Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 170

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 11. ágúst 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.

 

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.

 

Einnig: Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.

1.      Fundargerðir bæjarráðs (útsending)

·         Fundargerð bæjarráðs 549. fundur

Ásgrímur tók til máls og ræddi skipulagsmál, Hafnarvík – Heppu,  og fyrirhugaðan flutning Gömlubúðar á Hafnarsvæði.

Árni Rúnar ræddi sama mál og einnig tillögur Vegagerðarinnar um Hringveg 1 um Hornafjarðarfljót. Hann taldi afar brýnt að komin væri einhver hreyfing á það mál og óskaði upplýsinga um hvort umrædd leið kallaði á einhverja skipulagsvinnu af hálfu sveitarfélagsins.

Björn Ingi ræddi tilboð í skólaakstur og bókun í bæjarráð við afgreiðslu málsins sem hann taldi að hefði þurft að vera nákvæmari. Fram hefði þurft að koma við hvern var samið og hver staða tilboðs var með tilliti til kostnaðaráætlunar. Einnig ræddi hann hlutverk ríkisins gagnvart námi fatlaðs nemanda á framhaldsskólastigi og varaði við því að sveitarfélagið taki á sig kostnað þess vegna. Hann ræddi hringveginn um Hornafjarðarfljót og almenningssamgöngur á Suðurlandi.

Reynir ræddi einnig bréf Vegargerðarinnar vegna hringvegarins um Hornafjarðarfljót og greindi frá fundi bæjarfulltrúa og bæjarstjóra með starfsmönnum Vegagerðarinnar.  Einnig ræddi hann hvort breyta þyrfti aðalskipulagi vegna tengivegar á Mýrum og taldi hann svo ekki vera.  

Haukur Ingi greindi frá því að Guðlaugur Þorsteinsson, fyrir hönd Fallastakks ehf., hefði verið með lægra tilboðum af þeim tveimur sem buðu í verkið og að það hafi verið allnokkuð undir kostnaðaráætlun. Einnig ræddi hann almenningssamgöngur á Suðurlandi og þakkaði Birni Inga fyrir hans störf vegna þess máls. Einnig ræddi hann hringveginn um Hornafjarðarfljót og taldi ekki þurfa að koma til breytinga á skipulagi hans vegna.
Fundargerð samþykkt samhljóða

·         Fundargerð bæjarráðs 550. fundur

Kristján tók til máls og ræddi niðurstöður íbúaþings sem legið hefðu fyrir sl. vor. Batt hann miklar vonir við að sú vinna muni skila okkur fram á við á margan hátt, svo sem við stefnumótun o.fl. Einnig ræddi hann þá vinnu sem hafin er í atvinnu- og menningarmálanefnd og byggja á niðurstöðum íbúaþings.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

·         Fundargerð bæjarráðs 551. fundur

Björn Ingi ræddi viðbrögð við rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl í júlí. Hann sagði að halda þyrfti utan um hvert raunverulegt tap hafi orðið vegna þess tíma þegar vegurinn var lokaður. Hann taldi þetta örugglega gerst aftur og því væru slíkar upplýsingar mikilvægar.

Reynir tók undir orð Björns Inga um þakkir til þeirra sem komu að því verki að opna veginn aftur.  Þá ræddi hann röskun á áætlunum sem orðið geta á þessum háannatíma ferðamennskunnar á Íslandi og þau áhrif sem þetta getur haft á ferðir fjölda fólks. Hann taldi að ekki hafi í upphafi þurft að nefna neinn tíma um hversu langan tíma það tæki að lagfæra brúna við Múlakvísl.

Haukur Ingi greindi frá samtali við framkvstj. Ríkis Vatnajökuls vegna sama máls og að gögn um ferðaþjónustu í sveitarfélaginu yrðu tekin saman í haust.

Árni Rúnar ræddi sama mál og tók undir  þakkir til þeirra sem komu að framkvæmdum og ferjuflutningum yfir Múlakvísl. Hann ræddi einnig möguleika á að sambærileg atvik gætu gerst aftur og mikilvægi þess að til staðar verði viðbragðsáætlun við slíkri vá. Hann ræddi þá umræðu sem fór af stað í kjölfar hamfaranna og ummæla samtaka ferðaþjónustunnar á landsvísu sem hann taldi ekki hafa verið til bóta nema síður væri.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

·         Fundargerð bæjarráðs 552. fundur

Reynir ræddi samþykkt bæjarráðs Hornafjarðar um þakkir til Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við Múlakvísl. Lagði hann til að bæjarstjórn gerði þessa bókun bæjarráðs að sinni.

Árni tók undir orð Reynis um þakkir til Vegagerðarinnar.

Reynir kom upp og greindi frá hvaða hluta bókunar bæjarráðs hann vildi gera að bókun bæjarstjórnar.

Björn Ingi tók undir orð Reynis. Einnig ræddi hann stofnanir á vegum ríkisins sem hér eru til staðar og mikilvægi þeirra fyrir okkar samfélag. Þær megi ekki hverfa í þeim þrengingum sem eru við fjárlagagerð ríkisins.

Árni tók undir orð Reynis um tillögu að bókun. Einnig ræddi hann orð Björns Inga um stofnanir á vegum ríkisins sem hér eru og mikilvægi þeirra. Þá ræddi hann niðurskurð við fjárlagagerð ríkisins og tók undir þau orð að við verðum að halda vöku okkar til að tryggja áframhaldandi tilvist þessara stofnana hér í sveitarfélaginu. Hann lagði áherslu að aukin verkefni til sveitarfélaga muni til lengri tíma litið styrkja stoðir samfélagsins mest, ekki síst á landsbyggðinni.

Reynir gerði að umtalsefni þær stofnanir sem um er rætt og greindi frá fundi með mennta- og menningarmálaráðherra og umhverfiráðherra um þær o.fl. mál. Miðað við orð ráðherra taldi hann að máliðfengi jákvæðar undirtektir.

Haukur Ingi fór yfir mál umræddra stofnana og stöðu þeirra og þá vinnu sem er í gangi og fyrirhuguð. Lagði hann áherslu á mikilvægi þeirra fyrir samfélagið.

Árni tók undir þau orð að stofnanirnar skipti miklu máli. Hann lagði áherslu á að sýna þurfi fram á hverju þessar stofnanir skili til baka, rökstuðningur þar að lútandi þurfi að liggja fyrir, hann væri örugglega hægt að koma með.

Björn Ingi ræddi auglýsingu eftir fjármálastjóra fyrir Vatnajökulsþjóðgarð og það að enginn hafi verið ráðinn til starfsins, enginn hafi verið talinn hæfur. Þótti honum það einkennileg niðurstaða. Björn Ingi fagnaði niðurstöðum mælinga á díoxíði í nágrenni Brennu-Flosa.

Forseti bar tillögu Reynis undir atkvæði og var hún samþykkt  samhljóða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

·         Fundargerð bæjarráðs 553. fundur

Kristján ræddi ákvörðun Ungmennafélags Íslands um  að halda Ungmennalandsmót 2013. Lagði hann áherslu á ýmis verk sem vinna þurfi vegna þessa móts.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Fundargerð bæjarstjórnar, 169. fundur áður samþykkt.

Árni Rúnar óskaði  eftir útskýringum á ósamræmi á milli orða bæjarstjóra á fundinum og bókunar meirihluta bæjarstjórnar um sjávarútvegsmál.  Útskýrði hann hvað hann ætti við og beindi hann orðum sínum til oddvita meirihlutans.

Reynir sagðist ekki hafa margt um þetta að segja, sagði bókun bæjarstjórnar standa.  Benti hann á að endurskoðunarfyrirtækið KPMG vinni að úttekt á báðum frumvörpunum að beiðni bæjarráðs og sé niðurstöðu að vænta á næstu dögum.  Þá sagði hann að bæjarstjóri fengi tækifæri til að útskýra sín orð. 

Árni Rúnar sagðist ekki skilja orð Reynis öðruvísi en svo að ákveðinnar ónákvæmni gætti í bókuninni.

Ásgrímur benti á að Samfylkingin hefði ekki tekið undir bókunina. Það væri öfugt við það sem víða heyrðist frá Samfylkingunni á landsbyggðinni, þingmenn og bæjarfulltrúar, sem legðist gegn þessum frumvörpum um sjávarútvegsmál.

 

 

 

2.      200901107 – Fyrirspurnir – bæjarstjórn (útsending)

Bæjarstjórn Hornafjarðar

Fundur  11.08.2011

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, lét nýverið þau orð falla að sveitarfstjórnarmenn teldu að fjármagna þyrfti nýgerða kjarasamninga með uppsögnum á starfsfólki.  Í ljósi þeirra orða er spurt hvort athugun hafi verið gerð á því hvort til uppsagna þurfi að koma hjá Sveitarfélaginu Hornafirði vegna nýgerðra kjarasamninga.

Árni Rúnar Þorvaldsson

Haukur Ingi fór yfir svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:

Starfsmenn fjármáladeildar hafa yfirfarið hlutfall launa og skatttekna fyrir árið 2010.  Jafnvægi er á milli útsvarstekna og launa  og miðað við óbreytt atvinnuástand bendir allt til þess að hækkun launakostnaðar sveitarfélagsins verði fjármagnað með samsvarandi hækkun útsvarstekna.  Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur undanfarin ár lagt áherslu á að verja störf í sveitarfélaginu og mun gera það áfram.  Vinna við fjárhagsáætlun 2012 er að hefjast, þar sem ákvarðanir um rekstur Sveitarfélagsins verða teknar. 

Árni Rúnar þakkaði Hauki Inga fyrir greinargóð svör og benti á að orð formanns sambandsins ættu ekki við hér.  

Fundi slitið kl. 17:40

 


Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica