Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 53
53. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 22. september 2004, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Þorsteinn Sigfússon. Einnig Ragnhildur Magnúsdóttir, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Ágústa Baldursdóttir og Guðrún Júlía Jónsdóttir..
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rekstrarstaða HSSA ? 8 mánaða uppgjör
Ásta kynnti 8. mánaða uppgjör stofnunarinnar. Staðan er í samræmi við ósamþykkta fjárhagsáætlun ársins og er hallinn nú kominn í 12,6 millj. kr. Og eiginfjárstaða neikvæð um 52,7 milljónir.
2. Tillögur um starfsemi HSSA að Hvannabraut 3-5, Skjólgarð
Hjúkrunarforstjóri og deildarstjórar HSSA hafa lagt fram hugmyndir um breytingar á rekstri dvalarheimilisins. Lagt er til að dvalarheimilið Skjólgarður verði lagt niður í núverandi formi, mötuneytið verði flutt yfir á hjúkrunardeild og dagvistin verði flutt í Ekruna. Heilbrigðis- og öldrunarráð tekur jákvætt í hugmyndirnar og felur hjúkrunarforstjóra og settum framkvæmdastjóra að leiða vinnu við að meta kostnaðinn við þessar breytingarnar sem og faglegan ávinning. Vegna ábendinga um lélegt ástand húsanna að Hvannabraut 3-5 er framkvæmdastjóra falið að láta gera úttekt á ástandi húsanna sem fyrst.
Ásta vék af fundi.
3. Umsókn í Gjafa- og minningarsjóð
Heilbrigðis- og öldrunarráð telur eðlilegt að kr. 200.000 kostnaður umfram samþykktan styrk til hjúkrunardeildar úr Gjafa- og minningarsjóði verði fjármagnaður af rekstrarfé stofnunarinnar enda er hér að stærstum hluta um stofnbúnað að ræða.
4. Ásgeir Ásgeirsson ráðgjafi HSSA mætir á fundinn
Ásgeir fór yfir minnisblað sem lagt verður til grundvallar í viðræðum við fulltrúa heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis n.k. föstudag um leiðréttingu á fjárframlögum til stofnunarinnar.
5. Önnur mál
Um þessar mundir á stofnunin 30 ára afmæli. Framkvæmdaráði er falið að undirbúa það að halda upp á þessi tímamót.
Fundi slitið kl. 17:30


