Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 59
59. fundur
Heilbrigðis- og öldrunarráð 59. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar mánudaginn 7. mars 2005, kl. 20:00 í fundarsal ráðhúss. Mættar voru: Maren Sveinbjörnsdóttir, varaformaður, Vignir Júlíusson, og Elínborg Baldursdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir og Ásta H. Guðmundsdóttir Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Reglur um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur með einni breytingu á 5. gr. varðandi innkaup og vísar þeim til endanlegra afgreiðslu í bæjarráði.
3. Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Heilbrigðis- og öldrunarráðs samþykkir að hækka gjaldskrá um 3,5% frá 1. apríl n.k. Ennfremur hækka tekjumörk um 3,5%. Í framhaldi af nýju starfsmati þarf að endurskoða gjaldskrána. Framkvæmdastjóra falið að koma með tillögu að nýrri gjaldskrá þegar starfsmat liggur fyrir.
4. Áfangaskýrsla nefndar um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga.
Áfangaskýrsla lögð fram til umræðu heilbrigðis og öldrunarráð telur að reynsluverkefnið hafi gengið vel faglega en allt og mikil tími og orka hafi farið í samninga við ríkið varðandi fjármagn. Heilbriðgis og öldrunarráð vísar skýrsluni til bæjarráðs.
5. Ársuppgjör HSSA.
Ársuppgjör liggur ekki fyrir en verður lagt fram á næsta fundi.
6. Önnur mál
Kynnt voru drög að nýju starfmati fyrir starfsmenn í Vökli þar sem kemur fram að laun munu sennilega hækka á bilinu 7-8%. · Greinargerð um dvalarheimilið sem starfmönnum HSSA var falið að vinna var lögð fram til kynningar. Málið tekið fyrir á næsta fundi sem liður á dagskrá. · Guðrún Júlía sagði frá fundi í heilbrigðisráðuneytinu varðandi ýmis mál s.s. starfsmat og önnur málefni HSSA.
Fundi slitið kl. 21:45.


