Fundargerð bæjarstjórnar 167
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 7. apríl 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Lovísa Bjarnadóttir og Guðrún Ingimundardóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
1. Fundargerðir bæjarráðs (upptaka)
· Fundargerð bæjarráðs 536. fundur
Ásgrímur fjallaði um hreinsunarviku sveitarfélagsins, gerði hann grein fyrir fyrirkomulagi vikunnar og góðar undirtektir lögbýlishafa um losun á brotajárni. Ásgrímur þakkaði fyrir stuðning sveitarfélagsins við Ungmennafélagið Sindra
Reynir fjallaði um undirbúning flutnings á Gömlu búð á Hafnarvík – Heppu svæðið, gerði hann grein fyrir samningi við ráðgjafa er varðar deiliskipulag á svæðinu og að vinna við deiliskipulagið er hafið.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð bæjarráðs 537. fundur
Lovísa spurði hvenær boðið verði út endurbætur á utanhússklæðningu og endurbótum á Heppuskóla.
Hjalti gerði grein fyrir undirbúningi á verkefninu endurbætur á Heppuskóla, sagði hann að útboðsgögn liggi fyrir og verða þau tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs. Hjalti fjallaði um gerði grein fyrir áframhaldandi úrvinnslu gagna sem lágu fyrir eftir íbúaþingið.
Ásgrímur fjallaði um íbúaþingið og gerði grein fyrir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um að allir fimmtudagar verði gerðir að bíllausa deginum, þannig leggja íbúar sveitarfélagsins sitt af mörkum er varðar orkusparnað.
Reynir ræddi málefni tónskóla og umræður um flutning framhaldskennslu eldri nemenda frá sveitarfélögum yfir til ríkisins.
· Fundargerð bæjarráðs 538. fundur
Guðrún Ingimundardóttir fjallaði um lokun sorpbrennslustöðvarinnar í Öræfum og spurðist fyrir um hvar sóttmengaður úrgangur HSSA verði brenndur.
Ásgerður gerði grein fyrir því að eftir eigi að leysa það mál.
Hjalti gerði grein fyrir niðurstöðum rannsókna á landbúnaðarafurðum í Svínafelli í Öræfum, sagði hann að allar niðurstöður væru jákvæðar fyrir landbúnað svæðisins, þar sem engin mengun fannst í landbúnaðarvörunum.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 539. fundur
Guðrún Ingimundardóttir fjallaði um leikskólamál í sveitarfélaginu
Lovísa fjallaði um nýjar reglur um leikskólapláss á Hornafirði. Fjallaði hún einnig um auglýsingu um kennarastöðu fyrir skólaárið 2011 – 2012 og spurðist fyrir um hvort einhver væri búinn að sækja um stöðu og hvernig tekið verði á húsaleigustyrk ef ráðin verður kennari utan sveitarfélagsins.
Hjalti svaraði því að engar umsóknir hafi borist, gerði hann einnig grein fyrir því hvernig tekið verði á flutningsstyrk komi til þess að kennari utan sveitarfélagsins verði ráðin til starfa. Hjalti ræddi skýrslu um leikskólamál, gerði hann grein fyrir niðurstöðu skýrslunnar og þróun leikskólamála síðastliðin ár
Ásgerður fjallaði um skýrslu um leikskólamál, gerði hún grein fyrir þrem þáttum sem sérstaklega á að skoða. Ásgerður einnig grein fyrir störfum rýnihópsins.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð bæjarráðs 540. fundur
Hjalti fjallaði um samning við Ríki Vatnajökuls. Fjallaði hann einnig um gerð samnings við Björgunarfélag Hornafjarðar. Hjalti ræddi um Hafnarvík – Heppu og flutning Gömlubúðar og uppbyggingu Miklagarðs.
Fundargerð samþykkt samhljóða
2. Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði síðari umræða. (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir helstu breytingum á samþykktinni. Lagði hann til að samþykktin verði samþykkt. Gerði hann einnig grein fyrir ábendingum sem bárust.
Reynir spurðist fyrir um hvort Djúpivogur þurfi að breyta sinni samþykkt.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við sveitarfstjóra Djúpavogshrepps.
Samþykkt samhljóða.
3. Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið. (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum á reglunum. Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar.
Guðrún Ása spurðist fyrir um reglurnar.
Hjalti svaraði fyrirspurninni.
Samþykkt samhljóða.
4. Reglur um úthlutun leiguíbúða. (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir reglunum. Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar.
Lovísa gerði athugasemdir við reglurnar.
Hjalti ræddi umfjöllun félagsmálaráðs og bæjarráðs um reglurnar. Hjalti gerði grein fyrir því að um er að ræða nýjar reglur og að bæjarstjórn þurfi að vera tilbúin að gera breytingar á reglunum ef þær reynast ekki nægjanlega traustar.
Samþykkt samhljóða
5. Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2011. (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum. Hjalti lagði til að endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir HSSA 2011 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
6. Ársreikningur 2010 fyrri umræða.
Hlynur Sigurðsson og Sigurjón Örn Arnarson endurskoðendur fylgdu ársreikningi úr hlaði.
Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins, núverandi bæjarstjórn og síðustu bæjarstjórn fyrir góða vinnu. Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs.
Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri nam 261 milljónum króna sem er 26 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst frá fyrra ári sökum hækkunar á tryggingargjaldi og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.319 milljónum króna í árslok 2010 og lækkuðu um 127 milljónir króna á árinu. Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.163 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 61,9%.
Í máli endurskoðenda kom fram að samkvæmt samþykktum áætlunum getur sveitarfélagið staðið við áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun fyrir árin 2011-2014 án þess að til lántöku komi á næstu árum. Það væri til vitnis um fjárhagslegan styrk þess.
Forseti lagði til að ársreikningum yrði vísað til síðari umræðu.
Samþykkt samhljóða.
7. Kosningar (kosningar)
Ásgerður las upp tillögu um skipan í almannavarnarnefnd.
Björn Ingi Jónsson sem verður formaður og Reynir Arnarson til vara.
Hjalti Þór Vignisson sem verður varaformaður og Ásgerður Gylfadóttir til vara.
Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður og Ingólfur Guðni Einarsson til vara.
Guðrún Júlía Jónsdóttir aðalmaður og Ester Þorvaldsdóttir til vara
Páll Björnsson sem aðalmaður
Samþykkt samhljóða.
8. Fyrirspurnir – bæjarstjórn
Þær hafa engar borist.
Fundi slitið kl. 20.00


