Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
34. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 19. mars 2002, kl. 16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Vignir Júlíusson, Heimir Þór Gíslason, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir, Þorsteinn Sigfússon og Sigurður Bjarnason. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Baldur Thorstensen, Ester Þorvaldsdóttir, Björg Svavarsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir.
Gerð var athugasemd við fundarstað sem þykir of lítill fyrir fjölda nefndarmanna.
Samþykkt var að breyta dagskrá fundarins og taka 3ja lið fyrir fyrst
1. Gjafa- og minningasjóður Skjólgarðs
Ásta fór yfir stöðu Gjafa- og minningarsjóðsins en eignir sjóðsins nema nú 12,4 milljónum. Lögð var fram eftirfarandi tillaga frá stjórn Gjafa- og minningasjóðs:
Stjórn Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs leggur til að Heilbrigðisstofnun Suðausturlands(HSSA) verði veittur styrkur að upphæð kr. 995.884,-. Styrkurinn er til framkvæmda við frágang lóða við stofnunina. Mun þessi styrkur dragast frá skuld HSSA við sjóðinn sem er nú kr. 995.884,- og verður því HSSA skuldlaus við sjóðinn. Þessi bókun verður færð af árinu 2001.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir tillöguna og þakkar styrkveitinguna.
2. Rekstur HSSA 2001
Jóhann fór yfir drög að uppgjöri síðasta árs. Samkvæmmt drögunum er hallinn af rekstri stofnunarinnar 2001 rúmar 10 milljónir sem er til kominn vegna launa og verðlagshækkana. Gert er ráð fyrir að ríkið mæti þeim hækkunum eins og samningar gera ráð fyrir.
Ásta vék af fundi.
3. Stefnumótun til 2010
Halldóra fór yfir breytingar sem gerðar voru á drögum að stefnumótuninni í meðförum nefndar sem skipuð var pólitískum fulltrúum. Nefndin var skipuð þann 6. feb. s.l. til að yfirfara skýrsluna. Litlar efnislegar breytingar voru gerðar, heldur fyrst og fremst á orðalagi og uppsetningu.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir fram lögð drög að stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til umræðu og samþykktar.
4. Önnur mál
Jóhann upplýsti um stöðu mála varðandi þjónustusamning við ríkið. Heimir ræddi um umtalsverðan kostnað við að ná fram markmiðum stefnumótunarinnar.
fundi slitið kl.


