Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 102
102. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 18. desember 2008 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Borgþór Freysteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200812050 - Umsókn um flutning á færanlegum kennslustofum og nýja staðsetingu þeirra við Hafnarskóla
Sótt er um leyfi til að flytja tvær færanlegar kennslustofur frá Nesjaskóla og setja þær niður við Hafnarskóla, austan við gamla/elsta skólaghúsið, sbr. meðf. afstöðumynd. Umsækjandi er Stefán Ólafsson, f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Hákon gerði grein fyrir fyrirhugaðri staðsetningu tveggja færanlegra kennslustfa aftan við Hafnarskóla.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningar fyrir sitt leyti að því gefnu að viðunandi kynning fari fram. Starfmönnum falið að kynna tillöguna eigendum nærliggjandi húsa.
2. 200812048 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun húss að Hafnarbraut 36
Sótt er um leyfi til að byggja við norðurhlið Hafnarbrautar 36, lögreglustöð og breyta jafnframt innra skipulagi neðri hæðar í húsi sýslumannsins samkv. framlögðum teikningum frá ,,á stofunni arkitektum,,Bergstaðastræti 10, Rvík. dags. 14.12.2008.Verknr. 08-16. Umsækjandi er Finnur Björgvinsson, arkitekt faí, f.h. Fasteigna Ríkissjóðsj.
Haukur gerði grein fyrir umsókn Fjársýslu ríkisins um uppbyggingu nýrrar lögreglustöðvar á Höfn.
Hákon gerði grein fyrir framlögðum teikningum.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar teikningir að því tilskyldu að þær lúti öllum þeim reglugerðum og lögum sem til þeirra eru gerðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30


