Fundargerð heilbrigðis-og öldrunarráðs 72
72. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 16. ágúst 2006, kl. 16:15 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Lilja Harðardóttir, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
Dagskrá
1. Staða læknamála
Farið yfir minnispunkta frá Hjalta um stöðu læknamála. Einnig var lagt fram bréf frá Ragnhildi Magnúsdóttur yfirlækni HSSA um læknamálin. HÖR leggur til að rætt verði við markaðsskrifstofur um kynningarmál og leitað tilboða. Það sé nauðsynlegt skref til að bregðast við núverandi stöðu læknamála. HÖR bendir einnig á að þetta kynningarstarf verði hægt að nota á öðrum sviðum í sveitarfélaginu öllu.
2. Lagfrumvarp “kynning”
Lagt fram bréf frá Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu um frumvarp til laga um embætti landlæknis.
3. 6. mánaða uppgjör HSSA
Guðrún Júlía fór yfir 6. mánaða uppgjör HSSA. Núverandi halli er tilkominn vegna ófyrirséðra launahækkana og leiðréttingar skv. þjónustusamningi vegna launabreytinga hafa ekki komið úr ríkissjóði. HÖR leggur áherslu á að sá halli sem tilkominn er vegna launbreytinga á gildistímanum verði leiðréttur. 4. Viðræðuáætlun v/endurnýjunar á þjónustusamningi Engin áætlun liggur fyrir en starfsmenn hafa óskað eftir viðræðum við Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið en engin svör fengið. HÖR leggur ríka áherslu á að undirbúningi vegna vinnu við endurnýjun á þjónustusamningi verði hraðað og samningsaðilar hittist sem fyrst.
3. Önnur mál
a) Spurt var hvort sendir væru út matarbakkar frá mötuneyti HSSA um helgar. Byrjað er að senda út matarbakka um helgar.
b) Sagt var frá að verið er að ganga frá stofnanasamningi BHM og HSSA.
Stefnt er á að skrifa undir 21. ágúst n.k.
Fundi slitið kl. 18.10 .


