitunum með þessari tillögu heldur sé verið að tala um aðra forgangsröðun. Þá benti hann á að menn færu oft út í lagfæringar á húsnæði án þess að sjá fyrir sér hvaða starfsemi muni verða þar, sem oft reyndist lítil. Einnig velti hann upp þeim möguleika að Holt gæti lent inn á helgunarsvæði Vegagerðarinnar ef Leið 1 yrði valin fyrir nýjan hringveg.

Árni sagði fjárhagsáætlun bera merki um sterka stöðu sveitarsjóðs og ræddi einnig um óvissutíma sem fram undan eru. Hann lagði áherslu á að fólk geti haft atvinnu. Þá ræddi hann tillögur sjálfstæðismanna að bókunum og sagðist ekki að öllu leyti átta sig á það sem sagt er um rekstur sveitarfélagsins og að ekki sé reynt að draga úr rekstri. Hann sagðist vera sammála Hjalta um það sem hann sagði um viðhald mannvirkja í dreifbýli. Hann spurði hvort tillaga um 50 millj. væri tillaga um hækkun á ramma eða niðurskurð á öðrum sviðum. Hann sagði það skoðunar virði að skoða gervigrasvöll í stað knattspyrnuhúss sem lagt hefur verið til hliðar um sinn.

Hjalti taldi Holt ekki standi í vegi fyrir Leið 1 á nýjum hringvegi, samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni vegagerðarinnar.

Reynir sagðist ekki geta fallist á tillögu um að hækka framkvæmdalið um 50 millj. að öðru óbreyttu. Lagði til að menn haldi sig við fram lagða áætlun og minnti á tillögu um að hún verði endurskoðuð á þriggja mánaða fresti. Reynir sagðist tilbúinn til að samþykkja tillögu um annan áfanga sundlaugar með þeirri breytingu að tekið verði út ákvæði um að framkvæmdir hefjist í haust. Tillögu um gervigrasvöll sagðist Reynir geta fallist á og að allir kostir verði skoðaðir í þessu máli. Þá þakkaði hann starfsmönnum fyrir vel unnin störf og benti m.a. á að sveitarsjóður hafi ekki tapað innistæðum við bankahrunið.

Sigurlaug sagði að henni rynni blóðið til skyldunnar þegar rætt væri um félagsheimili í sveitum. Sagði að samfélögin, þar sem þau eru, kölluðu á þessi félagsheimili. Hægt verði að endurbæta Holt án þess að óttast veglínur á hringvegi 1. Hún sagði menn vilja sjá lifandi starfsemi í félagsheimilum í dreifbýli og kallað væri eftir því í þessum samfélögum. Þá benti hún á í sínu máli að í Skotlandi væri verið að byggja upp átthagastofur í dreifbýlinu og það væri m.a. gert í félagsheimilum. Lagði hún til að við horfðum þangað í leit að fyrirmyndum á slíku starfi.

Halldóra sagði fjárhagsáætlun þessa vara galopna og vitnaði til orða forseta bæjarstjórnar í þá átt. Þá ræddi hún vinnu við rekstur sveitarfélagsins sem ekki hafi leitt til neinnar hagræðingar. Benti hún á að sum fyrirtæki hafi lækkað laun um 10% hjá þeim sem væru með yfir 350 þús. kr. mánaðarlaun. Hún sagði það vera ábyrgðarhluta að setja fé í viðhald bygginga í dreifbýli án þess að vita hvaða starfsemi ætti að fara þar fram. Hún velti upp hugmynd  um að sala á húsnæði, t.d. í dreifbýli gæti eflt þar atvinnustarfsemi. Hún kallaði eftir hugmyndum og áætlunum frá íbúum um nýtingu þessara húsa. Þá benti hún á að skipta þurfi um þak á Hofgarði, nýta mætti þetta fé til þess sem næstu aðgerð. Hún sagði að félagsheimili verði að hafa hlutverk og meðan það væri ekki ljóst ætti viðhald á þeim að bíða. Halldóra sagðist geta samþykkt að dráttur verði næsta áfanga sundlaugar um einhverja mánuði. Lagði áherslu á við þurfum að hafa einhverja framtíðarsýn að byggja. Þá sagðist hún ekki leggjast gegn því að rekstur verði skoðaður. Hún gerði athugasemd við að ekki liggi fyrir nákvæmar tölur um áætlaðar framkvæmdir við skólana, þetta væri slump út í loftið, sagði hún. Halldóra útskýrði hvað átt væri við með hugtakinu „fjölnota” í næsta áfanga sundlaugar og benti í því sambandi m.a. á hugsanlega verði þar líkamsræktarstöð, byggingin muni bæta aðstöðu fyrir skemmtanahald í íþróttahúsi, nýta mætti bygginguna ásamt íþróttahúsi til ráðstefnuhalds o.fl.

Reynir sagðist ekki hafa verið á móti tillögu tvö, aðeins vilja gera á henni breytingar.

Hjalti sagði kostnaðaráætlun vegna skólamannvirkja ekki endanlega liggja fyrir en unnið væri að því hörðum höndum þessa dagana að ljúka þeim. Þá sagði hann breytingar á skólunum lækka rekstrarkostnað síðar meir.

Árni tók undir orð forseta um þakkir til starfsfólks. Hann ræddi félagsheimili í sveitum og sagði frumforsenda þess að nærsamfélögin nýti félagsheimilin sé að þau fái að minnsta kosti lagmarksviðhald. Hann taldi og mikilvægt að kalla eftir frumkvæði nærsamfélagsins. Þá bar hann upp tillögur að breytingum á tillögum sjálfstæðismanna.

Sigurlaug  ræddi félagsheimilin og benti um leið á orð Halldóru um fjölnota hús í þéttbýlinu. Segja mætti að allt sem hún taldi upp ætti einnig við um íbúa dreifbýlisins.

Björn Ingi sagðist búast við að þessi umræða um félagsheimilin leiddi til mikils starfs þar. Hann benti á að fundur um atvinnumál í dreifbýli hafi ekki verið haldinn í félagsheimili heldur í sal einkaaðila sem hann taldi hið besta mál. Sagðist þó ekki gera lítið úr þörf íbúanna fyrir húsnæði til að koma saman í.  Leysa mætti þörf íbúa fyrir samkomustað með samningi við einkaaðila.

Hjalti ræddi um nýtingu á opinberu húsnæði og benti á að nýting Nýheima væri að hluta til árstíðabundin. Þá benti hann á mögulega nýtingu á húsnæði í dreifbýli og benti á ýmis hlutverk sem þessi hús gætu haft. Hann sagðist ekki geta tekið undir það að þessi hús verði seld og að ekki verði undan því komist að þau fái nauðsynlegt viðhald.

Forseti bar upp eftirfarandi tillögu með breytingum sem fram komu við umræður: Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að hafist verði handa við undirbúning og hönnun næsta áfanga við sundlaugina.  Við hönnun hússins verði haft að markmiði að byggingin verði sem best fjölnota fyrir samfélagið. Kostnaður við hönnun húss verði tekinn af óráðstöfuðu.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða

Borin upp eftirfarandi tillaga sjálfstæðismanna með breytingum sem fram komu við umræður um hana: Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að fela bæjarstjóra að  kanna kosti þess og kostnað við að koma upp upphituðum  gervigrasvelli í stað knattspyrnuhúss og  leita samþykkis Skinneyjar-Þingeyjar hf. fyrir því að þeir fjármunir sem fyrirtækið færði sveitarfélaginu að gjöf í tilefni 60 ára afmælis síns verði nýttir í þennan völl. 

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða

Tillaga sjálfstæðismanna um frestun á viðhaldi á félagsheimilum í dreifbýli borin undir atkvæði og var hún felld með fimm atkvæðum gegn tveimur.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða.

 

 

 

 

3. Þriggja ára áætlun

Fjárhagsáætlun 2010 - 2012 – Fyrri  umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og sagði m.a. að áætlun áranna 2010 – 2012 væri á  föstu verðlagi og allar upphæðir miðast við fjárhagsáætlun 2009 nema upphæð til fjárfestinga og lána.  Gert er ráð fyrir varanlegum fjárfestingum að upphæð 666,1 m.kr., á árunum 2010 til 2012.  Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 600,0 m.kr. og  taki langtímalán að upphæð 150,0 m.kr. Á móti eru afborganir langtímalán 244,6 m.kr. Langtímalán aðalsjóðs lækka í á tímabilinu um 17,62 m.kr. Langtímalán A-hluta verða því í lok tímabilsins 570,0 m.kr. 

 

Varðandi framkvæmdir á þriggja ára tímabili sagði bæjarstjóri að mikil óvissa er um þróun efnahagsmála á Íslandi.  Verðbólga er mikil, erfitt er að fjármagna framkvæmdir og tekjustofnar sveitarfélaga rýrna líkt og hjá öðrum opinberum aðilum.  Þess vegna er ekki sett fram heildstæð áætlun um framkvæmdir á næstu þremur árum.   Allt bendir þó til þess að sparifé Sveitarfélagsins Hornafjarðar dugi til þess að halda úti töluverðum framkvæmdum á næstu árum.  Gert er ráð fyrri framkvæmdum upp á 280 m.kr. á árinu 2009, 200 m.kr. á árinu 2010, 200 m.kr. á árinu 2011 og 200 m.kr. á árinu 2012.  Allar þessar framkvæmdir verða fjármagnaðar með sparifé sveitarfélagsins og veltufé frá rekstri nema árið 2012 þegar gert er ráð fyrir lántöku að upphæð 150 m.kr.

 

Það eru mörg verkefni sem bíða þess að komast til framkvæmda en lögð er sérstök áhersla á við undirbúning þeirra verði litið til stofnkostnaðar en þó ekki síður til rekstrarkostnaðar. Sveitarfélög verða að skoða hlutina til enda við þær aðstæður sem nú ríkja.  Þegar sveitarfélög eiga erfitt með að ná endum saman og veltufé frá rekstri minnkar verður að gæta þess að auka ekki rekstrarútgjöld meira en nauðsynlegt er.  Á það bæði við um þjónustu við íbúa og rekstur fasteigna.

 

Tillaga er því um að starfsmönnum verði falið að gera áætlun um stofn- og rekstrarkostnað eftirtalinna verkefna sem koma til framkvæmda á næstu þremur árum.  Ekki fyrr en að þessar upplýsingar liggja fyrir verði tekin ákvörðun um forgangsröðun þeirra:

 

·         Endurbætur á leikskólum Hornafjarðar til að mæta kröfum nýrra laga um leikskóla

·         Framkvæmdir í tengslum við Hafnarvík-Heppu verkefnið

·         Vetraraðstaða fyrir íþróttafólk

·         Vallarhús við Sindravelli

·         Tengibygging Heppuskóla og sundlaugar

·         Innisundlaug

·         Listasafn Svavars Guðnasonar

·         Færsla þjóðvegar í þéttbýli

·         3. áfangi að hellulögn á Hafnarbraut

·         Endurbætur á götum, plönum, gangstéttum og gangstígum í dreif- og þéttbýli í sveitarfélaginu

·         Grófhreinsun fráveitu

·         Úrbætur í umhverfismálum, s.s. moltugerð og urðunarsvæði í Lóni

·         Uppbygging aðstöðu fyrir verk- og listgreinakennslu við Grunnskóla Hornafjarðar

 

Samþykkt samhljóða að vísa þriggja ára áætlun til síðari umræðu.

 

4. Kosningar

Hafnarstjórn:

Ásgeir Gunnarsson hefur beðist lausnar frá setu í hafnarstjórn. Í hans stað er tilnefndur

Sigurður Ægir Birgisson. Tilnefning borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sitja hjá. Sem varamaður í hafnarstjórn er tilnefndur Örn Arnarson í stað Sigurðar Ægis Birgissonar. Tilnefning borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sitja hjá.

Skólanefnd:

Guðrún Jónsdóttur formaður hættir í skólanefnd. Í hennar stað er tilnefnd Elín Magnúsdóttir sem aðalmaður og um leið formaður nefndarinnar. Tilnefning borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sitja hjá.

 

5. Fyrirspurnir   

Engar fyrirspurnir hafa borist.

Fundi slitið kl. 18.10

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica