Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
37. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 30. október 2002, kl. 16:15.
Mætt voru: Maren Ó Sveinbjörnsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Þorsteinn Sigfússon og Kristín Gestsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Baldur Thorsteinsen, Ester Þorvaldsdóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar
Nafn Kristínar Gestsdóttur vantar yfir þá sem mættu á fundinn.
Aðrar athugasemdir voru ekki gerðar.
2. Erindisbréf Heilbrigðis- og öldrunarráðs Hornafjarðar
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir drög að nýju erindisbréfi. Í drögunum er gert ráð fyrir að HÖR fari með stjórn Gjafa- og minningasjóðs.
3. 9 mánaða uppgjör Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Jóhann fór yfir 9 mánaða uppgjör. Tekjur eru komnar í 75,9% og gjöld í 89,35%. Miðað við endurskoðaða áætlun stefnir í rekstrarhalla upp á 11,3 milljónir. Samþykkt var að leggja meiri vinnu í að endurskoða launaáætlun ársins og taka fyrir aftur á næsta fundi.
4. Drög að rekstraráætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands 2003
Jóhann lagði fram fyrstu drög að rekstrarkostnaði fyrir 2003. Áfram verður unnið að gerð rekstraráætlunar 2003 og stefnt að því að taka hana til afgreiðslu á næsta fundi.
5. Önnur mál
Rætt var um þjónustusamning milli HSSA og heilbrigðis- og tryggingamála-ráðuneytisins en enn hefur ekki verið gengið frá lokadrögum. Nefndin lýsir áhyggjum vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að daggjaldakerfi verði tekið upp á öllum hjúkrunarheimilum í landinu.
Jóhann sagði að unnið væri að því að koma matarflutningum til stofnunarinnar í fast horf eftir að Öryggisvarslan hætti flutningunum.
Þorsteinn spurðist fyrir um hvort áform væru uppi um að bjóða eldri borgurum í dreifbýlinu kost á að kaupa máltíðir. Hann spurði líka um útboð á þrifum stofnunarinnar.
Ingibjörg sagði frá starfi sínu við heimaþjónustu og heilsueflandi heimsóknir til 75 ára einstaklinga og eldri. Hún taldi að einhverjir einstaklingar í dreifbýlinu myndu nýta sér heimsendingu á mat en nánari könnun þurfi að gera á þörfinni.
Jóhann sagði eflaust tímabært að kanna útboð á þrifum á stofnuninni.
Jóhann sagði frá vinnu við hönnun viðbyggingar við hjúkrunarheimilið.
Margrét minnti á að fyrirhugað hafi verið að nefndin heimsækti stofnunina.
fundi slitið kl. 18:25


