Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 83
83. fundur
83. fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 14. nóvember 2007 og hófst hann kl. 17:00
Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Miralem Haseta,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri umhverfis- og tæknisviðs
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018. Framhald umræðna frá síðasta fundi nefndarinnar,18. okt. s.l. Gestir fundarins verða Kristján L. Möller, samgönguráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra. Lögð voru fram tvö minnisblöð af hálfu bæjarstjórnar Hornafjarðar til kynningar og umræðu.
Haukur Ingi greindi frá þeirri vinnu sem farið hafði fram frá síðasta fundi. Starfsmanni var falið að taka saman áorðnar breytingar og senda til nefndarmanna. Gert var hlé á fundi kl: 17:30. Fundur hófst aftur 19:10
Starfsmanni var falið að leita samstarfs við arkitektastofu við gerð endurskoðun á aðalskipulagi og lagt verði áhersla á að ná samstarfi við arkitektaþjónustu sem getur unnið hratt að málinu. Björn Ingi vill láta hafa eftir sér að leitað verði til annarra en Gláma-Kím til að fá inn fersk sjónarmið.
Önnur mál
Gunnar Páll spurðist fyrir um reiðveg milli Hornafjarðar og Lónsafleggjara. Starfmönnum var falið að afla upplýsinga um málið og skýra frá niðurstöðum á næsta fundi.
Ákveðið var að halda næsta fund 29. nóvember


