Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 98
98. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 8. október 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Hákon Valdimarsson, byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 200809020 - Lambleiksstaðir á Mýrum. Breytt notkun á hlöðu
Sótt er um leyfi til að breyta notkun hlöðu á Lambleiksstöðum á Mýrum í mjölpokaþvottastöð og aðstöðu fyrir viðhald véla og tækja. Umsækjandi er Hallgrímur Jónsson, f.h. Nesgarðs ehf.
Nefndin samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og vísar henni til umsagnar eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
2. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. Skýrsla Mannvits-verkfræðistofu
Framhald umræðna um umferðaröryggi frá 95. fundi
Árni greindi frá fyrri umræðum um skýrsluna. Umræður sköpuðust um umferðarhraða á Höfn. Nefndin leggur áherslu á að farið verði út í framkvæmdir á hraðatakmarkandi aðgerðum á næsta ári.
Starfmanni falið að vinna áfram að málinu jafnframt að kalla eftir áliti Lögreglunnar og Vegagerðarinnar á Höfn.
3. 200809006 - Móttaka fyrir brotajárn í landi Horns
Framhald umræðna frá 95. fundi nefndarinnar. Lagður fram uppdráttur af svæðinu dagsettan 06.10.2008, er sýnir stærð þess og afstöðu.
Nefndin samþykkir umsókn um móttöku fyrir brotajárni í landi Horns í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt dagsettan 06.10.2008. Nefndin leggur áherslu á að sjónrænni mengun umhverfis svæðið verði haldið í lágmarki. Jafnframt leggur nefdin áherslu á að öllum kröfum eftirlitsaðila verði gætt í hvívetna.
4. 200711062 - Breyting á byggingarleyfi - umsókn
Sótt er um leyfi til að breyta notkun hússins á Breiðabólsstað Hala (landnr.214306) í gistiheimili. Með umsókn fylgja teikningar Sveins Ívarssonar, arkit. dags. 30. ágúst, 2007, m.breyt. dags. 19. 09.2008. Umsækjandi er Þórbergur Torfason, Hala
Nefndin samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og bendir jafnframt á að farið verði eftir reglum heilbrigðis- og eldvarnareftirlits.


