Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 175

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 12. janúar 2012, kl. 16.15 í Ráðhúsi.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Arna Harðardóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs, Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri, fræðslu – og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri.

Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.   

1.    Fundargerðir bæjarráðs  (útsending)
•    Fundargerð bæjarráðs 570. fundur
Árni Rúnar fjallaði um heimaþjónustudeild og undirbúning að uppbyggingu hennar.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

•    Fundargerð bæjarráðs 571. fundur
Hjalti vék af fundi undir þessari fundargerð.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

•    Fundargerð bæjarráðs 572. fundur
Kristján fjallaði um fyrirhugaða gjöf Skinneyjar Þinganes er varðar  uppbyggingu íþróttahús yfir gervigrasvöll undir Garðshól.  
Árni Rúnar fjallaði um skólamál, ræddi hann um árangur í samræmdum könnunarprófum og nýja námsskrá.  Ræddi hann einnig um uppbyggingu á gagnaveri og verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn.
Reynir fjallaði um verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn.
Hjalti fjallaði um verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn og gerði grein fyrir ótryggum gæðum á vatni úr Grjótbrúarlind.  Einnig fjallaði hann um uppbyggingu á gagnaveri í sveitarfélaginu.
Björn Ingi ræddi skólamál, fjallaði um námsárangur nemenda í samræmdum könnunarprófum.  Fjallaði hann einnig um bókun bæjarráðs er varðar samgönguáætlun.  Björn Ingi ræddi einnig uppbyggingu knatthúss á Höfn.
Hjalti svaraði fyrirspurn Björn Inga um bókun bæjarráð er varðar samgönguáætlun.  Ræddi hann um nýtingu á knatthúsi á Höfn sem getur nýst sem fjölnotahús.  
Fundargerð samþykkt samhljóða.

•    Fundargerð bæjarráðs 573. Fundur
Hjalti fjallaði gerði grein fyrir málefnum Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Björn Ingi fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.  Ræddi hann einnig um úthlutun byggðakvóta.
Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Reynir fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings. Ræddi hann einnig um úthlutun byggðakvóta.

Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Hjalti Þór fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.  
Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Björn Ingi fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Fundargerð samþykkt samhljóða

•    Fundargerð bæjarstjórnar, 174. fundur áður samþykkt.
Til kynningar.
 
2.    Þriggja ára áætlun 2013 – 2015 – síðari umræða  (útsending)
Hjalti fylgdi áætlun úr hlaði, sagði hann að engar breytingar hafi verið gerðar á þriggja ára áætlun milli umræðna.

Kom fram að niðurstaða samstæðu fyrir A og B hluta væri eins og eftirfarandi tafla sýnir fyrir.
    2013    2014    2015
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)    128    128    129
Skuldir í hlutfalli af tekjum    74%    70%    69%
Framkvæmdir (m.kr.)    226    141    140
Handbært fé frá rekstri (m.kr.)    257    260    262
Handbært fé í árslok (m.kr.)    106    117    182
Afborganir langtímal. (m.kr.)    -103    -107    -108
Ný lántaka (m.kr.)    50        50
Samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.

3.    Kosningar í nefndir   (útsending)
Ásgerður sagði að Guðrún Ása Jóhannsdóttir hafi óskað eftir árs leyfi frá störfum í bæjarstjórn.  Þá komi Valdemar Einarsson inn í hennar stað og Grétar Már Þorkelsson verði 2. varamaður.  Valdemar Einarsson verður varamaður Björns Inga Jónssonar í bæjarráði.  Lovísa Bjarnadóttir verður aðalmaður í stjórn HSSA og Vignir Júlíusson til vara.   Bergþóra Ágústsdóttir verði annar aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Forseti óskaði eftir athugasemdum.  Þær voru engar og voru þær samþykktar samhljóða.

4.    Deiliskipulag vegna íþróttahús undir Garðshól   (útsending)
Arna Harðardóttir fylgdi málinu úr hlaði um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingar knatthús við Garðshól.  Vilji er til þess hjá Skinney Þinganes að byggja húsið á sinn kostnað en afhenda síðan sveitarfélaginu að gjöf að því loknu.  Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að mænishæð geti mest verið 12 metrar en hús sem verið er að skoða rís hærra eða í 13,7 metra.  Á hinn bóginn er húsið sem er til skoðunar með mun lægri útveggi en það sem núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir sem kemur þá að einverju leiti til móts við hækkun á mænishæð.

Árni Rúnar fjallaði um deiliskipulagið og siðferðisleg álitmál sem málinu tengjast.
Hjalti ræddi um knatthúsið, ný sveitarstjórnarlög og siðareglur sveitarfélaga.
Reynir fjallaði um knatthúsið.  
Árni Rúnar fjallaði um gjöfina.  
Forseti bar tillögu um að vísa deiliskipulaginu í lögformlegt ferli.
Samþykkt samhljóða.

5.    Lýsing – undirbúningur að deiliskipulagi við Jökulsárlón  (útsending)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Sagði hann að um væri að ræða fyrsta skref í undirbúningi að deiliskipulagi fyrir Jökulsárlón, búið er að auglýsa lýsingu að höfðu samráði við Skipulagsstofnun, engar athugasemdir eða ábendingar bárust  við lýsinguna.  Lagði hann til að bæjarstjórn samþykki framlagða lýsingu.
Samþykkt samhljóða

6.    Fyrirspurnir bæjarstjórnar.
Engar  


Fundi slitið kl. 17.30


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica