Fundargerð bæjarstjórnar 188
188. fundur
188. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 7. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , upplýsinga og gæðastjóri.
Dagskrá:
|
1. |
Fundargerðir (upptaka) |
|
|
Björn Ingi bað um upplýsingar um 3. lið um framgang við gerð nýrrar sýningar við Gömlubúð, hvernig málin hafa þróast í þeirri vinnu. Hjalti gerði grein fyrir að hann var á fundi stjórnar Vatnajökulsþjóðgars í vikunni og þar kom fram að aðalverkefni stjórnar er að setja upp sýningu í Gömlubúð. Einnig kom fram starfstöð þjóðgarsins verður í Gömlubúð. Ásgrímur Ingólfsson spurði hver myndi standa að kostnaði við sýninguna mun falla á Vatnajökulsþjóðgarðs, Hjalti staðfesti að Vatnajöklulsþjóðgarður muni standa straum að henni. Árni Rúnar fagnaði þeirri starfsemi sem fer fram hjá Vatnajökulsþjóðgarði og benti á að stjórn þjóðgarsins hefur auglýst eftir nýjum starfsmanni á Höfn. Árni Rúnar þakkaði bæjarstóra fyrir störf sín í þágu stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 615 |
||
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 616 |
||
|
Valdemar fjallaði um lið nr. 12 framvæmdir við Miðós og benti á að búið væri að samþykkja framkvæmdir sem ekki hafa verið teknar fyrir í nefnd. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 617 |
||
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 618 |
||
|
Björn Ingi tók til máls undir 7. lið og bað um upplýsingar um jarðhitaleit RARIK í Hoffelli, hvort það væri von á heitu vatni til Hafnar og hvort það væru komnar dagsetningar. Hjalti gerði grein fyrir hvernig borun við Hoffell hefur gengið. Árni Rúnar tók til máls undir 4. lið og benti á að það væri mikilvægt að ganga frá svæðinu þar sem Gamlabúð stóð þar sem unglingalandsmót mun fara fram á Höfn næsta sumar. Einnig benti hann á að lóð við Hafnarbraut 38 mætti einnig lagfæra. Hann þakkaði einnig umræðu um jarðhitaleit í Hoffelli og benti á að það væri gott að vera hóflega bjartsýn í þessu stóra hagsmunamláli íbúa sveitarfélagsins. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 619 |
||
|
Björn Ingi tók til máls undir 6. lið fund umhverfis og skipulagsnefndar nr. 36 um vinnu við deiliskipulag við Jökulsárlón og sagðist vera undrandi á hegðun Vegagerðarinnar í málinu og sagði að sveitarfélagið væri ekki að beita sér nægilega vel í málinu við Vegagerðina. Björn Ingi benti á að þetta væri ein mesta náttúruperla landsins. Hjalti Þór tók einnig til máls um málefni Jökulsárlóns. . Árni Rúnar tók einnig til máls undir þessum lið og tók undir að vinnubrögð Vegagerðarinnar hafi ekki verið nógu góð. Björn Ingi tók aftur til máls undir þessum lið. Ásgrímur tók einnig til máls undir þessum lið og sagði að garður sem Vegagerðin leggur til að verði settur sé erfitt að víkja undan og það sé nauðsynlegt að leysa málið eins fljótt og hægt er því ágangur ferðamanna er orðin mikill á svæðinu og þjónustu við þá skortir tilfinnanlega. Árni Rúnar tók aftur til máls undir þessum lið og tók undir orð Ásgríms og ræddi um hve mikilvægt væri að koma málinu áfram vegna ferðamanna og þjónustu við þá. Árni Rúnar taldi vinnubrögð Vegagerðarinnar tefja fyrir uppbyggingu og framkvæmdum á Jökulsárlóni. Þannig væri Vegagerðin farin að standa í vegi fyrir framþróun í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
Bæjarráð Hornafjarðar - 620 |
||
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
Ábyrgðaryfirlýsing sveitarfélagsins vegna lokunar urðunarstaðar við Svínafell (upptaka) |
|
|
Hjalti Þór gerði grein fyrir málinu og las upp drög að ábyrgðaryfirlýsingu um lokun urðunastaðar að Svínafelli. Ábyrgðaryfirlýsing samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
3. |
Reglur um refa- og minkaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði (upptaka) |
|
|
Ásgrímur Ingólfsson kynnti málið og greindi frá nýjum reglum sveitarfélagsins um refa og minnkaveiðar. Hann gerði grein fyrir helstu breytingum í nýju reglunum. Samþykkt samhjóða. |
||
|
|
||
|
4. |
Skipulag safna- og menningarmála (upptaka) |
|
|
Hjalti Þór gerði grein fyrir málinu og lagði fram eftirfarandi tillögu. § Sett verði á laggirnar ný safnastofnun þar sem verða þrjár deildir: bókasafn, skjalasafn og byggðasafn. Bæjarstjóri verði yfirmaður þessa forstöðumanns. § Menningarmiðstöðin beri ábyrgð á Listasafni og þróun skapandi greina. Þannig verði markmiðið sem upphaflega var ætlað MMH vera í forgrunni, þ.e. að setja upp sýningar og þróa þær jafnframt því að leggja áherslu á þróun handverks á svæðinu. Með þessu er áhersla á myndlistarsýningar og þróun skapandi greina. Bæjarstjóri verði yfirmaður forstöðumanns Menningarmiðstöðvar. Einungis forstöðumaður verður starfsmaður Menningarmiðstöðvar.
Björn Ingi gerði grein fyrir skoðun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og lagði fram eftirfarandi bókun. Við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins teljum að þær breytingar sem hér eru til umræðu séu gerðar á röngum forsendum og til þess fallnar að skaða starfsemina þegar til lengri tíma litið. Það liggur fyrir að undirrót þessara breytinga eru ákveðin vandkvæði tengd starfsmönnum og við teljum að réttara hefði verið að taka á þeim málum sérstaklega í stað þess að fara þá leið að skipta upp starfseminni og setja þar með ákveðna þætti í rekstrinum í uppnám. Áður en farið er í jafn viðamiklar breytingar á starfsemi sem þessari er eðlilegt að hún fái vandaða umfjöllum hjá viðkomandi aðilum og í nefndum og ráðum í sveitarfélaginu. Ekki liggur fyrir heilstætt kostnaðarmat vegna þessara breytinga, né nákvæm skipting á einstökum þáttum í starfseminni. Vinnubrögð sem þessi eru til þess fallin að skaða starfsemina og því sjáum við okkur ekki annað fært en að vera á móti þessari tillögu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Austur-Skaftafellssýslu. Árni Rúnar tók einnig til máls og taldi að breytingarnar myndu verða jákvæðar og þar sem m.a. yrði lögð yrði áhesla á skapandi greinar og styður tillöguna. Hjalti Þór ræddi bókun sjálfstæðismanna og bað þá um rökstuðningá orðalagi í bókuninni þar sem greint er frá að starfsemi menningarmiðstöðvar muni skaðast og reksturinn fari í uppnám. Einnig rakti Hjalti málið í fundargerðum bæjarráðs, bókunum og skoðunum sjálfstæðismanna. Björn Ingi gerði grein fyrir bókun sjálfstæðismanna. Hjalti Þór sagði að orðalag í bókun sjálfstæðismanna sé ekki í takt við þá vinnu sem hefur farið frammeð þeim og hann hafi þá trú að breyting í málaflokknum muni verða til þess að styrkja málaflokkinn. Árni Rúnar lýsti skoðun sinni að breytingin gæti styrkt starfsemina í framtíðinni. Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum gegn 2. |
||
|
|
||
|
5. |
Þjónustusamningur um rekstur HSSA (upptaka) |
|
|
Hjalti Þór gerði grein fyrir samningnum og undirritun hans. Björn Ingi gerði grein fyrir bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna Samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar á bæjarstjórnarfundi 7. febrúar 2013. Sá samningur sem hér er til staðfestingar hefur verið 6 ár í vinnslu. Skrifað var undir samninginn með miklum lúðrablæstri af hálfu ríkisstjórnar Íslands 25. janúar síðastliðinn á Selfossi. Þrátt fyrir að aðdragandi þessarar undirskriftar hafi verið langur þá teljum við að ýmislegt vanti í samninginn. Ekkert er tekið á framtíðaruppbyggingu í þjónustu á svæðinu þar sem nefna má fjölgun einbýla og uppbyggingu hjúkrunarheimilisins allmennt, fjölgun dagvistarrýma og fleiri þætti sem íbúar hér á svæðinu eru flestir sammála um að tími sé kominn til að lagfæra. Þá er í samningnum atriði sem ástæða er til að hafa áhyggjur af. Hingað til hefir verið gert ráð fyrir greiðslu vegna dvalar- og bráðarýma á stofnuninni óháð nýtingu, í þessum samningi er fjárframlag tengt nýtingu. Þetta skapar ákveðna óvissu í rekstri stofnunarinnar og tekur út þann sveigjanleika sem að fyrri samningar gáfu og talinn var nauðsynlegur. Þessi niðurstaða nú er okkur sjálfstæðismönnum ákveðin vonbrigði. Við þetta tækifæri lofaði ríkisstjórnin tugum milljóna í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Suðurlandi með það að markmiði að fjölga einbýlum og auka þannig lífsgæði aldraðra íbúa á svæðinu. Ekkert af því virðist eiga að falla í skaut íbúa í Austur-Skaftafellssýslu Það hefði verið klókt af núverandi meirihluta að koma inní þennan samning bókun um einbýli og sameiginlegt átak í uppbygginu næstu ára. Þar sem ljóst má vera að þessi samningur dugar ekki til að viðhalda óbreyttum rekstri stofnunarinnar sjáum við okkur ekki annað fært en að sitja hjá við afgreiðslu þessa. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Austur-Skaftafellssýslu. Árni Rúnar fagnaði samningnum og fór yfir málið frá því að hann settist í bæjarstjórn, og þakkaði öllum sem hafa komið að vinnslu málsins stjórnendum, starfsfólki, stjórn HSSA og embættismönnum sveitarfélagsins, bæjarstjóra, bæjarfulltrúum úr öllum flokkum og öðrum sem að málinu komu. Nýr samningur muni leggja grunn að áframhaldandi öflugu og metnaðarfullu starfi HSSA og þeirri samþættingu á velferðarþjónustu sem hefur átt sér stað á þeim tíma sem unnið hefur verið eftir þjónustusamningi við ríkið. Einnig sagði hann að það sé ekki síst þessi þáttur í starfsemi HSSA og sveitarfélagsins sem önnur sveitarfélög hafa litið til sem hugsanlegrar fyrirmyndar í framtíðinni. Mikilvægt var að ljúka samningum til þess að eyða þeirri óvissu. Hann þakkaði einnig velferðarráðherra Guðbjarti Hannessyni fyrir að klára samninginn. Hjalti Þór sagði að samningurinn hafi verið ásættanlegur en það þyrfti að halda áfram með þennan málaflokk og þakkaði einnig öllum þeim sem hafa komið að samningnum. Árni Rúnar tók undir þann hluta af bókun Sjálfstæðisflokksins um endurnýjun á húnsæði HSSA. Samningurinn samþykktur með 5 atvkæðum 2 sitja hjá. |
||
|
|
||
|
6. |
Reglur um girðingar við göngustíga og opin svæði (upptaka) |
|
|
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu. Reglurnar samþykktar samhljóða. |
||
|
|
||
|
7. |
Dælulögn milli Krosseyjar og fiskimjölsverksmiðju (upptaka) |
|
|
Hjalti Þór gerði grein fyrir málinu. Samþykkt samhljóða.
|
||
|
|
||
|
8. |
Aðalskipulag lýsing (upptaka) |
|
|
Lýsing verkefnis og matslýsing Aðalskipulags Sveitafélagsins Hornafjarðar. Lagt er til að auglýst verði að nýju vegna reglugerðarskila við gildistöku nýrrar Skipulagsreglugerðar nr.90/201331. Sveitarfélagið auglýsti breytingu á aðalskipulagi í haust áður en ný skipulagsreglugerð tók gildi af eldri reglugerð og er því skylt að vinna samkvæmt þeirri reglugerð. Því er lagt til að auglýst verði aftur Lýsing á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins svo það vinni breytingu á á aðalskipulagi samkv. nýrri reglugerð. Samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
9. |
Kosningar í nefndir (upptaka) |
|
|
Guðrún Ása Jóhannsdóttir hefur óskað eftir lausn frá setu í bæjarstjórn Hornafjarðar, samþykkt samhljóða. Valdemar Einarsson verður aðalmaður og Grétar Þorkelsson veður 2 varamaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún Ása Jóhannsdóttir tekur sæti Bergþóru Ágústsdóttur í umhvefis og skipulagsnefndar, samykkt samhljóða. Ásgerður K. Gylfadóttir hefur óskað eftir lausn úr skóla-íþrótta- og tómstundanefnd, formaður í hennar stað verður Arna Ósk Harðardóttir og varaformaður verður Gunnhildur Imsland, Ásgerður K. Gylfadóttir tekur sæti varamanns. Samþykkt samhljóða. Hjalti Þór Vignisson hefur óskað eftir lausn frá setu í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs Reynir Arnarson tekur sæti hans, samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
10. |
Fyrirspurnir - bæjarstjórn |
|
|
Engar fyrirspurnir bárust.
DEILISKIPULAG (Upptaka) |
||
|
|
||
|
11. |
Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli (Upptaka sjá hér að ofan)
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu. Vegna villu í auglýsingu deiliskipulagi Þjónustusvæðis Skaftafell , þarf að auglýsa að nýju deiliskipulagið. Það láðist að geta þess að umhverfiskýrsla væri með í gögnum og verður skipulagið því auglýst aftur. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
||
|
|
||
|
12. |
Ósk um breytingu á deilikipulagi Álaleiru 12-10-8 (Upptaka sjá hér að ofan) |
|
|
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu. Grenndarkynning var samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd. Fram kom í umfjöllun nefndar að fengist hefði skriflegt samþykki frá hagsmunaaðilum. Tillagan er auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir ””Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni.“ ”Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni. Samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
13. |
Deiliskipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum (Upptaka sjá hér að ofan) |
|
|
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu, Tillagan eru auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir "Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni.“ Samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
14. |
Umsókn um breytingu á deiliskipulagi á Meðalfelli (Upptaka sjá hér að ofan) |
|
|
Ásgrímur gerði grein fyrir að gögn hafi ekki borist en lagði tl að samþykkt yrði að heimila að fara í deiliskipulag á svæðinu, deiliskipulagið mun vera kynnt í bæjarstjórn síðar. Deiliskipulagið mun byggjast á aðalskipulagi. Samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


