Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1
1. fundur
Fundur í umhverfis- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 23. júní 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Sigurlaug Gissurardóttir, Lars Jóhann Andrésson, Björn Þórarinn Birgisson, Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson, Friðrik Þór Ingvaldsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201006017 - Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
Ásgrímur bauð fundarmenn velkomna á fyrsta fund umhverfis- og skipulagsnefndar, eftir það óskaði hann eftir athugasemdum um erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar.
Spurt var um hvort ekki þurfi að bæta inn seturétt fyrir fulltrúa slökkviliðs og heilbrigðisfulltrúa. Starfsmanni falið að kanna fyrri erindisbréf fyrri nefndar og staðfæra nýtt erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar í samræmi við erindisbréf þeirra nefnda.
2. 201006018 - Helstu verkefni umhverfis- og skipulagsnefndar
Ásgrímur Ingólfsson lagði fram eftirfarandi um helstu verkefni umhverfis- og skipulagsnefndar. Ásgrímur upplýsti að listinn væri siður en svo tæmandi þar sem nefndarmenn, starfsfólk og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta geti komið með tillögur að verkefnum sem nefndin ynni að og bætti starfsemi sveitarfélagsins. Óskaði Ásgrímur eftir umræðum um framlagðan texta:
• Vinna við aðalskipulag í samráði við íbúa þar sem mörkuð er stefna um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál, þróun byggðar og aðgengis að þjónustu í sveitarfélaginu með sjálfbærni að leiðarljósi. Við aðalskipulagið verði borin virðing fyrir stórbrotinni náttúru og svigrúm skapað fjölbreytta búsetu og atvinnu. Landslag og ræktunarland verði varðveitt. Vinna við aðalskipulag hefjist með íbúaþingi í byrjun árs 2011.
• Kortleggja náttúruauðlindir svæðisins og leggja þannig grunn að skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda. Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs myndar grunn að þessari vinnu.
• Að vinna við færslu þjóðvegar í þéttbýli verði hraðað með það að markmiðið að því verði lokið í byrjun 2012.
• Að framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins, einstaklinga og fyrirtækja verði vel undirbúinn og gert samkvæmt deiliskipulagi og eða að viðhafðri grenndarkynningu
• Að umferðaröryggi innan bæjarmarka Hafnar verði aukið með hraðatakmarkandi aðgerðum og girðingar meðfram þjóðvegi verða bættar og haldið lausum af búfé.
• Að gera áætlun um uppbyggingu og viðhald göngustíga og gangbrauta í Nesjahverfi og Höfn. Úrbætur hefjist árið 2011 en unnið verði að endurbótum í áföngum.
• Efla vitund almennings á góðri umhirðu utan hús. Sveitarfélagið fari undan með góðu fordæmi og ljúki frágangi á opnum svæðum og umhverfis stofnanir sínar, sinni umhirðu af kostgæfni og viðhaldi leiktækja verði bætt. Fyrsti opinberi hreinsunardagurinn verði haldin í apríl 2011 og síðan árlega eftir það.
• Haustið 2010 verði lokið endurskoðun á deiliskipulagi við Tjarnarlund, svæðisins sunnan sundlaugar, það tengd íþróttasvæði og gert aðlaðandi með bekkjum, leiktækjum og gróðri.
• Fráveitumálum verði komið í gott horf með grófhreinsun og þeirri vinnu lokið fyrir Nesjahverfi og á Höfn haustið 2011.
• Unnið verði að skipulagi og uppsetningu áningarstaða í samvinnu við ferðaþjónustuna.
• Halda áfram með vinnu við endurnýtingu á sorpi, sérstaklega verði kannað með kurlun á gróðurúrgangi og timbri.
• Hafin verði vinna að gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið samhliða vinnu við aðalskipulag í upphafi 2011.
• Að merkja við þjóðvegi hvar eyðibýli eru.
Góðar og málefnalegar umræður sköpuðust um verkefnin sem lögð voru fram, tvær efnislegar breytingatillögur komu fram. Önnur varðar deiliskipulag þar sem óskað var eftir því að deiliskiplag innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar verði endurskoðað sé talin þörf á hin breytingatillagan varðar endurnýtingu/vinnslu á úrgangi og að stefnt verði að því að auka endurvinnslu/nýtingu á lífrænum úrgangi.
Aðal og varamenn sátu fundinn undir fyrsta og öðrum lið fundarins að því loknu yfirgáfu varamenn fundinn.
3. 201005020 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir áningarstað - Hrollaugshólar
Sótt er um leyfi til að setja upp ,,Vistvænan áningastað,, við Hrollaugshóla í Suðursveit, þar sem í eru þurrsalerni og upplýsingaveggur. Hönnuður er Egill Guðmundsson, arkit. hjá ARKÍS-arkitektum, Aðalstræti 10, Rvík.Um er að ræða fyrsta húsið af nokkrum, sem til stendur að setja upp í sveitarfélaginu. Umsækjandi er Rósa Björk Halldórsdóttir, f.h. Í ríki Vatnajökuls.
Nefndin samþykkir að veita leyfi fyrir uppsetningu vistvænna áningastað við Hrollaugshóla í Suðursveit í samræmi við teikningar frá ARKÍS að því gefnu að fullnaðargögn berist og uppfylltum kröfum eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
4. 201006016 - Kortlagning miðhálendisvega
Lagt fram til meðferðar
Starfsmönnum falið að klára málið í samvinnu við Umhverfisráðuneytið.
5. 201004043 - Ósk um heimild til framsals bílskúrsréttar Silfurbraut 7B til Silfurbrautar 7C.
,,Samningur um framsal bílskúrsréttar Silfurbrautar 7B til Silfurbrautar 7C með kvöðum,, Málinu vísað til nefndarinnar frá Bæjarráði,á 503 fundi, dags. 20. maí, 2010.
Nefndin gerir ekki athugasemd við framsal bílskúrsréttinda milli eigenda Silfurbrautar 7B og 7C.
6. 201005032 - Ósk um leyfi fyrir breytingu á þaki á bílskúr að Hagatúni 7
Sótt er um leyfi til að setja einhalla þak á bílskúrinn í Hagatúni 7, samkv. teikn. gerðum af Össuri Imsland, byggingarfr. verknr.09106, dags. 09.05.2010. Umsækjendur eru Andrés Júlíusson og Sigurður K. Pálsson.
Nefndin samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu á einhalla þaki á bílskúr í Hagatúni 7 í samræmi við teikningar unnar af Össuri Imsland, dags. 09.05.2010. og uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits.
7. 201005028 - Ósk um leyfi til að setja niður garðhús á lóð 30B í Stafafellsfjöllum
Sótt er um leyfi til að setja niður 7,2 m2 garðhús(frá Húsasmiðjunni)á lóð nr. 30b, í Stafafellsfjöllum. Með umsókn fylgir afstöðumynd, gerð af Össuri Imsland, byggingarfr. dags. 09.05.2010. Verknr.10103. Umsækjandi er Björn Þór Imsland.
Nefndin samþykkir að veita leyfi fyrir niðursetningu garðhús á lóð nr. 30b, í Stafafellsfjöllum í samræmi við teikningar unnar af Össuri Imsland dags. 09.05.2010. og uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits
8. 201005022 - Umsókn um byggingarleyfi á lóð 27 í Stafafellsfjöllum
Sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð 27, í Stafafellsfjöllum, samkv. teikn. Ragnars Auðuns Birgissonar, arkit. dags.29.04.2010. verknr. 05-01 Umsækjandi er Ívar Smári Reynisson, Fákaleiru 4a.
Nefndin samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu frístundarhús lóðar 27 í Stafafellsfjöllum, í samræmi við teikningar Ragnars Auðuns Birgisson, dags. 29.04.2010 að því gefnu að fullnaðargögn berist og uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits.
9. 201005012 - Ósk um leyfi til að byggja gestahús á lóð 32 í Stafafellsfjöllum
Sótt er um leyfi til að setja niður 13,5 m2 gestahús úr timbri, á lóð 32 í Stafafellsfjöllum. Umsækjandi er Ólafur Björn Þorbjörnsson, Hlíðartúni 21.
Áður en afgreiðsla þessa máls fór fram, var samþykkt að fara í endurskoðun á textaskilmála deiliskipulags í Stafafellsfjöllum. Endurskoðunin verði unnin í samráði við hagsmunaaðila.
Nefndin samþykkir í ljósu endurskoðunar á textaskilmálum að veita stöðuleyfi til eins árs fyrir niðursetningu gestahús í samræmi við umsókn Ólafs B. Þorbjörnssonar að því gefnu að fullnaðargögn berist og uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits.
10. 201003039 - Umsókn um leyfi til að byggja gróðurhús á lóð nr. 48 í Stafafellsfjöllum
Tilaga byggingarfulltrúa um að taka þetta mál fyrir aftur (áður á dagskrá 21.apríl, 2010) og afgreiða með bráðab.leyfi, á sama hátt og mælt er með fyrir mál nr. 3 0g 4 á dagskránni. Þetta gert mið hliðsjón af fyrirhuguðum breytingum á skilmálum fyrir. Stafafellsfjöll.
Nefndin samþykkir í ljósi afgreiðslu síðasta máls að veita stöðuleyfi til eins árs fyrir byggingu gróðurhús umsækjanda Óðins Eymundssonar sem áður var á dagsskrá 21. apríl 2010, mál nr. 3 og 4 þess fundar.
11. 200808064 - Byggingarleyfisumsókn v. sumarbústaðar í Stafafellsfjöllum á lóð nr. 45a
Sótt er um leyfi til að byggja 21,4 m2 gestahús úr timbri, á lóð 45a í Stafafellsfjöllum, samkv. teikn. frá Búbót- hönnun og ráðgjöf, gerðum af Einari Ólafssyni, byggingarfr. dags. 10.05.2010. verknr.10-002. Umsækjandi er Heiðar Sigurðsson, Fákaleiru 8c
Nefndin samþykkir í ljósu endurskoðunar á textaskilmálum að veita stöðuleyfi til eins árs fyrir niðursetningu gestahús í samræmi við umsókn Heiðars Sigurðssonar, teikningum unnum af Einari Ólafssyni, dags. 10.05.2010, að því gefnu að fullnaðargögn berist og að uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits.
12. 200912034 - Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Kynntar teikningar af fyrirhuguðum smáhúsum, á Lambleiksstöðum, sem gefið var stöðuleyfi fyrir, á 24.fundi nefndarinnar,21. apríl, s.l.
Engar athugasemdir voru gerðar.
13. 201004059 - Deiliskipulag fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf. í Álaugarey.
Olíudreifing ehf, óskar, í bréfi dags. 27. apríl, 2010, eftir því að unnið verði deiliskipulag, í samvinnu við félagið, fyrir olíubirgðastöð þess í Álaugarey (Krosseyjarvegi 6)sem fyrst. Umsækjandi er Gestur Guðjónsson, umhverfis- og öryggisfulltrúi , f.h. Olíudreifingar ehf.
Starfsmanni falið að fara yfir málið með umsækjanda.
14. 200705114 - Önnur mál
Aðalsteinn Gíslason, óskar eftir leyfi til að reis tvö gróðurhús á jörðinni Koti sem er lögbýli út úr jörðinni Grund í Nesjum, samkvæmt teikningum unnum af Svavari M. Sigurjónssyni hjá Verkfræðiþjónustunni.
Nefndin samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu gróðurhúsanna í samræmi við teikningar Svavars M. Sigurjónssonar að því gefnu að fullnaðargögn berist og að uppfylltum kröfum eldvarnareftirlits.
Lögð var fram tillaga um að nýta betur land sveitarfélagsins til beitar fyrir hross, um var að ræða land innan Óslands og í námunda við Álaugarey. Nefndin var sammála um að fela starfsmanni og formanni að vinna að málinu í samvinnu við hagsmunaaðila.


