Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 70
70. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Bylgja Kristjánsdóttir og Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Ársreikningur HSSA og Gjafasjóðs Skjólgarðs
Ásta fór yfir ársreikning HSSA og skilaði reksturinn um 4 m.kr. hagnaði. Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir framlagðan reikning og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2. Önnur mál
Elín upplýsti að hún hafi mætt á fund með þátttakendum í dægradvöl í Ekru og tók á móti undirskriftalista vegna uppsagnar starfsmanns.
Margrét spurðist fyrir um vinnu við skipuritið og hvort þeirri vinnu ætti ekki að vera lokið.
Formaður upplýsti að þetta væri síðasti fundur ráðsins á þessu kjörtímabili og þakkar hún fyrir samstarfið þetta síðasta ár og óskar nefndarmönnum alls hins besta.
Fundi slitið kl. 17:30


