Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 78
78. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 17. janúar 2007 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Lilja Hrund Harðardóttir, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Ester Þorvaldsdóttir.
Formaður óskaði eftir breytingum á dagskrá, þ.e. að dagskrárlið 5 verði frestað til næsta fundar og var það samþykkt.
1. Fundargerðir 76. og 77 funda lagðar fram til kynningar
2. Upplýsingar um uppsafnaðan halla
Guðrún Júlía lagði fram minnisblað dags. 28. desember varðandi rekstur frá 1996 til 2005 og áætlun vegna 2006 sagði hún að staðan fyrir árið 2006 væri betri en áætlun gerði ráð fyrir og staðan í dag væri um 4 m.kr. í halla, en uppgjöri er ekki lokið.
3. Samband íslenskra sveitarfélaga um endurskoðun á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga v. verkefna sem tengjast öldruðum, til kynningar.
Árni upplýsti málið.
4. Samningur um sérfræðiþjónustu á svið barnalækninga, til kynningar.
Guðrún Júlía lagði fram samning um sérfræðiþjónustu á svið barnalækninga og greindi hún frá að heilbrigðisráðuneytið greiddi um 900.000.- vegna þessa. Guðrún Júlía óskaði eftir því að HÖR samþykkti að sent verði bréf til forstjóra LSH þar sem óskað er eftir viðræðum um samning um sérfræðiþjónustu á sviði geðlækninga á Hornafirði. HÖR samþykkir að framkvæmdastjóri fari í þessar viðræður.
5. Nafnið Skjólgarður
Frestað til næsta fundar.
6. Drög að nýjum þjónustusamningi
Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar ítrekar þá afstöðu sína að starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands kalli á stöðugildi að minnsta kosti þriggja lækna. Það er krafa Heilbrigðis-og öldrunarráðs Hornafjarðar að í nýjum þjónustusamningi við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið verði gert ráð fyrir að minnsta kosti þremur stöðugildum lækna á Hornafirði. Ekki er hægt að sætta sig við að velferðarþjónusta á Suðausturhorni landsins verði skorin niður með jafn áþreifanlegum hætti eins og að fækka stöðugildum lækna úr þremur í tvö. Einnig skal ítrekað að hvergi er um jafn langan veg að fara á sjúkrahús.
Björk ítrekaði það að rétt væri að lögfræðingur færi yfir samningsdrögin eins og rætt var á síðasta fundi og að mikilvægt væri að setja markið hátt, setja fram allar okkar kröfur inn í drögin og fara með þau þannig til fundar við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Mikilvægt að vera snögg að svara drögunum og minna stöðugt á okkur.
Árni óskaði eftir að bókað væri: þau samningsmarkmið sem samþykkt voru athugasemdalaust á fundi ráðsins 14. nóvember 2006 stæðu enn og markið væri sett hátt.
7. Önnur mál
a) Opinn dagur verður á heilsugæslunni 31. jan. til heiðurs þeim sem gáfu röntgentækin. Formaður hvetur nefndarmenn til að mæta og fagna þessum merka áfanga.
Fundi slitið kl. 17:25


