Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 25
25. fundur
25. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 9. maí 2012 og hófst hann kl. 12:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Friðrik Þór Ingvaldsson 2. varamaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Yfirmaður umhverfis- og skipulags.
Dagskrá:
| 1. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Lagt fram deiliskipulag unnið af Glámu Kím ehf af Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, heiti uppdráttar er D00.002 dagsett í desember 2011. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að laga þarf staðreyndir um áttir inni á þjónustusvæði á uppdrætti. Friðrik Ingvaldsson benti á að skoða staðsetningu vegstæðis frá þjóðvegi að megin þjónustusvæði. Aðalsteinn Aðalsteinsson bendir á að gott væri að aðgreina gangandi umferð frá akandi umferð yfir brúnna yfir Jökulsánna, t.d með göngubrú utan á þeirri brú sem verður yfir ánna. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið fyrir sitt leiti og vísar því til meðferðar bæjarstjórnar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:25