Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 99
99. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar, haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 19. nóvember 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissvið
Dagskrá:
1. 200811011 - Breyting á kyndingu Nesjaskóla og Mánagarðs.
Breyting á kyndingu Nesjaskóla og Mánagarðs.
Hákon gerði grein fyrir breytingum á kyndingu í Mánagarði og Nesjaskóla. Breytingin felst í því að skipta út olíukyndingu fyrir rafmagnskyndingu. Undir þessum lið var einnig kynnt umsókn RARIK um byggingu spennistöðvar, umsóknaraðili Páll Kristjánsson f.h RARIK.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar og vísar þeim til umsagnar eftirlitsaðila.
2. 200810119 - Ósk um breytingu á gluggum og niðurrif á vegg
Ósk um breytingu á gluggum og niðurrif á vegg, Mánabrautar 6. Umsækjandi Hjalti Þór Vignisson
Samþykkt samhljóða.
3. 200810112 - Utanvegaakstur - vinna starfshóps
Bæjarráð vísaði á 438. fundi sínum til byggingar- og skipulagsnefndar, bréfi Starfshóps um utanvegaakstur, dags.21. okt. 2008, um vinnu hópsins og fyrirhuguðu framhaldi hennar, m.a. með viðræðum við þau sveitarfélög sem málið varða, með útgáfu reglugerðar í huga.
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs verði tengiliður við hópinn.
4. 200811010 - Ástand húss og lóðar að Hafnarbr. 14
Bréf byggingarfulltrúa til eigenda Hafnarbrautar 14, Höfn, vegna ástands húss og umgengni á lóð. Bréfið var kynnt í bæjarráði 10. nóv. 2008, og vísað þaðan til nefndarinnar.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagt bréf.
Umræður sköpuðust um annað húsnæði á Höfn í sambærilegu ástandi. Starfmönnum falið að fara almennt yfir ástand bygginga í sveitarfélaginu.
5. 200811016 - Fundargerðir starfshóps um endurskoðun aðalskipulags
Árni gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið á vegum starfshópsins.
6. 200811014 - Byggingarleyfisumsókn v. glugga, útihurðar og sólskála
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála við Kirkjubraut 18, Höfn og skipta einnig út gluggum í húsinu yfir í P.V.C. prófíl og með breyttu útliti Umsækjandi er Jón Karlsson, Kirkjubraut 18.
Samþykkt samhljóða.
7. 200705087 - Hringvegur um Hornafjarðarfljót
,,Bæjarráð felur, á 437. fundi sínum, starfsmönnum og byggingar- og skipulagsnefnd, að vinna að breytingu á aðalskipulagi sem gerir ráð fyrir að nýr vegur liggi samkvæmt leið 3 með þeim athugasemdum, sem bæjaryfirvöld gerðu varðandi leiðina,,
Árni Rúnar Þorvaldsson fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir meginatriðum skipulagsferilsins og fyrirhuguðum kynningarfundi með íbúum. Stefnt er að kynningarfundi í samstarfi við framkvæmdaraðila 4. desember nk. Þar verður tillaga að aðalskipulagsbreytingu kynnt sem og umhverfisskýrsla sem sveitarfélagið hefur látið vinna. Fyrirhuguð aðalskipulagsbreyting mun hafa áhrif á núverandi tillögu samkvæmt aðalskipulagi að þverbraut á Hornafjarðarflugvelli. Nefndin felur framkvæmdarstjóra tækni- og umhverfissviðs að leita álits og umsagnar Flugstoða á málinu. Einnig felur nefndin starfmanni að leita álits Vegagerðar á hvernig beri að skilgreina vegkafla sem kunna að falla úr notkun við aðalskipulagsbreytinguna. Nefndin er sammála um að öll gögn er málið varðar og hafa verið lögð fram verði gerð opinber á heimasíðu sveitarfélagsins og þau uppfærð í samræmi við endurbætur ráðgjafa.
8. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. Skýrsla Mannvits-verkfræðistofu
Til umfjöllunar hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn, áfamhaldandi umræður.
Lagt fyrir fundinn ,,álit lögreglu varðandi skýrslu (Mannvits)skv. beiðni,, frá 12.10.2008, og svar Jóns Garðars við fyrirspurn Hauks Inga um umferðarmál frá 3. nóv. 2008.
Töluverðar umræður sköpuðust. Nefndin er sammála um að þeir vegkaflar sem brýnast liggur á að bæta úr umferðarhraða eru flestir á ábyrgð Vegagerðarinnar enda þeir vegkaflar skilgreindir sem þjóðvegir í þéttbýli. Nefndin leggur því til að fá fulltrúa Vegagarðarinnar á Höfn á næsta fund nefndarinnar.
9. 200811017 - Náttúruverndaráætlun - till. að friðlýsingu búsvæðis tröllasmiðs
Bæjarráð vísaði á fundi sínum 10 nóv, 2008, tillögum/hugmyndum Umhverfisstofnunar um friðlýsingu tröllasmiðs, til byggingar- og skipulagsnefndar.
Til kynningar og afgreiðslu frestað til næsta fundar nefndarinnar.


