Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 153

153. fundur

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 8. apríl 2010 kl. 16:00 í Nýheimum.

Mætt voru:    Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  Forseti lagði fram tillögu um að fella niður annan lið dagskrá um aðalskipulag á Lambleiksstöðum, síðari umræða.

1.        Fundargerðir

·         Bæjarráð Hornafjarðar 495. fundur , 8. mars 2010.

Halldóra Bergljót fjallaði um þriðja lið á dagsskrá er varðar rafræna skjalavörslu vakti hún máls á því að hún hafi lagt til hvað þurfi að gera til að vista rafræn skjöl á landsvísu hér í Sveitarfélaginu Hornafirði og ræddi um að þetta gæti verið fyrsti vísir að gagnaveri.  Benti hún á að hægt væri að vinna þessa vinnu á Höfn, taldi hún upp ýmsa punkta upp úr bréfinu og vísaði í þætti sem styðja við slíka starfsemi á Höfn. Spurði hún bæjarstjóra hvað gert hefði verið í þessum málum.  Halldóra benti einnig á að tímasetning heimsóknar þjóðskjalavarðar væri ekki góð þar sem bæjarfulltrúar væru að tapa umboði sínu rétt fyrir kosningar.  Halldóra spurðist einnig fyrir um í hvaða stöðu skipulagsmál við Jökulsárlón væri, taldi hún mikilvægt að deiliskipuleggja svæðið þannig að hægt væri að hefja uppbyggingu.  Einnig ræddi hún um að endurskoða þurfi aðalskipulag sveitarfélagsins en það hafi ekki verið gert í tíu ár. 

Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála um skjalavörslu.  Hann taldi vel mögulegt að hægt væri að sinna þessu verkefni í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Hann gerði einnig grein fyrir stöðu mála við deiliskipulag á Jökulsárlóni, mikilvægt er að skipuleggja svæðið áður en framkvæmdir á svæðinu verði heimilaðar.  Hjalti fjallaði einnig um fjórða og fimmta lið fundargerðarinnar er snúa að skólamálum og þeirri vinnu sem nú fer fram hjá sveitarfélaginu, verið er að greina starfsemi skólanna og taldi hann þá vinnu vera góða og mun sú greining koma fljótlega til kynningar í bæjarráði.

Björn Ingi fjallaði um 11. lið og gerði sérstaklega að umtalsefni aðstöðuhús við gervigrasvöll, taldi hann að sveitarfélagið hefði átt að byggja húsið í stað þess að kaupa gám.  Þegar vinnuástand er erfitt eins og í dag skiptir máli að skapa sem mesta vinnu í heimabyggð sem skilar sér í auknum útsvarstekjum og að virðisaukaskattur er greiddur til baka af vinnu sem unnin er á staðnum.  Taldi hann að mismuninum um sextánhundruðþúsund væri réttlætanlegur þess vegna.

Elín fjallaði um að ásýnd bæjarins væri slæmt m.a. vegna þess að hundaeigendur hirtu ekki nægjanlega upp eftir hunda sína.

Hjalti tók undir orð Elínar og benti á að allir ættu að taka höndum saman um að halda bænum okkar eins snyrtilegum og hægt er.  Einnig tók Hjalti undir sjónarmið Björns Inga um að koma sem flestum verkefnum sem hægt er að vinna í heimabyggð, það þurfi að skoða í hvert og eitt skipti.

Sigurlaug vakti máls á málþingi sem haldið verður 20. apríl nk í tilefni af Degi umhverfisins þar sem umhverfisviðurkenning verður veitt sagði hún að á málþinginu verði fjallað um utanvegaakstur og deiliskipulag og hvernig það tengist umhverfinu.  Sigurlaug fjallaði einnig um endurskoðun aðalskipulags og taldi hún að það þurfi í raun að vinna betur að stefnumótun í þeirri vinnu.

Halldóra Bergljót ítrekaði skoðun sína á málinu og upplýsti hún um vinnuferlið þar sem skipaður var starfshópur um verkefnið.

Árni fjallaði um skipulagsmál og fagnaði því að unnið sé að deiliskipulagi við Jökulsárlón og að mikilvægt væri að sú vinna haldi áfram.  Árni taldi mikilvægt að taka upp skipulagið frá grunni og þannig móta nýja stefnu til framtíðar.  Hann benti einnig á að ekki er möguleiki að sjá allt fyrir og því mikilvægt að sveitarfélagið verði opið fyrir því að skoða skipulagsmál með framkvæmdaaðilum sem koma með óskir um starfssemi í sveitarfélaginu.  Árni gerði að umtalsefni sínu frumvarp um landsskipulag væri í endurskoðun hjá löggjafavaldinu og reifaði hann athugasemdir sem komið hafa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.  Í því ljósi er mikilvægt að fylgjast náið með framvindu þeirra mála við endurskoðun á aðalskipulagi.

Sigurlaug fagnaði orðum Árna um að það þurfi að fara með nýja hugsun í endurskoðunarvinnu við aðalskipulag og benti á að starfshópurinn átti ekki að ræða um einstakar breytingar á aðalskipulagi heldur heildstætt af stefnumótum aðalskipulagsins.

Árni taldi mikilvægt að fá hugmyndir fólksins fram fyrr í endurskoðunarferlinu.

Hjalti benti á að ekki væri hægt að sjá allt fyrirfram og benti á að hitaveita og vatnsveita væri gott dæmi um það.  Nýlega hafa fyrirtæki óskað eftir samstarfi um vatnsveitu úr Grjótbrúarlind sem erfitt væri fyrir hvaða stýrihóp að sjá fyrir.  Hann benti einnig á þá vinnu sem fram fór í nefndum sveitarfélagsins og áætlun um að fá ráðgjafa að undirbúningi íbúafundar sem kostaði 4 – 5 m.kr.  Hjalti var ánægður með þá umræðu sem fram hefur farið um aðalskipulagsmál og hversu gott tæki það væri til stefnumótunar um samfélagið í heild sinni.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar 496. fundur , 15. mars 2010.

Hjalti gerði grein fyrir heimsókn bæjarráðs til Skagafjarðar þar sem undirrituð var viljayfirlýsing um samstarf er snýr að nýsköpun og uppbyggingu þekkingarstarfs.

Halldóra Bergljót óskaði eftir skýringum á þeim ágreiningi sem að fyrri ræðumenn nefndu. Benti á að aðalskipulag hafi ekki verið endurskoðað frá því að sjálfstæðismenn voru við stjórnvölinn í byggingar- og skipulagsnefnd. Benti hún á að gott samstarf hafi verið haft við íbúa þegar aðalskipulagið var unnið í upphafi.  Halldóra ræddi um mikilvægi þess að eiga gott samstarf við íbúa við skipulagsgerð.  Hún óskaði einnig eftir skýringum á þriðja lið byggingar- og skipulagsnefndar um veglínu yfir Skeiðarársand og hvar það mál væri statt.  Einnig óskaði hún eftir upplýsingum á tíunda lið byggingar- og skipulagsnefndar um gróðurhýsi í Stafafellsfjöllum og máli þeim tengdum.  Einnig ræddi hún nýtt kirkjugarðsstæði.  Hún gerði athugsemd við tengibyggingu við Lönguhóla þar sem ekki væri búið að marka stefnu um framtíðar skipan í leikskólamálum og því væri varhugavert að byggja við leiksólann áður en sú stefna verði mörkuð í þessum efnum.  Halldóra benti á að heppilegt hefði verið að fara í stefnumótum með íbúum um framtíðarskipan leikskólamála.  Halldóra benti á tæknilegan þátt er varðar útboðsgögn um verklok.  Halldóra fjallaði einnig um þjónustusamning milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Markaðsstofu Suðurlands fyrir árið 2010 og benti hún á kostnað sem þessu fylgir, óskaði hún eftir upplýsingum um hvað sveitarfélagið hefði upp úr samstarfinu og af hverju stærstu sveitarfélagin væru ekki með.  Halldóra sagði að landsskipulag leggist illa í sig og vonist til þess að það verði ekki samþykkt þar sem verið væri að færa skipulagsvald frá sveitarfélagi til ríkisvaldsins.  Að lokum fagnaði hún samstarfi við Skagafjörð og aðila þaðan. 

Árni Rúnar upplýsti um bréf frá Fornleifavernd um veglínu á Skeiðarársandi sem snýr að syðstu leiðinni sem kynnt hefur verið fyrir byggingar- og skipulagsnefnd.  Árni benti á að umsókn um gróðurhýsi hafi ekki verið í samræmi við byggingarskilmála svæðisins og því var henni hafnað.  Árni taldi mikilvægt að skoða skipan skólamála í heild sinni.

Hjalti Þór gerði grein fyrir afstöðu sinni gagnvart aðalskipulagi.  Hjalti ræddi vegstæði í Öræfum. Hann gerði einnig grein fyrir málefni gróðurhýsis í Stafafellsfjöllum og þeim farvegi sem málið væri nú í.  Hjalti gerði grein fyrir því að tengibygging við Lönguhóla væri byggð til að koma til móts við ríkjandi lög. Taldi hann mikilvægt að móta framtíðarstefnu um leikskólastarf  með starfmönnum, íbúum, nefndum o.fl aðilum.   Hjalti þakkaði fyrir ábendingar um dagsetningar í útboðsgögnum.  Hjalti gerði grein fyrir hagsmunum sem felast í Markaðsstofu Suðurlands og benti á bókun bæjarráð um málið.  Hjalti fjallaði um landskipulag og gerði grein fyrir samstarfi við Sambands íslenskra sveitarfélaga og las upp úr fimmta kafla álits Sambands íslenskra sveitarfélaga um landsskipulag og sjálfsákvörðunarrétt sveitafélaga. 

Reynir fjallaði um að ábyrgð á endurskoðun aðalskipulags hafi verið á herðum þáverandi bæjarstjórnar sem sat árið 2002 – 2006.

Halldóra fjallaði áfram um skipulagsmál, skólamál og veglínu yfir Skeiðarársand. 

Reynir stendur við fyrri orð um ábyrgð bæjarfulltrúa.  Reynir benti á að ýmislegt misferst í máli manna. 

Hjalti ræddi um veglínu austan Skeiðarár.  

Árni Rúnar tók undir með forseta að ábyrgð hvíli fyrst og fremst á herðum bæjarstjórnar um hvort endurskoðun aðalskipulags fari fram eða ekki.

Halldóra fjallaði áfram um leikskólamál.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar 497. fundur, 22. mars  2010.

Hjalti Þór upplýsti um bréf frá Kvenfélaginu Vöku um endurbætur á Mánagarði.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarstjórn Hornafjarðar 152. fundur, 4. mars  2010, áður samþykkt.       

2.        Ársreikningur HSSA


Hjalti gerði grein fyrir ársreikningi HSSA, reikningurinn sýnir að reksturinn er í föstum skorðum þrátt fyrir hagræðingu.  Hjalti þakkaði stjórnendum, starfsfólki og heilbrigðis- og öldrunarráði fyrir gott starf.

Halldóra lýsti ánægju sinni með hversu snemma reikningurinn skilar sér sem hún hafi lagt áherslu á í nokkur ár.  Hún benti á að reikningar væru mikilvægt stýritæki fyrir reksturinn og því gott að fá hann fram snemma ár hvert.  Halldóra þakkaði einnig stjórnendum fyrir gott starf.  Halldóra fjallaði einnig um nokkrar lykilstærðir ársreikningsins.  Halldóra benti á það verði að fylgjast vel með að hagræðing komi ekki til með að skerða þjónustu og við verðum að berjast fyrir því að svo verði ekki.  Hún taldi mikilvægt að málaflokkurinn haldi áfram að vera á forræði sveitarfélagsins.

Reynir þakkaði einnig stjórnendum og starfmönnum fyrir vel unnin störf.  Hann benti á að reksturinn sýni það að fjármunum sé vel varið með þeim núverandi rekstrarfyrirkomulagi og það styrki stöðu sveitarfélagsins um að sækja fjármagn inn í reksturinn í framtíðinni.

Hjalti tók undir með Reyni og Halldóru um reksturinn. Hjalti notaði tækifærið og þakkaði öðrum starfmönnum sveitarfélagsins fyrir vel unnin störf á þeim þrengingartímum sem nú ganga yfir.  Hjalti tók undir með Halldóru að verja þarf þá þjónustu sem til staðar er í dag. 

Árni Rúnar tók undir með öðrum bæjarfulltrúum og þakkaði stjórnendum, starfmönnum og stjórn HÖR fyrir vel unnin störf.  Hann tók einnig þau orð Halldóru að verja þurfi þá þjónustu sem nú er til staðar.

 

3.        Fyrirspurnir  

Þær hafa ekki borist.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18.50


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica