Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 64
34. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 8. febrúar, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar. Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Torfi Friðfinnsson Einnig Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði.
1. Sauðanes í Nesjum.
Breyting íbúðarhúss Sótt er, í bréfi dags. 30. jan.2006, um leyfi til að breyta íbúðarhúsinu í Sauðanesi, samkvæmt framlögðum teikn. frá TeikniHorni ehf, gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfr. dags. 11.11.2005. verknr. NES-VAI0501 Umsækjandi er Aðalheiður Fanney Björnsdóttir, Hólabraut 12.
Erindið samþykkt
2. Álaugarvegur 1. Lakkrísverksmiðja
Sótt er, í bréfi dags. 14.11.2005, um leyfi til að breyta notkun hússins á Álaugarvegi 1, Höfn, í lakkrísverksmiðju. Lagðar eru fram teikn. er sýna fyrirhugað innra skipulag hússins, dags 9. nóv. 2005. Teikn. nr. A3-L001 Umsækjandi er Ásgeir Ásgeirsson, f.h. Freyju ehf. Kársnesbraut 104, Kópavogi.
Erindið samþykkt
3. Mánabraut 1, Bílskúr.
Sótt er, í bréfi dags. 30. des. 2005, um leyfi til að byggja bílskúr úr timbri á lóð nr. 1 við Mánabraut, samkv. teikn. frá TeikniHorni ehf. gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfr. dags. 24.12.2005. verknr. ÞOB-HFN-0105 Umsækjandi er Bára M. Baldvinsdóttir, Mánabraut 1 Erindið samþykkt
4. Álaugarvegur 4. Breytt innra skipulag
Sótt er, í bréfi dags. 27.01.2006, um leyfi til að breyta innra skipulagi hússins að Álaugarvegi 4, á þann hátt, að stálgrindarhúsinu, eignarhlutanum 0101, er skipt í 3 eignarhluta. Umsækjandi er Hörður Bjarnason, Dilksnesi.
Erindið samþykkt
5. Ránarslóð 10. Utanhússklæðning og gluggalagfæringar
Sótt er, í bréfi dags. 13.01.2006, um leyfi til að klæða einbýlishúsið á Ránarslóð 10, Höfn, að utan með bárujárni og endurnýja/lagfæra glugga hússins. Einnig að setja dyr úr svefnherbergi efri hæð, út á skúr (forstofu) á vesturhlið hússins, og dyr út úr eldhúsi á neðri hæð, á norðurhlið. Umsækjandi er Katrín Ósk Jónsdóttir, Ránarslóð 10.
Erindið samþykkt.
Umsækjandi er hvattur til að halda upprunalegu útliti glugganna eins og fram kemur í umsókn dags. 13.janúar s.l.
6. Vesturbraut 6. Íslandspóstur
Kynnt er tillaga að breytingu lóðar nr. 6 við Vesturbraut, m.t.t. fyrirspurnar Íslandspósts, dags. 29. des. 2005. Ólafur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Samþykkt að fara í breytingu á deiliskipulagi ef Íslandspóstur ákveður að nýta lóðina.
7. Reynivellir-Skaftafell.
Rafstrengur Óskað er umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar um fyrirhugaða legu 19kV, þriggja fasa háspennustrengs, 3x95mm2, frá Reynivöllum að Skaftafelli. sem mun að mestu leyti liggja samsíða þjóðvegi nr. 1. Hugmyndir um framkvæmdina hafa verið kynntar landeigendum, er hlut eiga að máli. Skoðaðar voru loftmyndir af staðsetningunni. Erindið er undirritað af Ásvaldi A. Erlingssyni, f.h. framkvæmdaraðila, sem er RARIK
Erindið samþykkt
8. Malarnáman Friðsæld.
Valkostir Bæjarráð vísar, í bréfi dags. 27. jan. 2006, til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Landbúnaðarráðuneytisins, frá 13. jan. 2006, þar sem óskað er álits á tveimur valkostum um framtíð efnistöku í Friðsæld. Byggingarnefnd er sammál um að Friðsæld verði áfram efnistökusvæði eins og nú er á gildandi aðalskipulagi og gerður verði skriflegur samningur þar um við Landbúnaðarráðuneytið. Meta þarf hversu mikið og hvernig verði staðið að efnistökunni í framtíðinni.
9. Tillögur að vegstæði yfir Hornafjarðarfljót
Bæjarráð vísar, í bréfi dags. 27. jan. 2006, til byggingar- og skipulagsnefndar, tillögum um vegstæði yfir Horna-fjarðarfljót, sem kynntar voru á fundi BRÁÐ 26. jan. 2006, sbr. fundargerð frá fundi fulltrúa sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar frá 20. jan. s.l. Nefndin er sammála um breytingu á skipulagslínu vegstæðisins á Mýrunum sbr. rauð lína á yfirlitsmynd og yfir Hornafjarðarfljótið og Skógeyna. Lögð er áhersla á að veglínan austan Skógeyjar verði síðan í norðanverðri Hrísey og Hrafnsey til að tryggja framtíðarsvæði fyrir möguleika á lengingu flugbrautar og þverbrautar við suðurenda núverandi flugbrautar.
10. Vegagerðin- vinnureglur við skipulag
Kynnt erindi frá Vegagerðinni, ódagsett, en móttekið 26.01.2006. með ábendingum um ýmis atriði, sem vert er að huga að, við vinnslu/gerð skipulags. Erindið undirritar Erlingur Jensson, deildarstj. áætlana og hönnunar, Suðursvæði Vg Nefndin tekur undir þessi sjónarmið.
Til kynningar
11. Vegagerð og efnistaka í Hvalness- og Þvottárskriðum.
Bæjarráð vísar, í bréfi dags. 12. jan. 2006, til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi lögmannsstofunnar LOGOS, dags. 2. jan. 2006, til Vegagerðarinnar (afrit sent A.E. bæjarstjóra Hornaf.) þar sem lýst er m.a. áhyggjum landeigenda Hvalness yfir hugsanlegri efnistöku í landi þess, vegna vegagerðar. Erindið er undirritað af Heiðari Ásberg Atlasyni, hdl. Nefndin er sammála um að lögð verði meiri áhersla á jarðgöng undir Lónsheiði heldur en vafasamar vegbætur fyrir Hvalnes- og Þvottárskriður. Til kynningar. 12. Jarðgöng á Austurlandi. Bæjarráð vísar, í bréfi dags. 12. jan. 2006, til byggingar- og skipulagsnefndar, umfjöllun í bréfi SSA, dags. 27. jan. 2006, um jarðgöng á Austurlandi
Nefndin er sammála um að gert verði ráð fyrir jarðgöngum undir Lónsheiðina við endurskoðun á aðalskipulagi.
13. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
A.10.01.2006.Vilhjálmi E.Einarssyni gefið leyfi til bráðabirgða, fyrir staðsetningu geymsluskúrs við Hafnarnes Engar athugasemdir B.19.01.2006. Gefin jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis til handa Fosshótels Vatnajökuls, Lindarbakka
Engar athugasemdir
14 . Önnur mál.
Birgir Árnason, Sandbakka 7, Höfn óskar eftir að stækka núverandi sólskála við Sandbakka 7, skv. bréfi dags. 2. febrúar 2006. Nefndin leggst ekki gegn umsókninni, en óskar eftir fullnaðarteikningum.
Ekki er tekin afstaða til lóðarstækkunar, en það er í hlutverki bæjarráðs.
Torfi spurðist fyrir um olíutank á Austurfjörum. Erindi var sent Sal ehf vegna tanksins. Ljóst er að Ómar Antonsson er eigandi tanksins í dag og ber ábyrgð á honum.
Nefndin er sammála um að Ómari verði sent erindi vegna tanksins.
Kynntar voru breytingar á eldhúsaðstöðu í Hjúkrunarálmu við Víkurbraut 29 og breytingar á efri hæð við Víkurbraut 26, “Mjallhvít” skv. teikningum tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar, dags. 22.12.05 og 15.09.05.
Engar athugasemdir.
Gert var grein fyrir afgreiðslu erindis frá Hótel Höfn vegna fyrri afgreiðslu um björgunarop á herbergjum, 9. nóvember 2005. Samkvæmt umsögn eldvarnarfulltrúa eru eldvarnir vegna breytinganna fullnægjandi.
Fundi slitið 19:50


